Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Einelti látið viðgangast árum saman innan Strætó: „Það voru margir sem lentu í þessum manni“

Einelti látið viðgangast árum saman innan Strætó: „Það voru margir sem lentu í þessum manni“

„Það er bara hálf sagan sögð,“ sagði Sig­ur­brandur Jak­obs­son fyrrum starfs­maður Strætó í við­tali við Mannlíf í dag.

Mannlíf birti í vik­unni frétt um vinnu­staða­grein­ingu sem gerð var innan Strætó. Þar kom í ljós mikil óánægja meðal starfs­manna en sögð­ust 22 af 162 hafa orðið fyrir ein­elti innan vinnu­staðar síð­ustu 12 mán­uði.

Sig­ur­brandur starf­aði sem flota­full­trúi ásamt níu öðrum og segir að mikil krísa hafi komið upp innan hóps­ins en ger­and­inn var einnig flota­full­trúi.

„Þetta var búið að stig­magn­ast í 3 ár,“ sagði Sig­ur­brandur aðspurður hversu lengi ein­eltið hafa átt sér stað áður en vinnu­staða­grein­ingin hafi verið gerð.

Sig­ur­brandur sagði að margoft hafi verið rætt við sviðs­stjóra og deild­ar­stjóra og þeim bent á hátt­semi ger­and­ans. Aldrei hafi svör verið gefin.
Það var ekki fyrr en einn starfs­maður, sem gegndi stöðu flota­full­trúa brotnar niður og fer í kjöl­farið í þriggja mán­aða veik­inda­leyfi að ger­and­inn er sendur í launað leyfi frá störfum.

Mætti samt á vinnustað

Sig­ur­brandur sagði að þrátt fyrir að ger­and­inn hafi verið sendur í leyfi hafi hann samt sem áður mætt á vinnu­stað­inn, ítrekað. Hann hafi einnig haft aðgang að „ský­inu“ en þar eru ýmsar upp­lýs­ingar um verk­ferla og skipu­lag fyr­ir­tæk­is­ins.

Þar sem tveir af átta flota­full­trúum voru fjar­ver­andi jókst álagið gríð­ar­lega á þá sem eftir voru og létu starfs­menn vita af því og kröfð­ust úrræða.
Segir Sig­ur­brandur að um þetta leyti hafi Sál­fræði­stofan Líf og sál verið fengin til þess að gera ýtar­legri könnun um starfsanda innan Strætó.

„Þá kemur tölvu­póstur frá sviðs­stjóra sem segir að vegna álags þá verði að kalla þennan mann inn úr laun­uðu fríi, til þess að taka álagið af hinum starfs­mönn­unum,“ segir Sig­ur­brandur.

Stuttu síðar mætir ger­andi aftur til starfa og þegar langt er liðið á dag­inn kallar mannauðs­stjóri til fundar með yfir­mönnum.

„Þeim er skipað að gera þetta ekki, því þá er búið að kalla til Líf og sál,“

Að fá nið­ur­stöður úr könnun sem Líf og sál gerði tók um einn og hálfan mánuð og var útkoman ekki góð.

„Það voru 15 manns kall­aðir til og nið­ur­staðan var sú að þarna var svæsið ein­elti,“ sagði Sig­ur­brandur og bætir við:

„Það voru margir sem lentu í þessum manni, ekki bara við heldur vagn­stjórar líka.“

Aðspurður hvort ger­andi hafi haft góð tengsl við yfir­menn segir Sig­ur­brandur svo hafa verið.
„Þeir voru saman í golf­klúbbi. Sér­stak­lega deild­ar­stjór­inn og þessi maður sem höfðu mikil tengsl“

„Þeir fóru saman út til Flórída til dæmis, að spila golf.“

Sig­ur­brandur segir starfs­menn hafa velt því fyrir sér hvort vin­átta þeirra væri mögu­lega ástæða þess að ger­and­inn hafi haft þessi „völd“. Hvort vin­áttan væri að trufla starf­sem­ina.
„Þá var alltaf sagt í hvert ein­asta skipti að það væri engin vin­átta þarna,“

Sig­ur­brandur talar um að bæði hann og aðrir starfs­menn hafi upp­lifað mikið áreiti og álag vegna ástands­ins. Líðanin hafi ekki verið góð.
„Maður upp­lifði það þannig að þetta væri manni sjálfum að kenna, að maður væri ekki nógu góður starfs­kraftur,“

Eineltið var margs­konar en tal­aði ger­andi ítrekað niður til sam­starfs­manna, upp­nefndi þá og bak­tal­aði.

Sig­ur­brandur lýsir því meðal ann­ars hvernig ger­andi tal­aði um starfs­mann sem hafði 25-30 ára reynslu sem starfs­maður Strætó.

„Þessi maður hann tal­aði bara um hann eins og hann væri algjör fáviti, þetta var bara ógeðs­legt að þurfa að hlusta á svona,“
Og furðar sig á því hvers vegna það hafi aldrei verið svarað fyrir það hvers vegna þetta fór á þennan hátt.

„Ég er ekk­ert í neinum hefnd­ar­hug, en ég vil að þetta komi fram og þeir hafa aldrei svarað hvernig í ósköp­unum þetta fór svona,“

Sig­ur­brandur sagði starfi sínu hjá Strætó lausu og seg­ist ekki hafa áttað sig á hversu mikil áhrif þetta hafði á hann fyrr en aðeins síðar.

„Þetta var erfitt tíma­bil og hafði mikil áhrif, kannski meira en maður gerði sér grein fyrir þá.“

Ger­and­inn var leystur frá störfum í ágúst.

„Hvernig í ósköp­unum var hægt að vera svona við mann,“ segir Sig­ur­brandur undir lok við­tals og bætir við að það hafi verið stór hópur sem hafi þurft að þola fram­kom­una. Hann hafi aldrei fengið nein svör.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi