Kynlíf á almannafæri í Bandaríkjunum náðist óvænt á upptöku.
Móðir 13 ára drengs rétt fyrir utan Detroit í Michigan er brjáluð út í par sem lagði bílaleigubíl sínum í innkeyrsluna hjá sér og hóf að stunda kynmök. Síðdegis á mánudaginn bakkaði parið inn í innkeyrsluna og girti niður um sig brækurnar, stillti upp símum sínum og hóf að stunda kynmök nema hvað að skynjari í myndavélakerfi hússins fór í gang og sendi myndbandstilkynningu í síma 13 ára drengsins en sá var í skólanum og var að bíða spenntur eftir póstsendingu en í stað þess að sjá mann með pakka sá hann parið vera í fullu fjöri með hvort öðru.
Af hverju parið ákvað leggja í þessari innkeyrslu liggur ekki fyrir en hún sést vel frá götunni.
Parið hefur verið tilkynnt til lögreglu fyrir athæfið en þau hafa ekki fundist hingað til.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir