Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sam­bands­af­mæli með kærust­unni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Milljónir fluttar milli manna í skipulagðri brotastarfsemi

Samkvæmt ákæru hér­aðs­sak­sókn­ara voru brotin framin á árunum 2024 til 2026

Héraðsdómur Reykjaness dæmdi í málinu
Hér­aðs­dómur Reykja­ness dæmdi í mál­inu Mynd: Víkingur

Hér­aðs­dómur Reykja­ness hefur dæmt Irmantas Bartosevicius í 15 mán­aða fang­elsi fyrir fíkni­efna­brot og pen­inga­þvætti sem voru liður í umfangs­mik­illi og skipu­lagðri brota­starf­semi. Dómurinn var kveð­inn upp 15. sept­em­ber.

Samkvæmt ákæru hér­aðs­sak­sókn­ara voru brotin framin á árunum 2024 til 2026. Bartosevicius var meðal ann­ars gefið að sök að hafa tekið ítrekað við og geymt fjár­muni sem taldir voru afrakstur af sölu og dreif­ingu fíkni­efna eða annarri refsi­verðri hátt­semi.

Fjár­mun­irnir voru ýmist í reiðufé eða lagðir inn á banka­reikn­ing hans og síðan komið áfram til sam­verka­manna. Til­gang­ur­inn var sam­kvæmt ákæru að umbreyta fjár­mun­unum og leyna upp­lýs­ingum um upp­runa þeirra og eðli.

Meðal þess sem kom fram í ákærunni var að Bartosevicius hefði í tíu milli­færslum sent sam­tals 2,4 millj­ónir króna á banka­reikn­ing ann­ars ein­stak­lings. Þá afhenti hann einum sam­verka­manni 13.900 evrur í reiðufé í mars 2025. Pen­ing­arnir voru síðar afhentir konu sem hugð­ist fljúga með þá til Mílanó en var stöðvuð af toll­vörðum.

Nokkrum dögum síðar afhenti hann sama sam­verka­manni 9.600 evrur sem fóru til manns sem hugð­ist fljúga til Frank­furt. Sá var einnig stöðv­aður af toll­vörðum.

Í ákærunni kom jafn­framt fram að Bartosevicius hefði í eitt skipti afhent öðrum ein­stak­lingi 5,9 millj­ónir króna sem skipt var í evrur og komið áfram. Þá var honum gefið að sök að hafa komið að inn­flutn­ingi fíkni­efna með miðlun upp­lýs­inga og haft fíkni­efni í vörslum sínum.

Bartosevicius ját­aði brotin ský­laust fyrir dómi. Við ákvörðun refs­ingar var litið til þess að hann hafði ekki áður gerst sekur um refsi­verða hátt­semi, ját­aði og var sam­vinnu­þýður við rann­sókn máls­ins. Á móti vó að brotin voru hluti af umfangs­mik­illi og skipu­lagðri brota­starf­semi fleiri aðila.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Prestur rifjar upp óþægi­lega reynslu úr æsku

„Þú getur treyst barninu sem þú varst. Jesús gerir það“
Innlent

„Sterkar vís­bend­ingar eru núna um að hryðju­verk­a­ríkið Ísrael hafi gert tölvu­árás á íslenska inn­viði“

Innlent

Ekið á mann á raf­hlaupa­hjóli

Innlent

Að minnsta kosti þrjár Palest­ínu­tengdar vef­síður eyði­lagðar í netárásinni á 1984

Heimur

Raun­veru­leika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Sjö gist fangageymslur lögreglunnar eftir nóttina.

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu