Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi

Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

„Við erum ekki öðruvísi fólk“

Reynir Pétur opnar sig í ein­lægu við­tali

„Við erum ekki öðruvísi fólk“
Reynir Pétur Stein­unn­ar­son Mynd: Golli

Reynir Pétur Stein­unn­ar­son vakti þjóð­ar­at­hygli árið 1985 þegar hann gekk hring­inn í kringum Ísland. Með göng­unni vildi hann meðal ann­ars vekja athygli á mál­efnum fatl­aðs fólks og safna fé til bygg­ingar nýs íþrótta­húss á Sól­heimum.

Reynir Pétur fædd­ist heil­brigður en veikt­ist af heila­himnu­bólgu aðeins nokk­urra mán­aða gam­all. Tæplega fjög­urra ára flutti hann að Sól­heimum, þar sem hann hefur átt heima allar götur síðan.

Í við­tali við Mannlíf lítur Reynir Pétur yfir far­inn veg og ræðir meðal ann­ars æsku­árin, lífið á Sól­heimum og göng­una eft­ir­minni­legu sem gerði hann þjóð­þekktan. Þá segir hann frá fálka­orð­unni og ræðir af ein­lægni um dauð­ann og við­horf sitt til hans.

Viðhorf til fatlaðra breyttist

Hann er þjóð­hetja.

„Já, þú veist það. Þetta vakti athygli. Þetta fór að lag­ast. Allt þetta sem er bara fjandi gott. Pen­ing­ur­inn var ekki allt. Það var með. Fólk var alltaf að spyrja. Hvað eru sjö millj­ónir í dag? Ég segi bara sjö millj­ónir eru sjö millj­ónir stærð­fræði­lega. Ég svara alltaf tungu­máli stærð­fræð­innar. Aftur á móti segi ég hver er stand­ar­dinn í dag, þessar sjö millj­ónir sem þú fékkst til að byggja þetta hús þá? Hvað kostar að byggja þetta hús í dag? Ég veit ekki nákvæm­lega hvað það myndi geta kostað.“

Reynir Pétur seg­ist hafa öðl­ast meira sjálfs­traust í tengslum við göng­una.

„Ég var með mjög mikla minni­mátt­ar­kennd áður og þetta hefur aldeilis sparkað mér upp úr skónum. Gaf mér alveg feitan bita. Þetta var bara kikk. Þetta var rosa­lega mikil gjöf. Auðvitað voru Sól­heimar heppnir að ég gerði þetta sem er nátt­úr­lega fínt. Svo opn­aði á við­horf fatl­aðra því 1980 fór við­horf fatl­aðra að byrja aðeins að lag­ast. Svo kom göngu­árið 1985 og þá blómstr­aði alveg vel. Og þá fór að vera meiri athygli og meira við­horf. Betra. Það hefur mikið lag­ast sem er mjög gott. Þetta var nán­ast ann­ars flokks fólk. Það liggur við að ég segði það svona. Nánast. En sem betur fer fór þetta að líta á þetta fólk sem bara jafn­ingja. Og ekk­ert öðru­vísi.“

Má kannski segja að Reynir Pétur sé frum­kvöð­ull í að vekja athygli á mál­efnum fatl­aðra?

„Já, það má segja það þó það hafi verið byrjað aðeins. Það var smá svona en svo sprakk. Svo hafa fleiri farið,“ segir hann en fleiri hafa gengið hring­inn til að safna fyrir ákveðin mál­efni.

Það mætti hugsa betur sinn gang,“ segir hann um hið opin­bera og aðstoð við fatl­aða. „Og ég man þegar þeim var sagt að leggja meiri áherslu á að gefa okkur meiri styrk. Og ef ég hef hitt þennan mann þá hefði ég getað sagt: „Það kemur að því að þið verðið fatl­aðir. Passaðu þig bara.“ Ég myndi segja: „Passaðu þig bara.“

Hann hlær. „Ég myndi líta á okkur sem jafn­ingja. Það er ekki munur. Við erum ekki öðru­vísi fólk. Þetta er sama fólkið. Það er eins og ég segi, fólk í heim­inum. Ég lít á allt fólk sem fólk þótt þú sért svartur eða hvítur eða hvort það sé sam­kyn­hneigt eða gagn­kyn­hneigt. Það sem heitir fólk. En það eina sem getur verið skakkt innan um fólk er ef það er einn sem gerir ljóta hluti eins og gerð­ist í Noregi úti í Útey. Ef ég dæi þá væri ég laus við alla ljót­leika heims­ins og öll slys og ham­farir og alla sjúk­dóma og kvilla. Þetta bara vil ég losna við. En aftur á móti myndi ég sakna minna vina og áhuga­málin og trilljón hluti myndi ég sakna. Ég myndi sakna göngut­úr­anna og mynd­list­ina og mús­ík­ina. Ég get ekki talið upp. Það mundi ég. En núna er ég í mús­ík­inni þótt ég hafi tekið þetta meira rólegar heldur en áður.“

Hvað heldur hann að ger­ist þegar fólk deyr?

„Það sem ger­ist, við mætum öll því sama. Við erum kannski mis­mun­andi hrædd þó að fólk trúi mis­mun­andi en það er bara einn sann­leikur en við vitum misnærri honum. Við kristnir þykj­umst svona vita best. Það er alltaf verið að tala um svört göng og að það birt­ist ljós­bjarmi. Það er mikið talað um svona. Ég held að það sé mjög nálægt sann­leik­anum ef ekki bara sann­leik­ur­inn sjálfur. En alla­veg­ana mætum við saman. Guð fyr­ir­gefur allar syndir. Ef ég hef verið vondur maður þá iðr­ast ég og hann fyr­ir­gefur mér. En það sem mín refs­ing er, ef ég hef gert ljótt; segjum að ég drap hund­rað manns sem dæmi og ég er settur í fang­elsi. Þá er mín refs­ing þannig að þú ert ekki frjáls í fang­elsi. Þú þarft að dúsa þetta í x ár. Og þegar ég er kom­inn yfir, ég held að allar syndir eru fyr­ir­gefnar. Og ég held það komi að því að þú iðrist gjörða þinna. Ég trúi varla að mann­eskja sé til sem er algjör­lega svört upp frá höfuð niður til táa. Hún hljóti að kom­ast að því að hún verði að iðr­ast. Þetta getur ekki passað.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Myndir
Fólk

Selja frið­lýst ein­býli með stór­kost­legu útsýni

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Myndir
Fólk

DeLorean-tíma­vél rúll­aði um götur Reykja­víkur