Inga Sæland
„Hrein og klár mannvonska og borgarstjórn til ævarandi skammar“
Inga Sæland
Peningar

Prett­yboitjokkó stofnar fyr­ir­tæki með fyrrum lands­liðs­manni

Peningar

Elís seg­ist hafa tapað 100 millj­ónum í við­skiptum við fjár­festa

Innlent

„Börn eiga ekki að þurfa að bera afleið­ing­arnar“

Pólitík

Segir flokks­menn Guðrúnar und­ir­búa mót­fram­boð gegn henni

Fólk

„Mér líður gjör­sam­lega djöf­ul­lega“

Innlent

Fékk aldr­aðan mann til að selja rað­hús skömmu fyrir and­lát

Fólk

Selja ein­býli með turn­stofu og verð­launa­garði

Innlent

Ferðin til Írlands tók óvænta stefnu á Kefla­vík­ur­flug­velli

Fólk

Ragnar Bragason birti mynd­band af dul­ar­fullum ljósum yfir Sunda­höfn

Innlent

Álft skotin á Víði­staða­túni

Hinn grunaði í hvarfi Maddie játaði: „Spurði hvort hægt væri að taka DNA úr barnabeinum úr jörðu“

Dæmdi barn­a­níð­ing­ur­inn Christian Brueckner, er nú fyrir rétti í Þýska­landi en hann er grun­aður um að hafa rænt og drepið hina þriggja ára gömlu Madel­eine McCann í Praia da Luiz í Portúgal í maí 2007. Fyrrum klefa­fé­lagi hans, Laurentiu Codin sagði fyrir rétti í dag að hinn þýski Brueckner hafi við­ur­kennt fyrir honum að hafa rænt barni í Portúgal.

Christian Brueckner ját­aði að hafa rænt ungri stúlku úr sum­ar­frís­húsi sínum í Algarve, sagði fyrr­ver­andi klefa­fé­lagi hans fyrir rétti í dag.

„Hann sagði mér að í Portúgal hefði hann stolið þar,“ sagði hann. „Hann var á svæði þar sem eru hótel og ríkt fólk býr. Hann sagði að það væri ein­hvers staðar opinn gluggi, hann sagði mér þetta. Hann var að leita að pen­ingum,“ sagði Codin og hélt áfram: „Hann sagð­ist ekki hafa fundið neina pen­inga en fann barn og tók það. Hann sagði að tveimur tímum síðar hafi lög­regla og hundar verið út um allt og því hafi hann farið burt, út af svæð­inu.“

Enn bætti Codin við: „Ég er bara að segja það sem hann sagði mér. Hann sagði mér að með honum væri mann­eskja sem hann hefði átt í rifr­ildum við, að sögn var þetta konan hans. Hann sagð­ist hafa farið með barnið í bíl sinn og á þeim tíma sem lög­regla og hundar voru í hús­inu hafi hann ekið í burtu og látið sig hverfa. Hann spurði mig hvort hægt væri að taka DNA úr barna­beinum úr jörðu.“

Samhliða full­yrð­ingu Codins, sagði hann einnig að Brueckner hefði játað að hafa „rænt og nauðgað ungum stúlkum“.

Brueckner, 47 ára, er sagður hafa játað árið 2020 að hafa áður rænt ungum stúlkum og nauðgað þeim í rútu sem hann átti. Laurentiu Codin, 50, hélt því fram fyrir dómi að Þjóð­verj­inn hefði „trúað honum fyrir þessu“ á meðan þeir voru báðir í gæslu­varð­haldi í sama fang­elsi.

Hann sagði: „Það var talað um stelpu, ég veit ekki hvort það sem hann sagði var satt eða ekki. Hann sagð­ist vera með rútu og að hann hefði tekið hana þangað. Hann kvaðst halda sumum þeirra, en ekki öðrum, en aldrei sagð­ist hann hafa drepið þær. Við erum að tala um stelpur, ekki stráka. Ekki margar í einu, alltaf ein í einu. Hann sagði mér frá tveimur. Hann sagð­ist hafa tekið ein­hverja, stundað kyn­líf með henni en hann hafi ekki drepið hana.“

Aðspurður af dóm­ar­anum hversu gam­alt fórn­ar­lamb hans hafi verið, sagði Codin: „Ég vil ekki segja ein­hverja vit­leysu, en það var mjög ungt, pínu­lítið. Ég meina ungt. Í hvert skipti sem við vorum saman tal­aði hann um það vegna þess að hann var sann­færður um að ég væri barn­a­níð­ingur.“

Brueckner afplánar nú sjö ára fang­elsi fyrir að nauðga banda­rískum líf­eyr­is­þega í Praia da Luz. Hann er nú við rétt­ar­höld í Þýska­landi vegna ótengdra kyn­ferð­is­glæpa sem meintir hafa verið framdir í Algarve á árunum 2000 til 2017. Meðal þeirra er meint nauðgun á írska ferða­full­trú­anum Hazel Behan, sem var ráð­ist á í íbúð hennar á Praia da Rocha árið 2004.

Brueckner er einnig sak­aður um að hafa nauðgað ung­lings­stúlku á heim­ili sínu í Praia da Luz og nauðgað eldri konu í sum­ar­bú­stað hennar. Hann á einnig yfir höfði sér ákæru fyrir barn­a­níð fyrir að hafa afhjúpað sjálfan sig fyrir þýskri stúlku á strönd í Salema í apríl 2007. Síðasta ákæra hans snýr að meintum ósæmi­legri afhjúpun fyrir framan 11 ára stúlku árið 2017. Hann neitar nýj­ustu ákær­unum, auk þess að hafa ein­hverja aðkomu að McCann mál­inu.

Sak­sókn­arar virð­ast ekki vera nálægt því að sanna að hann hafi staðið á bak við hvarf Madel­eine, þrátt fyrir að halda því fram að þeir hafi sann­anir fyrir því að hún sé látin. Þeir standa frammi fyrir þeirri martrað­ar­at­burða­rás að sjá þann sem þeir gruna helst um ránið og borðið á McCann, ganga laus ef hann verður sýkn­aður í nýj­ustu rétt­ar­höld­unum. Verði Brueckner fund­inn sak­laus gæti hann losnað úr fang­elsi á fyrri hluta næsta árs.

Sýkni­dómur í þessum málum myndi auka þrýst­ing­inn á þá að ákæra Brueckner fyrir hvarf Madel­eine. Rétt­ar­höld­unum á að ljúka í des­em­ber.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Eigna­spjöll til rann­sóknar í Reykja­vík og Garðabæ

Heimur

Telja sig hafa náð for­sögu­legri flug­eðlu á mynd­band í Mexíkó

Innlent

Valur telur sigur Úkraínu sífellt lík­legri

Innlent

Sautján ára piltur sak­felldur fyrir kyn­ferð­is­brot gegn tólf ára stúlku

Heimur

Heimur

Loch Ness-skrímslið sést oftar í ár en í fyrra

Charles Paxton segir fjölda tilkynninga sveiflast milli ára. Dýr, bátsöldur, vindur og gróður geti skýrt það sem fólk telur sig sjá.
Heimur

Býður Trump að nefna heil­brigð­is­kerfi eftir sér

Heimur

Íran vísar á bug fréttum um áform um efna­vopna­árás í Banda­ríkj­unum

Heimur

Móðir fékk son sinn aftur eftir ólýs­an­lega martröð

Heimur

Björn réðst á mann í Japan

Heimur

Lög­reglan lagði hald á þús­undir ólög­legra kyn­lífs­vara á Kanarí­eyjum