Valur Gunnarsson
„Getur ekkert gert nema reynt að hefna sín á óbreyttum borgurum.“
Valur Gunnarsson
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Pólitík

Þor­gerður svar­aði Sigmundi fullum hálsi eftir frammí­kall á Alþingi

Pólitík

Guð­mundur Ingi greindi frá „einum léleg­asta laga­brand­ara“ Alþingis

Fólk

Fyrrum for­stjóri selur hús með heims­frægan fyrr­ver­andi eig­anda

Innlent

Segir hús­næð­is­mark­að­inn vera „eina stóra svika­myllu“

Innlent

„Ég valdi ekki bílslysið, krabba­meinið eða fötl­un­ina“

Fólk

Flúði Talibana fimm ára en hlaut íslensku­verð­laun þremur árum seinna

Heimur

„Ein­hyrn­ingur“ fannst í Eist­landi

Rannsókn CNN á „Hveitifjöldamorðunum“ sýnir fram á lygar Ísraelshers

Rannsókn CNN frétta­stof­unnar hefur leitt í ljós veru­legt mis­ræmi í frá­sögn ísra­elska hers­ins af hrika­legu atviki 29. febr­úar á Gaza, sem nú er almennt nefnt „Hveiti­fjöldamorðin“ (e. the Flour Massacre).

Sjá einnig: Ísra­els­her sak­aður um að skjóta á hungr­aða Gaza-búa: „Alger­lega óvið­un­andi blóð­bað“

Skýrsla CNN, sem er rök­studd með vitn­is­burði sjón­ar­votta og mynd­bands­sönn­un­ar­gögnum, vekur alvar­legar spurn­ingar um gagn­sæi öfga­stjórnar Net­anya­hus og vekur efa­semdir um opin­bera frá­sögn þeirra.

Aðfara­nótt 29. febr­úar breytt­ist mann­úð­ar­að­stoð á Gaza í martröð þegar ísra­elskir her­menn hófu skot­hríð á fjölda Palest­ínu­manna sem safn­að­ist saman til að taka á móti mat­ar­birgðum við Al Rashid-stræti, aðal­veg á norð-suður leið­inni sem ísra­elski her­inn hafði útvegað fyrir mann­úð­ar­að­stoð. Meira en 112 óbreyttir borg­arar létu lífið og 760 særð­ust í atvik­inu, sem olli for­dæm­ingum á heims­vísu en sendi­herra Palest­ínu­manna hjá Sam­ein­uðu þjóð­unum sagði að tugir fórn­ar­lambanna hafi verið „skotnir í höf­uðið“.

Tæpum sex vikum síðar stang­ast ítar­leg grein­ing CNN á við full­yrð­ingar ísra­els­hers, þar á meðal vitn­is­burður frá 22 sjón­ar­vottum og yfir­ferð á mörgum mynd­böndum af rétt­ar­sér­fræð­ingum, en ísra­els­her full­yrti að mann­fall hafi aðal­lega orðið vegna troðn­inga en ekki vegna beinna skot­hríða.

Nið­ur­stöður banda­rísku frétta­stof­unnar benda til þess að skot­hríð­irnar hafi haf­ist löngu áður en Ísra­els­her heldur fram að þær hafi haf­ist og skotum hafi verið skotið beint á mann­fjöld­ann frekar en sem við­vör­un­ar­skotum. „Greining á tugum mynd­banda frá kvöld­inu og vitn­is­burði sjón­ar­votta vekur efa­semdir um útgáfu Ísraels á atburðum,“ sagði í frétt CNN um skýrslu sína.

Til við­bótar við athug­un­ina reynd­ust nið­ur­stöður innri rann­sóknar ísra­elska hers­ins og tíma­línan sem birt var í kjöl­farið vera í ósam­ræmi við mynd­bands­sönn­un­ar­gögnin sem CNN safn­aði. Til dæmis sýna tíma­stimpluð mynd­bönd greini­lega skot­hríð og ringul­reið, sem grefur undan full­yrð­ingu Ísraela um að her­sveitir þeirra hafi aðeins skotið við­vör­un­ar­skotum til að dreifa mann­fjöld­anum.

Frá­sagnir sjón­ar­votta grófu enn­fremur undan opin­berri útgáfu ísra­el­skra emb­ætt­is­manna af atburð­inum. Margir þeirra sem lifðu af sögðu frá hrylli­legum augna­blikum þar sem skotum var beint að ein­stak­lingum sem reyndu í örvænt­ingu að afla sér matar. Ein slík frá­sögn frá Jihad Abu Watfa, sem var á vett­vangi, lýsti harðri skot­hríð í kringum afhend­ing­ar­svæði hjálp­ar­gagn­anna, sem stang­ast á við frá­sögn ísra­elska hers­ins um skipu­lagða og vel stjórn­aða aðgerð.

Eft­ir­málar atviks­ins voru ömur­legir þar sem fjöldi mann­falla voru til­kynnt og fjöl­margar sann­anir um skotsár sáust á fólki, öfugt við lýs­ingu ísra­elska hers­ins á troðn­ingi.

Rannsókn CNN leit­ast ekki aðeins við að véfengja opin­bera lýs­ingu Ísraela á atburð­unum heldur draga einnig í efa víð­tæk­ari afleið­ingar hern­að­ar­legrar þátt­töku í borg­ara­legum hjálp­ar­að­gerðum á átaka­svæðum.

Upptökur frá flygildum (e. dro­nes) sem ísra­elski her­inn birti sýnir einu skýru heim­ild­ina af þeim fjölda Palest­ínu­manna sem safn­ast hafði saman þegar „Hveiti­fjöldamorðin“ voru framin.

„Ef ekki annað sýnir það hversu erfitt það hefði verið að skjóta með ein­hverri nákvæmni á það sem ísra­els­her lýsti sem „grun­uðum“ meðal þétt­set­inna fólks sem umkringdi bíla­lest­ina,“ segir í nið­ur­stöðum fréttar CNN.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Sigríður Nanna Heimisdóttir segir skólann vinna að úrlausn málsins og býður nemendum sem urðu vitni að atvikinu samtal.
Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Innlent

Bens­ín­verð hækkar hér á landi á meðan heims­mark­aðs­verð lækkar

Pólitík

„Það er eng­inn öruggur í sam­fé­lagi þar sem stjórn­málin leit­ast við að keppa í grimmd“

Heimur

Setti bráð­skemmti­legt heims­met

Heimur

Heimur

Pútín hótar „sárs­auka­fullum“ hefndum vegna árása á Krímbrúna

Forsetinn segir Rússa ekki muni semja við Úkraínu eftir árásina
Heimur

Amma skotin í höf­uðið og keyrt yfir átta

Heimur

Shenk varar við nýju tíma­bili óstöð­ug­leika í tækni­málum

Heimur

Musk seg­ist ekki vera hluti af MAGA-hreyf­ingu Trumps

Heimur

Khloe Kar­dashian er demikyn­hneigð

Heimur

Alvar­legar ásak­anir á hendur 15 ára syni raun­veru­leika­stjörnu