Valur Gunnarsson
„Getur ekkert gert nema reynt að hefna sín á óbreyttum borgurum.“
Valur Gunnarsson
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Pólitík

Þor­gerður svar­aði Sigmundi fullum hálsi eftir frammí­kall á Alþingi

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Pólitík

Guð­mundur Ingi greindi frá „einum léleg­asta laga­brand­ara“ Alþingis

Fólk

Fyrrum for­stjóri selur hús með heims­frægan fyrr­ver­andi eig­anda

Innlent

Segir hús­næð­is­mark­að­inn vera „eina stóra svika­myllu“

Innlent

„Ég valdi ekki bílslysið, krabba­meinið eða fötl­un­ina“

Fólk

Flúði Talibana fimm ára en hlaut íslensku­verð­laun þremur árum seinna

Heimur

„Ein­hyrn­ingur“ fannst í Eist­landi

Þóttist vera kona í Stefnumótasímanum og kúgaði fé út úr tveimur mönnum

Árið 1993 kom upp ansi sér­stakt fjár­kúg­un­ar­mál á Íslandi. Var þá tæp­lega fer­tugur maður ákærður fyrir að hafa fé af tveimur mönnum en aðferðin sem hann not­aði var öðru­vísi en áður þekkt­ist.

Maðurinn hljóð­rit­aði sem sagt sím­töl mann­anna í svoköll­uðum Stefnu­móta­sím­anum, þar sem fólk gat skilið eftir síma­númer sín og spjallað við ein­stak­linga sem voru að leita að stefnu­móti. Þóttist mað­ur­inn vera kven­maður þegar menn­irnir tveir hringdu en í sím­töl­unum sögðu þeir honum frá óskum sínum á kyn­lífs­svið­inu og fleiri per­sónu­upp­lýs­ingum. Náði hann út úr þeim sitt hvorum 50.000 krónum sem í dag væru um 189.954 krónur í dag, með því að hóta að segja eig­in­konu ann­ars þeirra frá sam­tal­inu og senda upp­töku af sam­tal­inu til bæj­ar­ins sem hinn bjó í.

DV skrif­aði frétt um málið á sínum tíma sem lesa má hér:

Ákærðu fyrir að hafa fé af tveimur mönnum:

Hótaði að segja frá kyn­lífs­óskum og fram­hjá­haldi

– Hljóð­rit­aði sím­töl í Stefnu­móta­sím­anum

Rík­is­sak­sókn­ari hefur gefið út ákæru á hendur tæp­lega fer­tugum manni fyrir fjár­kúgun. Manninum er gefið að sök að hafa snemma árs 1993 hljóð­ritað sam­töl í Stefnu­móta­sím­anum. Í sam­töl­unum komu fram ýmsar upp­lýs­ingar manna um sjálfa sig, óskir þeirra á kyn­lífs­sviði og jafn­vel full­yrð­ingar um fram­hjá­hald. Upp­lýs­ing­arnar fékk hann meðal ann­ars með því að leika kven­mann í sím­ann. Þannig fékk hann þá til að greiða fé inn á banka­reikn­ing sinn. Tók hann pen­ing­ana út og nýtti sér. Þannig fékk hann mann til að greiða þann 21. apríl síð­ast­lið­inn 50 þús­und krónur inn á spari­sjóðs­reikn­ing í Íslands­banka gegn hótun um að segja ann­ars eig­in­konu manns­ins og sam­keppn­is­að­ila frá sam­tal­inu. Á sama hátt fékk hann annan mann til að greiða 50 þús­und krónur inn á sama reikn­ing þann 30. apríl gegn hótun um að senda seg­ul­bands­spólur til bæj­ar­ins sem hann var búsettur í. Í ákærunni er þess kraf­ist að mað­ur­inn verði lát­inn sæta refs­ingu sam­kvæmt 251. grein hegn­ing­ar­laga en brot á þeirri grein varðar 6 ára fang­elsi. Einnig krefj­ast þeir aðilar sem brotið var gegn sam­tals 100 þús­unda króna skaða­bóta úr hendi manns­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Sigríður Nanna Heimisdóttir segir skólann vinna að úrlausn málsins og býður nemendum sem urðu vitni að atvikinu samtal.
Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Innlent

Bens­ín­verð hækkar hér á landi á meðan heims­mark­aðs­verð lækkar

Pólitík

„Það er eng­inn öruggur í sam­fé­lagi þar sem stjórn­málin leit­ast við að keppa í grimmd“

Heimur

Setti bráð­skemmti­legt heims­met

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni