Inga Sæland
„Hrein og klár mannvonska og borgarstjórn til ævarandi skammar“
Inga Sæland
Peningar

Prett­yboitjokkó stofnar fyr­ir­tæki með fyrrum lands­liðs­manni

Peningar

Elís seg­ist hafa tapað 100 millj­ónum í við­skiptum við fjár­festa

Innlent

„Börn eiga ekki að þurfa að bera afleið­ing­arnar“

Pólitík

Segir flokks­menn Guðrúnar und­ir­búa mót­fram­boð gegn henni

Fólk

„Mér líður gjör­sam­lega djöf­ul­lega“

Innlent

Fékk aldr­aðan mann til að selja rað­hús skömmu fyrir and­lát

Fólk

Selja ein­býli með turn­stofu og verð­launa­garði

Innlent

Ferðin til Írlands tók óvænta stefnu á Kefla­vík­ur­flug­velli

Fólk

Ragnar Bragason birti mynd­band af dul­ar­fullum ljósum yfir Sunda­höfn

Innlent

Álft skotin á Víði­staða­túni

Michael Madsen sækir um skilnað – Sakar konuna um að valda sjálfsvígi sonar þeirra

Madsen hjónin
Madsen hjónin Mynd: Trausti Hafsteinsson

Hollywood-leik­ar­inn Michael Madsen hefur form­lega sótt um skilnað frá eig­in­konu sinni en hann seg­ist vera fórn­ar­lamb mis­notk­unar af hennar völdum. Þá seg­ist hann trúa því að eig­in­konan hafi valdið því að sonur þeirra framdi sjálfs­víg.

Leik­ar­inn, sem þekkt­astur er fyrir hlut­verk sín í Kill Bill 1, Res­er­voir Dogs og The Hateful Eight, lagði fram skiln­að­ar­beiðn­ina í gær, þar sem hann vitn­aði til óyf­ir­stíg­an­legs ágrein­ings í skjal­inu og hélt því fram að hann hafi í raun skilið við eig­in­konu sína, DeAnna Madsen, í jan­úar 2022.

Madsen hjónin á meðan allt lék í lyndi.

Þrátt fyrir að hann hafi hakað við reit­inn „óyf­ir­stíg­an­legur ágrein­ingur“, fylgdi einnig yfir­lýs­ing með beiðn­inni frá Michael, þar sem hann sagði að ástæðan væri mun meiri en bara ágrein­ingur. Michael segir að hann hafi skilið við eig­in­konu sína árið 2022 vegna þess að hann trúir því að „van­ræksla hennar, drykkja og áfeng­is­sýki“ hafi rekið son þeirra Hudson til að svipta sig lífi.

Michael með syni sínum, Hudson heitnum.

Madsen bætir við að DeAnna, sem hann gift­ist árið 1996, hafi einnig stuðlað að vanda­málum sínum og að sam­bandið hafi ein­kennst af „mis­notkun, með­virkni og eitri“ sem hann segir að hafi endað með ólög­mætri hand­töku hans vegna heim­il­is­of­beldis í síð­asta mán­uði.Madsen var hand­tek­inn í síð­asta mán­uði vegna ákæru um minni­háttar heim­il­is­of­beldi eftir að lög­reglan sagði að hann hefði ýtt DeÖnnu. Hann lagði fram 20 þús­und dala trygg­ingu ekki löngu síðar. Í vik­unni á eftir sagði hér­aðs­sak­sókn­ari L.A. sýslu kæra yrði ekki lögð fram vegna ófull­nægj­andi sönn­un­ar­gagna.

Núna, ofan á skiln­að­inn, sækir Madsen líka eftir nálg­un­ar­banni vegna heim­il­is­of­beldis eig­in­kon­unnar.Fjöl­miðla­full­trúi Madsen sagði TMZ á þeim tíma að hann væri ánægður með að skjól­stæð­ingur hans gæti nú hætt að hugsa um hand­tök­una og líta fram á við og nú lítur út fyrir að hann sé að gera það sama með hjóna­bandið.

Starfs­lið Michaels og fjöl­miðla­full­trú­inn neit­uðu að tjá sig frekar. TMZ hafði sam­band við DeÖnnu en hefur enn engin svör fengið.

Ef ein­stak­ling­ar glíma við sjálfs­vígs­hugs­an­ir er bent er á Hjálp­arsíma Rauða kross­ins 1717 og net­spjall Rauða kross­ins 1717.is. Opið allan sól­ar­hring­inn. Einnig má hafa sam­band við Píeta-sam­tök­in sem veita ókeyp­is ráð­gjöf í síma 552-2218, allan sól­ar­hring­inn. Net­spjall Heilsu­veru þar sem svarar hjúkr­un­ar­fræð­ingur er líka opið frá kl.8-22 alla daga. Fyrir þau sem misst hafa ást­vin í sjálfs­vígi má fá stuðn­ing í sorg hjá Sorg­ar­mið­stöð og hjá Pieta sam­tök­unum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Eigna­spjöll til rann­sóknar í Reykja­vík og Garðabæ

Heimur

Telja sig hafa náð for­sögu­legri flug­eðlu á mynd­band í Mexíkó

Innlent

Valur telur sigur Úkraínu sífellt lík­legri

Innlent

Sautján ára piltur sak­felldur fyrir kyn­ferð­is­brot gegn tólf ára stúlku

Heimur

Heimur

Loch Ness-skrímslið sést oftar í ár en í fyrra

Charles Paxton segir fjölda tilkynninga sveiflast milli ára. Dýr, bátsöldur, vindur og gróður geti skýrt það sem fólk telur sig sjá.
Heimur

Býður Trump að nefna heil­brigð­is­kerfi eftir sér

Heimur

Íran vísar á bug fréttum um áform um efna­vopna­árás í Banda­ríkj­unum

Heimur

Móðir fékk son sinn aftur eftir ólýs­an­lega martröð

Heimur

Björn réðst á mann í Japan

Heimur

Lög­reglan lagði hald á þús­undir ólög­legra kyn­lífs­vara á Kanarí­eyjum