Valur Gunnarsson
„Getur ekkert gert nema reynt að hefna sín á óbreyttum borgurum.“
Valur Gunnarsson
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Pólitík

Þor­gerður svar­aði Sigmundi fullum hálsi eftir frammí­kall á Alþingi

Pólitík

Guð­mundur Ingi greindi frá „einum léleg­asta laga­brand­ara“ Alþingis

Fólk

Fyrrum for­stjóri selur hús með heims­frægan fyrr­ver­andi eig­anda

Innlent

Segir hús­næð­is­mark­að­inn vera „eina stóra svika­myllu“

Innlent

„Ég valdi ekki bílslysið, krabba­meinið eða fötl­un­ina“

Fólk

Flúði Talibana fimm ára en hlaut íslensku­verð­laun þremur árum seinna

Heimur

„Ein­hyrn­ingur“ fannst í Eist­landi

Þrír réðust inn á heimili öryrkja og misþyrmdu honum – Rændu svo öndunarvél hans

Húsið á Kleppsvegi þar sem ruðst var inn.
Húsið á Klepps­vegi þar sem ruðst var inn. Mynd: DV

Aðfar­arnótt þriðju­dags­ins 18. nóv­em­ber árið 1997 var hræði­leg nótt fyrir öryrkja á Klepps­vegi í Reykja­vík en þá brut­ust þrír glæpa­menn inn í íbúð hans og réð­ust á hann.

Miðaldra öryrki vissi ekki hvað á sig stóð veðrið nótt­ina 18. nóv­em­ber 1997 þegar þrír menn rudd­ust skyndi­lega inn í íbúð hans á Klepp­veg­inum og kefl­uðu hann. Mis­þyrmdu þeir svo honum og stálu af honum ýmsum heim­il­is­tækjum og lögð­ust einnig svo lágt að stela önd­un­ar­tæki manns­ins. Þegar menn­irnir voru búnir að tæma íbúð­ina af öllu verð­mætu náði öryrk­inn að losa sig og hringja eftir hjálp lögegl­unnar. Var hann fluttur rak­leiðis á slysa­deild en var ekki í lífs­hættu. Menn­irnir náð­ust fljót­lega en þeir reynd­ust góð­kunn­ingjar lög­regl­unnar. Einn þeirra, Einar Sig­ur­jóns­son var tíu árum áður dæmdur í 14 ára fang­elsi fyrir að bana ungum manni í verð­búð í Innri-Njarðvík með hnífi. Voru þeir allir úrskurð­aðir í gæslu­varð­hald.

DV gerði eft­ir­far­andi frétt um málið:

Þrír ræn­ingjar réð­ust inn á heim­ili á Klepps­vegi í nótt:

Bundu, börðu og kefl­uðu öryrkja

Þrír menn réð­ust inn á heim­ili öryrkja, mið­aldra manns, á Klepps­vegi í nótt, tóku hann úr önd­un­ar­vél og og veittu honum veru­lega áverka. Maðurinn var einn heima þegar árás­ar­menn­irnir rudd­ust inn. Þeir tóku hann úr önd­un­ar­tæki, sem hann not­aði, bundu hann, kefl­uðu, stungu og skáru með hnífi. Þeir spörk­uðu í hann og skildu síðan eftir á stól með snöra um háls­inn. Þre­menn­ing­arnir hreins­uðu flest fémætt úr íbúð­inni, hljóm­flutn­ings­tæki, sjón­varp og ýmis­legt fleira. Menn­irnir munu meira að segja hafa tekið önd­un­ar­tækið með sér. Það sem varð mann­inum til bjargar var að hann náði að losa sig úr snöranni og skríða eftir aðstoð. Lögregla var kölluð á vett­vang og var mað­ur­inn umsvifa­laust fluttur á slysa­deild Sjúkra­húss Reykja­víkur. Þar var hlúð að honum og var hann þar í gæslu í nótt. Samkvæmt upp­lýs­ingum læknis í morgun er mað­ur­inn ekki tal­inn í lífs­hættu. Lög­reglan vildi lítið tjá sig um máls­at­vik en sagði þó flest benda til þess að fóm­ar­lambið hafi þekkt árás­ar­menn­ina, þó ekki að neinu góðu. Aðal­varð­stjóri lög­regl­unnar sagði við DV að fóm­ar­lambið væri eng­inn mis­ind­is­maður. Hann sagði málið myndu skýr­ast betur þegar líða færi á dag­inn. Reynt yrði að ræða við fóm­ar­lambið nú í morgun og það myndi von­andi leiða til hand­töku árás­armann­anna.

Daginn eftir kom eft­ir­far­andi frétt um málið á DV:

Árás­ar­menn­irnir á Klepps­vegi:

Einn hefur orðið manni að bana

Einn af þre­menn­ing­unum sem réðst á íbúa á Klepps­vegi í fyrr­inótt er til­tölu­lega nýlega kom­inn út úr fang­elsi eftir að hafa afplánað dóm fyrir mann­dráp. Hæsti­réttur dæmdi mann­inn í 14 ára fang­elsi árið 1988 fyrir að hafa banað ungum manni með hnífi í ver­búð í Innri-Njarðvík í ágúst 1987. Tveir aðrir menn era i haldi lög­reglu vegna máls­ins. Einn af þre­menn­ing­unum hefur þegar verið úrskurða­öur í tveggja vikna gæslu­varð­hald. Lög­reglan í Reykja­vík mun að lík­indum fara fram á að hinir tveir verði úrskurð­aðir í dag. Árásin á Klepps­vegi telst mjög fólsku­leg. Maðurinn sem ráð­ist var á hefur komiö við sögu fíkni­efna­mála. Árás­ar­menn­irnir þrir eru allir þekktir afbrota­menn hjá lög­reglu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Sigríður Nanna Heimisdóttir segir skólann vinna að úrlausn málsins og býður nemendum sem urðu vitni að atvikinu samtal.
Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Innlent

Bens­ín­verð hækkar hér á landi á meðan heims­mark­aðs­verð lækkar

Pólitík

„Það er eng­inn öruggur í sam­fé­lagi þar sem stjórn­málin leit­ast við að keppa í grimmd“

Heimur

Setti bráð­skemmti­legt heims­met

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni