Glúmur Baldvinsson
„Þetta verða löng málaferli“
Glúmur Baldvinsson
Menning

Ris og fall Krumma

Fólk

Flug­freyja afhjúpar 15 hluti sem þú ættir aldrei að taka með í flug

Innlent

Hljóð­upp­tökur komu verk­stæði í Garðabæ í koll

Innlent

„Mig bara langar ekki í saur­gerla­bað“

Fólk

Selja fal­legt fjöl­skyldu­hreiður með heitum potti og stórum garði

Heimur

Hundruð reyndu að færa fræga lista­verkið til að bjarga manni

Heimur

Sam­göngu­yf­ir­völd rann­saka hesta­ferð í stræt­is­vagni

Fólk

Átta algeng mis­tök sem gælu­dýra­eig­endur gera

Innlent

Kom með ólög­legan grænan varn­ing í far­angrinum

Minning

Guðjón Þórð­ar­son er fall­inn frá

Stal fyrir milljónir úr verslunum landsins

Brotin voru framin á tíma­bil­inu frá des­em­ber 2024 til júlí 2026

Héraðsdómur Reykjaness sá um málið
Hér­aðs­dómur Reykja­ness sá um málið Mynd: Víkingur

Karl­maður hefur verið dæmdur í 14 mán­aða fang­elsi í Hér­aðs­dómi Reykja­ness fyrir 88 þjófn­að­ar­brot og eina til­raun til þjófn­aðar. Brotin voru framin á tíma­bil­inu frá des­em­ber 2024 til júlí 2026 og nam sam­an­lagt verð­mæti mun­anna rúm­lega 3,5 millj­ónum króna.

Maðurinn ját­aði fyrir dómi öll brotin sem ákæru­valdið hélt til streitu. Þjófn­að­irnir voru fjöl­breyttir en stór hluti þeirra sneri að mat­vöru úr versl­unum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Meðal þess sem mað­ur­inn stal voru mikið magn af kjúklinga­bringum, nauta­kjöti, lamba­kjöti, ostum, kaffi, orku­drykkjum og öðrum mat­vörum.

Þá stal hann einnig raf­tækjum, ilm­vötnum, fatn­aði, verk­færum, húð­vörum, vítamínum og Lego-kössum. Í einu til­viki stal hann tveimur jökkum að verð­mæti 196 þús­und króna og í öðru húð­vörum að verð­mæti rúm­lega 238 þús­und króna. Þá var hann sak­felldur fyrir að hafa reynt að stela verk­færum að verð­mæti rúm­lega 159 þús­und króna en starfs­menn stöðv­uðu hann áður en hann yfir­gaf versl­un­ina.

Maðurinn átti að baki nokkurn saka­feril og hafði áður meðal ann­ars hlotið fang­els­is­dóma og verið sviptur öku­rétti ævi­langt. Með hluta brot­anna rauf hann skil­orð eldri dóms og var fimm mán­aða skil­orðs­bundin fang­els­is­refs­ing því tekin upp.

Við ákvörðun refs­ingar horfði dóm­ur­inn til greiðrar játn­ingar manns­ins en einnig til fjölda brot­anna, þess hversu lengi þau stóðu yfir og heild­ar­verð­mætis þýf­is­ins.

Nið­ur­staðan var 14 mán­aða fang­elsi. Manninum var jafn­framt gert að greiða 800 þús­und krónur í málsvarn­ar­laun verj­anda síns.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

5
Minning

Lárus Heið­ars­son lát­inn

Lárus Heið­ars­son, skóg­ar­bóndi og fyrr­ver­andi odd­viti Fljóts­dals­hrepps, var bor­inn til grafar á föstu­dag. Hann lést 28. októ­ber síð­ast­lið­inn eftir skamma en erf­iða bar­áttu við bráða­hvít­blæði. Aust­ur­frétt greindi frá and­lát­inu. Lárus gegndi fjöl­mörgum trún­að­ar­störfum fyrir Fljóts­dals­hrepp og sat í sveit­ar­stjórn frá árinu 2010, fyrst sem vara­odd­viti og síðar odd­viti. Hann kom einnig að mótun Svæð­is­skipu­lags Aust­ur­lands og var í stjórn Sambands...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Kenn­ingar uppi um að geim­skip hafi stöðvað flug­um­ferð í Banda­ríkj­unum

Myndbönd af meintu móðurskipi náðust sama dag og flugumferð stöðvaðist í Bandaríkjunum.
Innlent

Ökumenn í vímu og slags­mál í mið­bænum

Skoðun
Brynjar Birgisson

Það er ekki nægur mennta­hroki á Íslandi

Brynjar Birgisson
Heimur

Ók á hóp fólks og varð tveimur að bana en sleppur við ákæru

Heimur

Fimmtán ára drengur frá Palest­ínu laus úr fang­elsi í Ísrael

Innlent

Innlent

Halldóra hæf­ari en Björn og Sigríður Elsa

Fimm sóttu um.
Innlent

Egg og kyn­þátt­a­níð í alvar­legum ásök­unum

Innlent

Nemendur fá ekki lægra en fjóra í loka­ein­kunn

Innlent

Dómari fór í taug­arnar á borg­ara

Innlent

Ald­urs­mis­munun hjá lög­regl­unni undir stjórn Höllu Bergþóru

Innlent

Fór með EES pirr­ing­inn til umboðs­manns