Valur Gunnarsson
„Getur ekkert gert nema reynt að hefna sín á óbreyttum borgurum.“
Valur Gunnarsson
Peningar

Prett­yboitjokkó stofnar fyr­ir­tæki með fyrrum lands­liðs­manni

Peningar

Elís seg­ist hafa tapað 100 millj­ónum í við­skiptum við fjár­festa

Innlent

„Börn eiga ekki að þurfa að bera afleið­ing­arnar“

Pólitík

Segir flokks­menn Guðrúnar und­ir­búa mót­fram­boð gegn henni

Fólk

„Mér líður gjör­sam­lega djöf­ul­lega“

Innlent

Fékk aldr­aðan mann til að selja rað­hús skömmu fyrir and­lát

Fólk

Selja ein­býli með turn­stofu og verð­launa­garði

Innlent

Ferðin til Írlands tók óvænta stefnu á Kefla­vík­ur­flug­velli

Fólk

Ragnar Bragason birti mynd­band af dul­ar­fullum ljósum yfir Sunda­höfn

Innlent

Álft skotin á Víði­staða­túni

Bresk leikkona segist vera fórnarlamb Jimmy Savile: „Þú þekkir mig, sestu við hliðina á mér“

Viðbjóðurinn Jimmy Savile.
Við­bjóð­ur­inn Jimmy Savile.

Breska leik­konan Daniella Westbrook hefur nú opnað sig og sagt frá því að þátta­stjórn­and­inn og barn­a­níð­ingnum Jimmy Savile hafi mis­notað hana.

Fyrrum leik­kona EastEnd­ers þátt­anna seg­ist hafa verið mis­notuð sem barn frá níu til 14 ára ald­urs og hafa staðið oft augliti til auglitis við suma ofbeld­is­menn­ina síðar á ævinni. Í ein­lægu við­tali sagði hin 51 árs gamla leik­kona að Savile hafi einu sinni beðið hana um að sitja við hlið sér á meðan hún kom fram í írskum spjall­þætti, sem hún neit­aði að gera.

Daniella Westbrook

Í nýju við­tali sagði hún frá því hvernig hún hélt opin­ber­un­inni leyndri þar sem hún ótt­að­ist að það að deila því sem hafði gerst myndi fá hana til að vilja binda enda á líf sitt. Þegar hún var spurð hvort hún hefði séð ein­hvern af ofbeld­is­mönnum sínum þegar hún var orðin eldri sagði Westbrook: „Já. Ég fór í þátt í Belfast, spjall­þátt, þeir reyndu að láta mig sitja við hlið­ina á Jimmy Savile.

„Hann sagði „Komdu hingað Danni­ella, þú þekkir mig, sestu við hlið­ina á mér,“ og ég sagði „Ég myndi ekki sitja við hlið­ina á þér ef ég væri að deyja“ … hann var einn af þeim,“ sagði hún í við­tali í The Lewis Nicholls Show þætt­inum. Fyrrum BBC þátta­stjórn­and­inn Savile var  afhjúp­aður sem barn­a­níð­ingur, nauð­gari og raðmis­not­ari eftir dauða hans.

Nýlega hefur enn og aftur verið sagt frá raun­veru­legu umfangi hrylli­legra glæpa hans gegn ung­lings­stúlkum, ungum konum, yngri stúlkum, drengjum, veiku fólki, fötl­uðu fólki og jafn­vel látnum í BBC þátta­röð­inni, The Reckoning þar sem leik­ar­inn ​​Steve Coogan tekst á við hlut­verk sitt sem hinn við­ur­styggi­legi kyn­ferð­is­af­brota­maður.

Árið 2000 upp­lýsti Savile heim­ilda­þátta­kon­ung­inn Louis Theroux að hann hefði átt nokkrar kærustur á lífs­leið­inni. En árið 2001, aðeins einu ári eftir að heim­ild­ar­mynd hans kom út, hitti hann tvær konur, á fer­tugs­aldri, sem ját­uðu að vera kær­ustu Savile, en önnur þeirra var aðeins 15 ára þegar þau voru í sam­bandi.

Á hinu alræmda geð­sjúkra­húsi Broadmoor sagði einn hjúkr­un­ar­fræð­ingur við rann­sak­anda að Savile hefði montað sig á að hafa „fífl­ast með“ sumum lík­unum í lík­hús­inu en Savile ving­að­ist við yfir­menn og starfs­menn sjúkra­húsa á borð við Broadmoor til að fá aðgang að sjúk­lingum, undir því yfir­skyni að hann kæmi þangað til a’ skemmta og heim­sækja sjúk­ling­ana. Rannsókn leiddi síðar í ljós að áhugi hans á látnu fólki hefði ekki verið „innan við­ur­kenndra marka“.

Savile lést 84 ára að aldri í októ­ber 2011. Í gegnum allan fer­il­inn stóð Savile frammi fyrir fjölda ásök­unum um kyn­ferð­is­of­beldi en fyrsta þekkta málið var skoðað árið 1958, en ekki þóttu vera nægar sann­anir til að fara lengra með það.

Eftir dauða hans voru ásak­anir, þær elstu frá árinu 1963 gerðar á hendur honum og opin­ber rann­sókn hófst árið 2012. Í októ­ber sama ár sagði lög­reglan að hún væri að skoða 400 ábend­ingar og að fjöldi meintra fórn­ar­lamba væri um 450.

The Mirror sagði frá mál­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

„Ein­hyrn­ingur“ fannst í Eist­landi

Myndavél sem sett var upp til að fylgjast með minkum á Saaremaa náði einnig myndum af „einhyrningnum“
Innlent

Segir hús­næð­is­mark­að­inn vera „eina stóra svika­myllu“

Pólitík

Guð­mundur Ingi greindi frá „einum léleg­asta laga­brand­ara“ Alþingis

Heimur

Lítið fyr­ir­bæri í geimnum vekur stórar spurn­ingar

Pólitík

„Það er kapps­mál að gera það að aðlað­andi kosti að flytja á lands­byggð­ina“

Heimur

Heimur

Telja sig hafa náð for­sögu­legri flug­eðlu á mynd­band í Mexíkó

Yfirmaður almannavarna í Ciudad Juárez segir myndskeiðin stafræna afþreyingu sem eigi sér enga stoð í raunveruleikanum.
Heimur

Lög­reglan lagði hald á þús­undir ólög­legra kyn­lífs­vara á Kanarí­eyjum

Heimur

Loch Ness-skrímslið sést oftar í ár en í fyrra

Heimur

Íran vísar á bug fréttum um áform um efna­vopna­árás í Banda­ríkj­unum

Heimur

Móðir fékk son sinn aftur eftir ólýs­an­lega martröð

Heimur

Björn réðst á mann í Japan