„Stökkbreyting á meðgöngu leiddi til þess að myndun brjósks varð óeðlileg og kom hún fram í breyttri beinagrind með stóru höfði miðað við aðra líkamshluta, stuttum útlimum – styttri upphandleggs- og lærleggsbein – og breiðum höndum með stuttum kjúkum svo dæmi um einkenni séu nefnd. Meðalhæð fullorðinna karla er um 130 sentímetrar en konur verða um 120-122 sentímetrar. Það eru til yfir 200 afbrigði af dvergvexti og algengasta afbrigðið heitir Achondroplasia og það er það sem Hildur er með. Líkurnar á að tveir heilbrigðir einstaklingar eignist barn með dvegvöxt eru einn á móti 25.000,“ segir Kristín Ósk Bjarnadóttir en dóttir hennar, Hildur, er með dvergvöxt. Hildur er 11 ára
„Meðgangan gekk vel framan af en svo var hún frekar strembin þegar líða fór á hana. Það mældist of mikið legvatn í skoðun og svo kom í ljós að hún væri mjög höfuðstór og var ég í reglulegu eftirliti …
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.































Athugasemdir