Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Dúnmjúka Englakakan frá ömmu – „Mér finnst gaman að hugsa að hún vaki yfir mér þegar ég baka“

Í til­efni þess að fal­lega köku­blaðið okkar kom út í vik­unni deilum við hér með les­endum upp­skrift úr köku­blaði Vikunnar 2019.

Anna Marín töfraði fram dún­mjúka Engla­köku fyrir köku­blað Vikunnar í fyrra. Hún er vön að baka mikið fyrir jólin.

„Fyrir jólin baka ég einkum smákökur en mínar upp­á­halds eru sörur, lakk­rístoppar, snjó­bolta­kökur og að sjálf­sögðu pip­ar­kökur. Það er gaman að baka franskar mak­rónur sem ég geri í alls­konar litum og með alls konar bragði. Ég hef alltaf elskað allt sem teng­ist jól­unum og byrja oft­ast jóla­und­ir­bún­ing­inn snemma. Upp­skrift­ina að Engla­kök­unni kemur frá föð­ur­ömmu minni Sigrúnu sem lést þegar ég var ung­barn. Hún var mik­ill sæl­keri, kannski fékk ég bakst­urs­hæfi­leika mína frá henni en mér finnst gaman að hugsa að hún vaki yfir mér þegar ég baka,“ sagði Anna Marín um þessa fal­legu köku.

Englakaka

50 g kakó
6 msk. heitt vatn
3 egg
2 msk. mjólk
175 g hveiti
1 kúfuð tsk. lyfti­duft
100 g smjör við stofu­hita
300 g sykur
1/2 tsk. salt
1 tsk. vanillu­dropar

Hrærið kakóið út í heita vatnið og hrærið þar til engir klumpar eru eftir af kakó­inu. Bætið mjólk­inni út í. Brjótið síðan eggin og bætið út í einu í einu og hrærið vel saman. Bætið smjöri, hveiti, sykri, lyfti­dufti, salti og vanillu­dropum út í og hrærið vel en þó ekki um of því þá verður kakan of þétt í sér. Smyrjið tvö hring­laga form og klippið út bök­un­ar­pappír í
botn­inn. Bakið við 180°C í 30 mín. Látið botn­ana kólna. Losið þá síðan úr formunum og látið full­kólna áður en englakremið er sett á.

Englakrem

250 g sykur
4 eggja­hvítur
60 ml vatn

Setjið öll hrá­efnin í skál og hrærið yfir vatns­baði þangað til syk­ur­inn leys­ist upp og froða mynd­ast. Takið af hit­anum og hrærið með hand­þeyt­ara eða í hræri­vél í u.þ.b. sjö mín­útur eða þar til verður létt og ljóst.

Finnið fínan disk til að setja kök­una á og leggið annan botn­inn á hann. Setjið krem ofan á köku­botn­inn og dreifið úr. Leggið hinn botn­inn yfir og setjið krem yfir kök­una og hliðar hennar.

Best er að setja kremið á rétt áður en kakan er borin fram.

Texti / Unnur H. Jóhanns­dóttir
Myndir / Hákon Davíð

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Fólk

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Geðlæknirinn Haraldur lætur allt flakka
Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina