Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sam­bands­af­mæli með kærust­unni

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Heimur

Prestur rifjar upp óþægi­lega reynslu úr æsku

Hugur Ívars leitar til Hollywood

Leik­ar­inn Ívar Örn Sverr­is­son fer með lyk­il­hlut­verk í stórri norskri sjón­varps­þátta­seríu sem seld hefur verið til Banda­ríkj­anna

Ívar Örn er spenntur fyrir framtíðinni
Ívar Örn er spenntur fyrir fram­tíð­inni Er óhræddur fyrir að koma sér á fram­færi. Mynd: Víkingur

Það kann­ast kannski ekki margir Íslend­ingar við nafnið Ívar Örn Sverr­is­son en hann hefur á und­an­förnum ára­tug byggt upp orð­spor sitt í leik­list­ar­heimi Noregs. Ívar hóf fer­il­inn snemma á 21. öld­inni á Íslandi þar sem hann lék hlut­verk í myndum á borð við Dís, Strák­arnir Okkar og Reykja­vík Whale Watching Massacre.

Hann hefur nú klárað tökur á norskri sjón­varps­þátta­seríu og er um stærsta hlut­verk Ívars á ferl­inum að ræða. Sjón­varps­þátt­ur­inn heitir I kjær­lig­het­ens navn á norsku og In the Name of Love á ensku og verður meðal ann­ars sýndur á streym­isveit­unni Pri­meVideo, sem er í eigu Amazon. Serían verður frum­sýnd í byrjun sept­em­ber.

Mannlíf ræddi við Ívar um lífið, sjón­varps­þátt­inn og fram­haldið.

„Ég var búinn að vinna tölu­vert á Íslandi og byggja upp fer­il­inn áður en ég flutti til Noregs en það var út af námi fyrr­ver­andi kon­unnar minnar,“ segir Ívar um ástæðu þess af hverju hann flutti upp­haf­lega til Noregs. „Þetta var bara svona eins og lífið er, allt í einu er maður á leið­inni til útlanda. Mig lang­aði svo til að halda áfram með það sem ég var byrj­aður á og reyndi ná mér í sam­bönd. Ég þekkti engan þarna úti og kunni ekki tungu­málið en lét slag standa og ætl­aði mér að kom­ast inn, bora mig inn.“

Leik­ar­inn hefur búið erlendis í rúman ára­tugKunni ekki norsku þegar hann flutti til Noregs.

Í ser­í­unni hefur Ívar með að eigin sögn með nokkuð stórt hlut­verk. „Persónan er hálf­ís­lensk. Hann heitir Þor­valdur, þannig að ég má hafa smá íslenskan hreim. Þeir eig­in­lega vildu það.“

Sagan er byggð á lífi leik­stjór­ans Bård Breien og teygir sig yfir þrjá ára­tugi. Faðir leik­stjór­ans var fyrsti klám­kóngur Noregs en heima sat móðir hans, sem var mik­ill femínisti og fór fyrir femínista­hreyf­ingu í sínum frí­tíma. Samkvæmt Ívari er Þor­valdur sem er eini karl­kyns með­lim­ur­inn í femínista­hópnum og verður fljót­lega ást­fang­inn af móð­ur­inni, sem skapar erf­iðar aðstæður.

En hver eru lang­tíma­mark­mið Ívars?

„Ég er búinn að taka ákvarð­anir varð­andi fram­tíð­ina, ég hef verið að vinna svo breitt. Ég hef verið mikið í sviðs­leik­húsi og hef ferð­ast út um allan heim í því. Þannig að ég hef tekið þann pól­inn í hæð­ina að mig langar að ein­beita mér að kvik­myndum og sjón­varpi næstu fimm árin. Mark­miðið er að geta tekið verk­efni víðar en í Noregi,“ en Ívar talar mörg tungu­mál reiprenn­andi.

Spenntur fyrir banda­ríska mark­að­inumHjálpar honum að tala mörg tungu­mál reiprenn­andi.

Leik­ar­inn við­ur­kennir að hugur hans leiti til Hollywood að ein­hverju leyti.

„Það sem er svo spenn­andi er að banda­ríski mark­að­ur­inn ferð­ast mikið og taka oft bíó­mynd­irnar í öðrum löndum og ég vil algjör­lega vera mögu­leiki þar,“ segir Ívar um Hollywood mögu­leika sína. „Ég ætla að vera óhræddur að banka á hurðir í Evrópu, Noregi og á Íslandi. Það er svo gaman að sjá að það eru nokkuð margir íslenskir leik­arar sem kom­ast í stórar bíó­myndir og sjón­varps­þætti. Mig langar að halda áfram að sýna heim­inum fleiri íslenska leik­ara,“ segir Ívar um kvik­mynda­brans­ann.

Hann telur að það muni hjálpa honum að ser­í­unni verði streymt á Pri­meVideo.

„Mig langar einmitt að nota tæki­færið og vera sýni­legur og athuga hvaða mögu­leika ég hef. Ég er mjög spenntur fyrir því,“ segir leik­ar­inn glaður í bragði.

Ívar er einnig spenntur fyrir því að koma til Íslands að leika. „Ég er mjög stoltur af þeim verk­efnum sem ég hef verið þátt­tak­andi í og langar virki­lega að gera meira.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Kærastan fann dag­bæk­urnar og sleit sam­band­inu við David Walliams

„Ég var orðinn kynlífsfíkill“
Innlent

„Sterkar vís­bend­ingar eru núna um að hryðju­verk­a­ríkið Ísrael hafi gert tölvu­árás á íslenska inn­viði“

Innlent

Ekið á mann á raf­hlaupa­hjóli

Innlent

Að minnsta kosti þrjár Palest­ínu­tengdar vef­síður eyði­lagðar í netárásinni á 1984

Heimur

Raun­veru­leika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Náttúruleg líkamslykt getur tengst nánd og góðum minningum, en segir ekki til um hvort samband muni endast.

„Í dag eru tíu ár síðan ég varð fyrir nauðgun“

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Sáttasex leysir ekki ágrein­ing­inn

„Nið­ur­lægj­andi að smækka fólk niður í tölur“

Notalegt fjöl­skyldu­hús með nægu rými úti og inni til sölu