Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Knapinn Jóhann Rúnar Skúlason nauðgaði 13 ára barni árið 1993: „Ég hágrét allan tímann“

Knapinn Jóhann Rúnar Skúlason nauðgaði 13 ára barni árið 1993: „Ég hágrét allan tímann“
Jóhann Rúnar

Eins og Mannlíf greindi nýverið frá þá var lands­liðs­mað­ur­inn í hesta­í­þróttum, Jóhann Rúnar Skúlason, kærður og sak­felldur fyrir heim­il­is­of­beldi í Danmörku.

Þrátt fyrir það hélt hann sæti sínu í lands­lið­inu.

En Jóhann Rúnar hefur áður kom­ist í kast við lögin, ekki bara í Danmörku, heldur hér á Íslandi.

Í sept­em­ber árið 1994 var Jóhann Rúnar sak­felldur í Hér­aðs­dómi Norð­ur­lands vestra fyrir að hafa nauðgað 13 ára gömlu barni, stúlku. Mannlíf hefur dóm­inn undir höndum.

Nauðg­unin átti sér stað í bíl árið 1993:

Mánu­dag­inn 30. ágúst 1993 kl. 14.30 kom stúlkan Y, 13 ára gömul, ásamt móður sinni á lög­reglu­stöð­ina á B og kærði ákærða fyrir nauðgun sem hún kvað hafa átt sér stað aðfara­nótt 20. s.m. Ákærði var hand­tek­inn og tekin af honum skýrsla hjá lög­reglu þá um kvöldið.

Þá kemur fram hvernig Jóhann Rúnar hitti fórn­ar­lamb sitt og einnig að hann hafi boðið fórn­ar­lamb­inu að keyra hana heim:

Ákærði skýrir svo frá að hann hafi verið við vinnu í versl­un­inni E á B umrætt kvöld. Stúlkan Y hafi komið í versl­un­ina ásamt vinum sínum og verið þar dágóða stund eða allt fram að lokun versl­un­ar­innar. Y hafi m.a. skoðað mynd­bands­spólur í rekka þar inni og hafi ákærði bent henni á góðar mynd­bands­spólur. Þar hafi Y gefið honum undir fót­inn m.a. með því að núa sér utan í hann. 

Kemur fram í dómnum að Jóhann Rúnar vissi hvað stúlkan væri gömul:

Ákærði kveður þau hafa talað eitt­hvað saman á leið­inni. Hann hafi m.a. spurt hana að nafni og einnig hvað hún væri gömul. Þeirri spurn­ingu hafi hún svarað á þá leið „að það skipti engu máli, hún (væri) nógu gömul“

Eftir að Jóhann Rúnar hafði ekið dágóða stund með fórn­ar­lamb­inu fór harka að fær­ast í leik­inn í bif­reið­inni:

Þá kveður hún ákærða hafa reynt að hafa sam­farir við sig og sett getn­að­ar­lim sinn inn í kyn­færi sín. Kvaðst Y hafa fundið fyrir sam­fara­hreyf­ingum en ákærða hafi þó ekki orðið sáð­fall. Kvaðst Y hafa verið stíf af hræðslu við ákærða og ekki þorað að mót­mæla honum í neinu og gert það sem hann bað um. Nánar aðspurð um atburð­ina út í A sagði Y svo frá fyrir dómi „Ég man bara þegar hann klæddi mig úr og ég man ekki röð­ina alveg. Ég man bara þegar hann fór að reyna að hafa sam­farir með mér. Ég sagði honum að gera þetta ekki. Hann sagði mér að vera ekki svona stíf. Ég bað hann um að hætta þessu, grát­bað hann um það. Hann hélt áfram. Svo hætti hann því. Ég man ekki hvort hann sagði ég nenni þessu ekki lengur eða eitt­hvað. Og þá putt­aði hann mig. Ég hágrét allan tím­ann. Svo bað hann mig um að runka sér. Ég sagði ekki neitt. Ég bara gerði það. Og eftir það klæddi ég mig“. Í fram­burði Y kemur einnig fram, að þegar hún hafi verið að klæða sig hafi hún orðið vör við blóð á lík­ama sínum, fötum og í sæti bif­reið­ar­innar. Hafi hún þurrkað sér með hand­klæði sem hún hafði með­ferðis. 

Unga stúlkan fór í skoðun hjá lækni tveimur dögum eftir nauðg­un­ina:

Í mál­inu liggur frammi grein­ar­gerð J kven­sjúk­dóma­læknis og K, barna­læknis, dags. 30. sept­em­ber 1993, varð­andi Y. Grein­ar­gerðin er svohljóð­andi: “ Um er að ræða 13 ára gamla stúlku sem er inn­lögð á Barna­spít­ala Hrings­ins að beiðni heilsu­gæslu­lækna á B þ. 01 09 93 til rann­sóknar vegna nauðg­unar sem stúlkan mun hafa orðið fyrir 27.08.93. Mun ekki hafa látið for­eldra eða neinn annan vita um atburð­inn fyrr en 2 dögum fyrir komu á deild­ina og rann­sókn þá strax hafin. 

Stúlkan hefur eðli­lega fyrri heilsu­fars­sögu, blæð­ingar hófust fyrir um það bil 1 ári og hafa verið nokkuð reglu­legar. 

Daginn eftir komu fór stúlkan í kven­fræði­lega skoðun hjá J, kven­sjúk­dóma­lækni. Í sam­tali við hana upp­lýsir stúlkan að mað­ur­inn hafi farið með getn­að­ar­lim­inn upp í leggöng, það hafi verið slæmt og blætt. Veit ekki hvort um sáð­lát hafi verið að ræða, telur að hann hafi ekki notað verjur.

Jóhann Rúnar var fund­inn sekur um að hafa brotið kyn­ferð­is­lega gegn 13 ára stúlku­barni:

DÓMSORÐ: 

Ákærði, X sæti fang­elsi í fjóra mán­uði, en fresta skal fulln­ustu þriggja mán­aða af refs­ing­unni og sá hluti hennar niður falla, að liðnum þremur árum frá upp­kvaðn­ingu dóms þessa, haldi ákærði, almennt skil­orð 57. gr. almennra hegn­ing­ar­laga nr. 19/1940, sbr. 4. gr. laga nr. 22/1955. 

Ákærði greiði allan sak­ar­kostnað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi