Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sam­bands­af­mæli með kærust­unni

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Ráðgáta Alzheimer mögulega leyst

Ný von í bar­átt­unni

Vísindamenn telja sig hafa fundið „týnda hlekkinn“ í Alzheimer-sjúkdómnum
Vís­inda­menn telja sig hafa fundið „týnda hlekk­inn“ í Alzheimer-sjúk­dómnum Mynd: Joel Bubble Ben/Shutterstock

Ný rann­sókn bendir til þess að Alzheimer-sjúk­dóm­ur­inn valdi ekki aðeins skemmdum á tauga­frumum heldur hlut­ist til um að neyða ákveðnar frumur yfir í óeðli­legt ástand. Lítil breyt­ing á einni sam­eind í heil­anum gæti útskýrt hvernig sjúk­dóm­ur­inn þró­ast yfir í alvar­legt minnistap.

Lengi hefur verið vitað að óeðli­legar prótein­flækjur, svo­kallað mýlildi (amyloid plaques) og tauf­lækjur, séu helstu drif­kraftar Alzheimers.

Mýlildi (eða amyloid á ensku) er lækn­is­fræði­legt heiti yfir óeðli­lega upp­söfnun af próteinum sem pakka sér vit­laust saman og falla út sem óleys­an­legar trefjar í líf­færum eða vefjum lík­am­ans.

Í sam­hengi við Alzheimer-sjúk­dóm­inn er talað um mýlild­is­skellur (amyloid plaques) sem safn­ast upp í rým­inu á milli tauga­frumna í heil­anum. Þessir kögglar eða skellur trufla sam­skipti milli frumn­anna og eru taldar eiga stóran þátt í því að tauga­frumur skemm­ast og deyja, sem leiðir til minnistaps og vit­rænnar hnign­unar.

Hins vegar hefur það verið ein stærsta ráð­gáta vís­ind­anna hvernig þessar breyt­ingar tengj­ast vits­muna­legri hnignun. Ný rann­sókn frá Institute of Basic Science í Suður-Kóreu bendir nú til þess að við­taka­próteinið ERBB4 sé týndi hlekk­ur­inn í þess­ari keðju.

Óeðlileg virkjun eyðileggur heilbrigðar taugatengingar

Í heil­brigðum heila finnst ERBB4-við­tak­inn aðal­lega í hamlandi tauga­frumum, sem hjálpa til við að hægja á eða stýra virkni í heil­anum. Rann­sak­endur komust að því að í Alzheimer-sjúk­lingum fær­ist þessi við­taki yfir í örvandi tauga­frumur, sem knýja áfram virkni. Þessi óeðli­lega virkjun veldur því að stuðn­ings­frumur í heil­anum (astrocytes og microglia), sem eiga að hreinsa burt skemmdar teng­ingar, fara þess í stað að eyði­leggja heil­brigðar tauga­teng­ingar. Þetta raskar jafn­vægi heil­ans og getur valdið ofvirkni og minnis­glöpum áður en helstu ein­kenni koma fram.

Vís­inda­menn­irnir próf­uðu að grípa inn í þetta ferli með gena­breyt­ing­ar­tækni og eyddu ERBB4-við­tökum úr örvandi tauga­frumum í dreka (hippocampus) músa, en það er svæðið sem stýrir minn­is­bú­skap.

Uppgötvun sem gæti opnað nýjar leiðir

Nið­ur­stöð­urnar voru slá­andi. Við inn­gripið róuð­ust ofvirkar tauga­frumur, dregið var úr upp­söfnun prótein­flækja og mýsnar stóðu sig mun betur í minnis- og rýmis­prófum. Þegar við­tak­inn var aftur á móti virkj­aður í heil­brigðum músum þró­uðu þær fljótt með sér vit­ræna hnignun. Þessi upp­götvun gæti opnað nýjar leiðir í leit að áhrifa­ríkri með­ferð gegn sjúk­dóm­inum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Prestur rifjar upp óþægi­lega reynslu úr æsku

„Þú getur treyst barninu sem þú varst. Jesús gerir það“
Innlent

„Sterkar vís­bend­ingar eru núna um að hryðju­verk­a­ríkið Ísrael hafi gert tölvu­árás á íslenska inn­viði“

Innlent

Ekið á mann á raf­hlaupa­hjóli

Innlent

Að minnsta kosti þrjár Palest­ínu­tengdar vef­síður eyði­lagðar í netárásinni á 1984

Heimur

Raun­veru­leika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Eftir að hafa greinst með heilaæxli fyrir fjórum árum lýsir Karl Ágúst þakklæti fyrir að verk hans séu nú aftur á sviði.

„Í dag eru tíu ár síðan ég varð fyrir nauðgun“

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Sáttasex leysir ekki ágrein­ing­inn

„Nið­ur­lægj­andi að smækka fólk niður í tölur“

Notalegt fjöl­skyldu­hús með nægu rými úti og inni til sölu