Ekki varð marktæk fjölgun sjálfsvíga á Íslandi í fyrra vegna samfélagslegra áhrifa Covid-19 faraldursins. Hins vegar urðu fleiri sjálfsmorð á meðal kvenna árið 2020 en árið á undan. Þessar upplýsingar eru fengnar úr bráðabirgðatölum sem embætti landlæknis hefur birt.
Í tilkynningu frá embættinu – sem landlæknirinn Alma Möller stýrir – segir að „reglulega hefur komið upp umræða á undanförnum misserum hvort tíðni sjálfsvíga hafi aukist í kórónuveirufaraldrinum.“
Ekki sé óeðlilegt „að áhyggjur vakni af andlegri heilsu þegar samfélagslegar hremmingar ganga yfir og vissulega var ýmislegt sem faraldrinum fylgdi sem gat haft neikvæð áhrif á andlega líðan.“
Þá er tekið sem dæmi um takmarkanir á samneyti milli fólks, atvinnumissi og áhyggjur af eigin heilsu og annarra vegna faraldursins.
„Aftur á móti benda gögn einnig til þess að jákvæðar breytingar hafi orðið á öðrum áhrifaþáttum andlegrar heilsu, svo sem minni áfengisneyslu ásamt því sem hærra hlutfall fólks átti auðvelt með að ná endum saman.“
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.































Athugasemdir