Valur Gunnarsson
„Getur ekkert gert nema reynt að hefna sín á óbreyttum borgurum.“
Valur Gunnarsson
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Pólitík

Þor­gerður svar­aði Sigmundi fullum hálsi eftir frammí­kall á Alþingi

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Pólitík

Guð­mundur Ingi greindi frá „einum léleg­asta laga­brand­ara“ Alþingis

Fólk

Fyrrum for­stjóri selur hús með heims­frægan fyrr­ver­andi eig­anda

Innlent

Segir hús­næð­is­mark­að­inn vera „eina stóra svika­myllu“

Innlent

„Ég valdi ekki bílslysið, krabba­meinið eða fötl­un­ina“

Fólk

Flúði Talibana fimm ára en hlaut íslensku­verð­laun þremur árum seinna

Heimur

„Ein­hyrn­ingur“ fannst í Eist­landi

Guðnakleif á Glissu til heiðurs forsetanum

Unnarskarð í Glissu. Leiðin upp í gegnum klettabeltið.
Unn­ar­skarð í Glissu. Leiðin upp í gegnum kletta­beltið. Mynd: Reynir Traustason

Guðni Th. Jóhann­es­son, for­seti Íslands, er lík­lega eini þjóð­höfð­ingi lands­ins sem klifið hefur fjallið Glissu sem

Glissa er tign­ar­legt V-laga fjall. Göngu­leið upp er hægra megin á mynd­inni.

stendur á mörkum Reykja­fjarðar syðri og Ing­ólfs­fjarðar í Árnes­hreppi. Guðni gekk á fjallið á dög­unum í boði Ferða­fé­lags Íslands. Við það tæki­færi var hann sæmdur gull­merki félags­ins fyrir stuðn­ing við félagið og úti­vist almennt. Þá þykir Guðni hafa sinnt lýð­heilsu­m­álum af alúð. Ferða­fé­lag Íslands stik­aði þann hluta leið­ar­innar árið 2019 sem er utan vegar fyrir nokkrum árum. Félagið hefur farið með nokkur hund­ruð manns á fjallið allt frá árinu 2017.

Páll Guð­munds­son, fram­kvæmda­stjóri Ferða­fé­lags Íslands, afhendir Guðna for­seta gull­merki félags­ins.

Glissa þykir vera dul­magnað fjall. Tilgáta er um að ein­stakt nafn fjalls­ins sem er í lag­inu eins og V sé dregið af orð­unum gleið skessa. Á hæsta tindi Glissu í 714 metra hæð er kletta­borg þaðan sem þver­hnýpi er suður af. Guðni for­seti stillti sér upp ofan við þver­hnýpið án þess að sýna minnstu merki um ótta. Efsti drangur Glissu var við það tæki­færi nefndur Guðnak­leif til heið­urs for­set­anum.

Erfitt fyrir lofthrædda

Göngu­leiðin á Glissu er nokkuð þægi­leg en löng. Alls er leiðin um 13 kíló­metrar, fram og til baka. Hækkun er um 500 metrar. Lagt er upp frá Eyr­ar­hálsi sem tengir Ing­ólfs­fjörð og Tré­kyllis­vík. Framan af liggur göngu­leiðin um svo­nefndan Smalaveg sem liggur upp á Tré­kyll­is­heiði og þaðan alla leið á Bjarn­ar­fjarð­ar­háls. Leiðin liggur um Staura­brekku við rætur Eyr­ar­fjalls sem tígu­legt stendur við hlið Glissu. Á hæð­inni tekur við stikuð leið alla leið á efsta tind Glissu. Leiðin liggur um melöldur og var áður villu­gjörn í þoku. Farið er ofan við gil við fjalls­rætur. Leiðin í gegnum skörð­ótta kletta­borg er nokkuð torfar­inog reyn­ist loft­hræddum gjarnan erfið. Hún nefn­ist Unn­ar­skarð til heið­urs Unni Pálínu Guð­munds­dóttur frá Mun­að­ar­nesi  sem kynnti grein­ar­höf­undi þessa göngu­leið. Gjarnan er sett upp lína þar til að tryggja öryggi fólks.

Guðni Th. á Guðnak­leif ásamt göngu­fé­laga.

Ofan við Unn­ar­skarð er leiðin á topp­inn greið. Í björtu er útsýni af Glissu alla leið norður á Horn­bjarg og suður að Eiríksjökli. Enginn sem stígur fæti á efsta tind Glissu er ósnort­inn. Glissa a er sann­kölluð drottn­ing Árnes­hrepps.

Við upp­öngu­stað­inn á Glissu.
Unnur Pálína Guð­munds­dóttir og Guðrún Gunn­steins­dóttir í fyrstu ferð Ferða­fé­lags­ins á Glissu.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Sigríður Nanna Heimisdóttir segir skólann vinna að úrlausn málsins og býður nemendum sem urðu vitni að atvikinu samtal.
Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Innlent

Bens­ín­verð hækkar hér á landi á meðan heims­mark­aðs­verð lækkar

Pólitík

„Það er eng­inn öruggur í sam­fé­lagi þar sem stjórn­málin leit­ast við að keppa í grimmd“

Heimur

Setti bráð­skemmti­legt heims­met

Landið

Landið

Leifar af skála frá land­náms­tíma fund­ust á Aðalbóli

Fornleifafræðingur telur minjarnar geta varpað ljósi á búsetu í Hrafnkelsdal á fyrstu öldum Íslandsbyggðar.
Landið

Sváfu undir berum himni og heill­uð­ust af íslenska hálend­inu

Landið

Andri Snær rifjar upp fórn­irnar sem fylgdu Kára­hnjúka­virkjun

Landið

Leð­ur­blakan í Fellabæ enn ófundin

Landið

Leð­ur­blaka sást á flugi í Fellabæ

Landið

Öllu starfs­fólki Heil­brigð­is­eft­ir­lits Aust­ur­lands sagt upp