1
Innlent

„Þá er Kringlan komin á feitan bannlista“

2
Fólk

Daði og fjölskylda á ferð um landið

3
Innlent

Húsnæðislaus eftir niðurrif í Borgartúni

4
Heimur

Móðir Ben Needham hafnar kenningu lögreglu

5
Fólk

Gulla Jónsdóttir sópar að sér verðlaunum

6
Innlent

Kallaði til lögreglu vegna ástands hundapassara

7
Fólk

Nýtt upphaf eftir skilnað

8
Pólitík

Sigmundur Davíð jarmar um Þorgerði Katrínu

9
Heimur

Krefst rannsóknar á tengslum Barrons Trump við Tate-bræðurna

10
Innlent

Rússneskur auðjöfur vígði miðstöð gyðinga

Til baka

Salerniraðstöðu rústað á tjaldstæðinu í Hvammsvík

„Það var búið að brjóta vask, hillur, spegil og rífa ofn frá veggnum.“

Skemmdir
SkemmdirnarAnnað salernið var lagt í rúst
Mynd: Aðsend

Salernisaðstaða við tjaldsvæðið í Höfðavík á Hallormsstað varð fyrir töluverðum skemmdum í vikunni eftir að óprúttinn aðili eða aðilar réðust á aðstöðuna. Ekki liggur fyrir hver eða hverjir stóðu að skemmdunum, en skógarvörður segir miður að sameiginleg aðstaða sé misnotuð með þessum hætti.

Með auknum gestafjölda á vorin var ákveðið að opna salernin fyrr en ella, þrátt fyrir að tjaldsvæðið sjálft sé ekki komið í fullan rekstur. Einnig var ærslabelgur settur upp á svæðinu til að mæta aukinni aðsókn.

„Við reynum yfirleitt að koma þessari þjónustu í gang um þetta leyti árs. Fólk kemur mikið á sumardaginn fyrsta til að ganga um skóginn og við viljum geta þjónustað það,“ segir Bergrún Arna Þorsteinsdóttir, aðstoðarskógarvörður í samtali við Austurfrétt.

Þegar starfsfólk skoðaði aðstöðuna síðar kom í ljós að verulegar skemmdir höfðu verið unnar. „Það var búið að brjóta vask, hillur, spegil og rífa ofn frá veggnum. Í raun var öðru salerninu af tveimur rústað,“ segir Bergrún.

Grunur leikur á að hópur fólks hafi verið á svæðinu um kvöldið áður, en ekkert óeðlilegt sást þá. Ekki er þó vitað hvort sá hópur tengist skemmdunum og engar frekari upplýsingar liggja fyrir um mannaferðir eftir það.

„Við vonumst til að þeir sem ollu skemmdarverkum sýni þann heiðarleika að koma og ræða við okkur. Við tökum vel á móti þeim.“

Skemmdirnar fela í sér kostnað fyrir Land og skóg, sem ber ábyrgð á svæðinu. Bergrún leggur áherslu á að um sameign sé að ræða sem allir eigi að ganga vel um.

„Fyrst og fremst þýðir þetta kostnað fyrir Land og skóg. Við treystum á að fólk gangi vel um svæðið og eyðileggi ekki eigur stofnunarinnar, sem er í eigu okkar allra.“

Hitt salernið er enn nothæft og verður opið yfir helgina. Gert er ráð fyrir að viðgerðir fari fram á næstu dögum, enda styttist í að tjaldsvæðið verði opnað formlega.

„Við byrjum að opna tjaldsvæðið um næstu mánaðamót. Við erum að bíða eftir að grasflatirnar þorni.“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Ófremdarástand í landamæraeftirliti á Keflavíkurflugvelli
Innlent

Ófremdarástand í landamæraeftirliti á Keflavíkurflugvelli

Nýtt kerfi veldur miklum töfum
Hreinsuðu íslenskar fjörur í fríinu sínu
Myndir
Innlent

Hreinsuðu íslenskar fjörur í fríinu sínu

Kallaði til lögreglu vegna ástands hundapassara
Innlent

Kallaði til lögreglu vegna ástands hundapassara

Húsnæðislaus eftir niðurrif í Borgartúni
Innlent

Húsnæðislaus eftir niðurrif í Borgartúni

„Þá er Kringlan komin á feitan bannlista“
Innlent

„Þá er Kringlan komin á feitan bannlista“

Jarðskjálftahrina á Reykjaneshrygg
Innlent

Jarðskjálftahrina á Reykjaneshrygg

Krefst rannsóknar á tengslum Barrons Trump við Tate-bræðurna
Heimur

Krefst rannsóknar á tengslum Barrons Trump við Tate-bræðurna

Sigmundur Davíð jarmar um Þorgerði Katrínu
Pólitík

Sigmundur Davíð jarmar um Þorgerði Katrínu

Þrettán ára drengur ákærður fyrir skotárás í Svíþjóð
Heimur

Þrettán ára drengur ákærður fyrir skotárás í Svíþjóð

Gulla Jónsdóttir sópar að sér verðlaunum
Myndir
Fólk

Gulla Jónsdóttir sópar að sér verðlaunum

Halla Tómasdóttir í góðum gír á Hömrum
Myndir
Landið

Halla Tómasdóttir í góðum gír á Hömrum

Landið

Halla Tómasdóttir í góðum gír á Hömrum
Myndir
Landið

Halla Tómasdóttir í góðum gír á Hömrum

Nyrsta skátamiðstöð í heimi iðar af lífi
Leiðsögumenn ósáttir við aðbúnað
Landið

Leiðsögumenn ósáttir við aðbúnað

Netárás lamaði heimasíður fjölmargra aðila á Austurlandi
Landið

Netárás lamaði heimasíður fjölmargra aðila á Austurlandi

Margrét Helga valin fram yfir Jón Stefán og Ernu Björt
Landið

Margrét Helga valin fram yfir Jón Stefán og Ernu Björt

Ótrúlegt verð á pylsu í Vík í Mýrdal
Landið

Ótrúlegt verð á pylsu í Vík í Mýrdal

Mynt frá tíma Ólafs kyrra fannst í fornleifauppgreftri á Skaga
Myndir
Landið

Mynt frá tíma Ólafs kyrra fannst í fornleifauppgreftri á Skaga

Loka auglýsingu