Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Aldrei kynnst annarri eins framkomu

Íbúar í miðbæ Kópavogs saka bæj­ar­yf­ir­völd um að flýta bygg­ingu háhýsa af ann­ar­legum ástæðum en bæj­ar­stjór­inn vísar því á bug.

Vegna sam­komu­banns­ins sem nú gildir fá íbú­arnir ekki að koma saman til að ráða ráðum sínum vegna fyr­ir­hug­aðrar bygg­ingar háhýsa við Fannborg á svoköll­uðum Trað­ar­reit. Und­an­þágu þess efnis að halda mætti íbúa­fund var hafnað af heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu. Í kjöl­farið fóru íbú­arnir fram á við sveit­ar­fé­lagið að and­mæla­frest­ur­inn sem gildir til 29. apríl næst­kom­andi yrði lengdur þangað til hægt væri að halda íbúa­fund. Þeirri beiðni var einnig hafnað.

Benjamín Magn­ús­son arki­tekt er lítt hrif­inn af vinnu­brögðum Kópa­vogs­bæjar og krefst þess að skipu­lags­hug­mynd­irnar verði dregnar til baka. Sjálfur seg­ist hann hafa fengið tvo og hálfan dag til að koma með athuga­semdir vegna hug­mynd­anna en hann vann að gerð núgild­andi skipu­lags mið­bæj­ar­ins á sínum tíma.

„Á 52 ára starfs­ferli mínum hef ég aldrei kynnst annarri eins fram­komu, jafn­miklum hroka, yfir­læti og skorti á sam­ráðsvilja. Ég mót­mæli harð­lega þessum vinnu­brögðum. Sem eig­andi og hags­muna­að­ili og aðal­höf­undur að núgild­andi skipu­lagi mið­bæjar Kópavogs ætti mér að vera til­kynnt per­sónu­lega um svo viða­miklar breyt­ingar á skipu­lag­inu,“ segir Benjamín og bætir því við að aug­ljóst sé að bæj­ar­full­trúar hafi engan áhuga á mót­mælum. Það hafi ber­lega komið í ljós á fjar­fund­inum þar sem kynn­ing fór fram.

„Ég upp­skar frammíköll og upp­hróp­anir frá nokkrum full­trúum bæj­ar­ins og gafst því upp. Mér ofbýður þétt­leiki þessa skipu­lags, græðgin sem í því felst og skeyt­ing­ar­leysið í garð þeirra sem fyrir eru á svæð­inu. Það kann að vera erfitt fyrir marga þeirra að taka þátt í fjar­fundum. Furðu vekur ef ekki á að halda almennan opinn borg­ara­fund um þetta stóra mál. Hér er valtað yfir alla hags­muna­að­ila og sýnd yfir­gengi­leg græðgi og til­lits­leysi. Sú spurn­ing vaknar óhjá­kvæmi­lega hvort afgreiða eigi málið í skjóli sam­komu­banns á tímum Covid-19.“

„Mér ofbýður þétt­leiki þessa skipu­lags, græðgin sem í því felst og skeyt­ing­ar­leysið í garð þeirra sem fyrir eru á svæð­inu.“

Benjamín telur fram­setn­ingu bæj­ar­yf­ir­valda vill­andi og er sann­færður um að margir íbúar muni leita réttar síns. „Ljóst er að bygg­ingar verða í ævar­andi skugga af þessum fyr­ir­hug­uðu bygg­ingum. Nýt­ing­ar­hlut­fallið er senni­lega það mesta sem ger­ist á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.“

Sjá einnig: Háhýsi rísa í skjóli veirunnar

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Að minnsta kosti þrjár Palest­ínu­tengdar vef­síður eyði­lagðar í netárásinni á 1984

Vefur Félagsins Ísland-Palestína liggur niðri eftir árásina og óvíst er hvort hægt verði að endurheimta hann.
Heimur

Raun­veru­leika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sam­bands­af­mæli með kærust­unni

Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Sjö gist fangageymslur lögreglunnar eftir nóttina.

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu