Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Hélt uppistand á Íslandi fyrir úkraínska herinn

Úkra­ínski grínist­inn Vasyl ByDuck hélt uppi­stands­sýn­ingu á úkra­ínsku í kjall­ara­rými Dubliner í Reykja­vík en sýn­ingin var haldin fyrir Úkra­ínu­búa sem búsettir eru hér á landi og rann allur ágóði til úkra­ínska hers­ins

Hélt uppistand fyrir úkraínska herinn
Hélt uppi­stand fyrir úkra­ínska her­inn Safnaði hálfri milljón króna

Grínist­inn Vasyl ByDuck frá Úkraínu hélt uppi­stands­sýn­ingu í Reykja­vík í gær­kvöld til styrktar úkra­ínska hernum og seg­ist Vasyl elska Ísland og lítur á það sem annað heim­ili sitt utan.

Er sýn­ingin hluti af uppi­stands­ferða­lagi Vasyl um einar 28 borgir í Evrópu; var sýn­ingin hér á landi sú sautj­ánda er hann hélt, eins og segir á vef­miðl­inum vb.is.

Eins og áður sagði rennur allur ágóði miða­söl­unnar beint til úkra­ínska hers­ins og að sögn skipu­leggj­anda sýn­ing­ar­innar náði Vasyl að safna aðeins meira en hálfri milljón íslenskra króna í gær­kvöld.

Seldist upp á sýn­ing­una; rúm­lega 110 gestir greiddu fimm þús­und krónur í aðgangs­eyri:

„Ég verð bara með þessa einu sýn­ingu í Reykja­vík og fer svo beint úr landi um mið­nætti. Þetta er allt skipu­lagt af mér og konu minni og svo rennur allur ágóð­inn til úkra­ínska hers­ins svo hann geti fjár­magnað kaup á vopnum, skot­heldum vestum og fleira. Við erum þakk­lát fyrir alla aðstoð sem við fáum en því miður þá kemur áhrifa­rík­asta hjálpin í formi vopna.“

Kemur fram að Vasyl hafi áður sótt Ísland heim en kapp­inn hélt uppi­stands­sýn­ingu á Gauknum fyrir sjö árum síðan:

„Ég elska Ísland meira en nokkra aðra þjóð utan Úkraínu, en ég verð líka svo sorg­mæddur þegar ég kem hingað og sé alla þessa fal­legu fossa og firði og ber það svo saman við það sem er að ger­ast í mínu landi. Mágkona mín sagði mér til dæmis frá því í vik­unni að Rússar sprengdu hverfið okkar og að nokkrar eld­flaugar höfðu lent rétt hjá íbúð­inni okkar.“

Eggert Smári Sig­urðs­son skipu­leggj­andi sýn­ing­ar­innar var afar ánægður með við­brögðin og seg­ist sjaldan eða aldrei hafa upp­lifað aðra eins eft­ir­spurn:

„Á ákveðnum tíma­punkti var verið að selja svo mikið af miðum að vef­síðan okkar bara hrundi. Ég veit ekki hvort það var vegna netárása Rússa eða hvað en svo fór síðan aftur í loftið eftir sól­ar­hring. Svo héldu fyr­ir­spurnir áfram að ber­ast eftir að við lok­uðum fyrir miða­sölu frá fólki sem biðl­aði til okkar að selja þeim miða.“

Vasyl er mjög frægur í Úkraínu eftir margra ára feril sem uppi­stand­ari; hefur hann und­an­farin miss­eri ferð­ast til fremstu víg­lín­unnar í stríði Rússa og Úkra­ínu­manna og hefur hann til að mynda haldið sýn­ingar fyrir her­menn í skot­gröfum á Donbass-svæð­inu.

„Ég hef haldið margar sýn­ingar fyrir úkra­ínska her­inn í skot­gröf­unum og meira að segja á meðan stór­kota­liðsárásir óvina heyrð­ust allt um kring. Það voru hins vegar bestu sýn­ingar sem ég hef gert. Það var ekki mikið hlegið en ég fann svo mikið fyrir til­finn­ingum allra í kringum mig. Það er svo frá­bær til­finn­ing að láta fólk, sem er stans­laust í nánd við hræðslu og dauð­ann, hlæja og brosa í smá stund.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Á bol mannsins stóð „Palletsign Acton“, en lögreglan virðist hafa lesið þar nafn samtakanna Palestine Action.
Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Heimur

Maður stung­inn í Las Palmas

Heimur

Ljósmynd af logum ræsti sjálf­virkt slök­kvikerfi

Fólk

Sáttasex leysir ekki ágrein­ing­inn

Hjónabandsráðgjafinn Molly Mindel segir að kynlíf eftir rifrildi geti aukið nánd en komi ekki í stað samtals um það sem olli ágreiningnum.

Ald­ar­gam­alt hús sem hýsti hverf­is­verslun til sölu í Laug­ar­nesi

„Nið­ur­lægj­andi að smækka fólk niður í tölur“

Notalegt fjöl­skyldu­hús með nægu rými úti og inni til sölu

„Í dag eru tíu ár síðan ég varð fyrir nauðgun“

Lyf í töflu­formi vekur vonir um hæg­ari fram­gang Alzheimers