Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Í fréttum var þetta helst – Veikindi, vefja, Efling og fleiri sögur

Samsett mynd
Samsett mynd

Veikinda­leyfi Kristjáns framlengt um þrjár vikur: „Hoppandi út um allar koppa­grundir á okkar kostnað“

Kristján Þór Magn­ús­son

Eins og Mannlíf greindi fyrst frá er Kristján Þór Magnússon, sveitar­stjóri Norður­þings, í veikinda­leyfi af ótilgreindum ástæðum. Veikinda­leyfi hans hefur nú verið framlengt.

Kristján Þór er kvæntur fyrr­verandi fjölmiðla­konunni Guðrúnu Dís Emils­dóttur, en eins og Mannlíf greindi frá þá herma heimildir að hún sé að pakka niður og undirbúa flutning frá Húsavík.

Guðrún Dís Emils­dóttir

Tekið skal fram að Mannlíf hefur ekki fengið staðfest hvað veldur því að hún hyggst flytja á brott. Í samtali við blaðamann Mannlífs vildi Guðrún Dís ekki staðfesta hver ástæðan væri.

Stefán Guðmundsson, eigandi hvala­skoðunar­fyrir­tækisins Gentle Giants á Húsavík, sagði eftir­farandi í frétt Mannlífs sem virðist renna stoðum undir að eitthvert ólag sé á einkalífi Kristjáns Þórs:

„Enda býsna fjöl­breytt að því er virðist á hvaða forsendum starfs­menn stjórn­lauss stjórnsýslu­hússins fara í svokallað veikinda­leyfi undan­farnar vikur á fullum launum eftir því sem mér skilst best og mánuðum saman … og gjarnan tengt svokallaðri „kulnun“ í starfi. En eru um leið hoppandi og skoppandi út um allar koppa­grundir á okkar kostnað. Svo er hitt. Sumir virðast ekki geta skilið á milli pólitíkur og einkamála. Hafa ekkert endilega greind eða vilja til þess. Þá verður gjarnan til hræri­grautur skrítinna tilfinninga og skoðana­skipta. Skoðun mín á bæjar­stjóra og hans framgöngu undan­farin ár er óbreytt. Meira síðar. En ef hann á um sárt að binda í sínu einkalífi og veikinda­leyfi – þá óska ég honum alls hins besta og góðs bata.“

Sjá alla fréttina: Veikinda­leyfi Kristjáns framlengt um 3 vikur: „Hoppandi út um allar koppa­grundir á okkar kostnað“

Reynir og nafnlausa blaða­konan: „Fæ oft skilaboð í þessum dúr frá vinkonum sem ég hef sofið hjá“

„Reglulega fæ ég skilaboð í þessum dúr frá gömlum vinkonum sem ég hef sofið hjá eitthvertíman á lífs­leiðinni … Þar sem þær eru spurðar um kynlífið með mér eða hvort við höfum sofið saman“

Þannig hefst pistill Reynis Bergmann, eiganda veitinga­staðarins Vefjunnar, sem hann birti á Facebook-síðu sinni fyrir nokkru.

Pistli Reynis fylgja skjáskot sem hann segir koma frá vinkonu sinni og innihaldi sendingar frá ónefndri blaðakonu til hennar. Auk þess eru meðfylgjandi skjáskot af spjalli Reynis við vinkonuna í gegnum samskipta­forritið Snapchat, þar sem kemur fram að hún heiti Guðrún.

Skjáskot af spjalli Reynis og Guðrúnar á Snapchat.

Samtal Reynis og Guðrúnar á Snapchat:

Guðrún:

„Hvað seigir frægasti vinur minn ?“ 

Reynir:

„Frægasti ojjj þetta orð

Nei annars er ég bara flenni fín en hvernig er Gunnsan mín ?“ 

Guðrún:

„Haha bara stríða þér

En mig langar að seigja þér eitt það var stelpa að senda mér skilaboð og reyna að spurja mig hvort þú hafir verið vondur við mig eitthvertíman haha“ 

Reynir:

„Haaa ? Ertu ekki að djóka eitthvað að þessu me2 hreyfingu kannski ? Þetta er vel þreytt

Þeir/þær/það eru búnin að senda á fleirri vinkonur mínar sem ég hef sofið hjá og nánast beðið þær um að finna eitthvað til að kæra mig og koma fram obinberlega sjúkasta sem ég hef séð bara til að níðast á mer af því eg sagði ovart fukk you bla bla

Má ég spyrja áttu þetta viltu senda mer það

Gunnsa plís það þarf að stoppa þessa plönuðu glæpa­vinnubrögð hjá þeim á fólk sem á það ekki skilið“

Sjá alla fréttina: Reynir og nafnlausa blaða­konan: „Fæ oft skilaboð í þessum dúr frá vinkonum sem ég hef sofið hjá“

Tvær sögur af Þóri Sæmunds­syni: „Hann vissi allan tímann að hann var að tala við barn“

Þórir Sæmunds­son. Mynd/skjá­skot RÚV

„Ég var 17 ára þegar hann byrjaði að senda óviðeigandi skilaboð á Facebook,“ segir í frásögn ungrar konu sem lýsir þar reynslu sinni af samskiptum við Þóri Sæmundsson, sem kom fram í viðtali í frétta­skýringa­þættinum Kveik í gær. Mannlíf fékk söguna senda og er hún birt með góðfús­legu leyfi konunnar.

Eftir­farandi frásagnir eru einhliða og því birtar með fyrirvara. Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir náðist ekki í Þóri Sæmundsson við vinnslu fréttarinnar.

Konan segir frá því hvernig þau Þórir hafi á þessum tíma leikið saman í sýningu. Þar var hann í aðal­hlutverki en hún tilheyrði barnahópi í leik­ritinu og var, eins og áður sagði, enn barnung þegar samskipti þeirra hófust.

Hún segir frá því hvernig hún hafi seinna meir hitt hann á bar og farið heim með honum, þá orðin 18 ára gömul. Þau hafi í fram­haldinu sofið saman.

„Þar sagði hann meðal annars að ég væri svo ung og saklaus.“

Hún lýsir því hvernig hann hafi seinna falast eftir því við hana og aðra stúlku, þá 17 ára, að þær kæmu heim með honum og þau færu í trekant (threesome). Hann hafi reynt að selja hugmyndina með því að segja stelpunum að hann ætti mjög mikið af grasi.

Stuttu seinna hafi hún og tvær vinkonur hennar, þær allar á aldrinum 17-18 ára, átt í Snapchat-samskiptum við Þóri, þar sem hún segir hann ýmist hafa sent myndir af typpinu á sér eða beðið þær um að koma til sín í kynlífs­orgíu (foursome).

„Á þessum tíma var ég mjög ung og leit upp til eldri og reyndari manns sem naut virðingar í leikhúsi og sjónvarpi og var upp með mér að fá athygli frá honum og að hann vildi sofa hjá mér. En þegar ég lít til baka núna finnst mér þetta allt mjög ógeðslegt og að hugsa til þess að ég hafi verið rétt skriðin yfir 17 ára aldur og varla komin með brjóst eða búin með kynþroskann.“

Sjá alla fréttina: Tvær sögur af Þóri Sæmunds­syni: „Hann vissi allan tímann að hann var að tala við barn“

Sólveig tjáir sig um hótanir: „Kallaði mig alltaf „konuna“ þegar hann var að úthúða mér sem fífli“

Sólveig Anna Jóns­dóttir.

Frá því að Sólveig Anna Jóns­dóttir ákvað frá að hverfa sem formaður Eflingar hefur hún gefið út sex yfir­lýsingar á Facebook-síðu sinni.

Þær snerta allar brott­hvarf hennar og þær ástæður sem hún segir liggja þar að baki. Sömuleiðis fjalla þær um átök og deilur innan skrif­stofu Eflingar.

Sólveig Anna hefur ekki enn viljað tala beint við fjölmiðla. Hún hafnaði því til að mynda að mæta í Kastljós fyrir nokkru.

Í nýjustu yfir­lýsingu sinni kemur Sólveig meðal annars inn á þær hótanir sem hún segist hafa orðið fyrir af hálfu starfs­manns Eflingar.

„Í ályktun trúnaðar­manna starfs­fólks skrif­stofu Eflingar frá því í sumar var því haldið fram að ég hefði stöðugt í hyggju eða væri búin að framkvæma fyrirvara­lausar uppsagnir.

Fyrirvara­laus uppsögn er talið mjög alvarlegt brot á launa­manni hafi atvinnu­rekandi ekki fyrir henni mjög góðar ástæður svo sem að launa­maður hafi sýnt stórkostlegt gáleysi, hafi rækt störf sín með verulega ófullnægjandi hætti eða gerst alvarlega brotlegur í starfi,“ segir Sólveig Anna í sjöttu yfir­lýsingu sinni sem hún birti á Facebook-síðu sinni.

„Ég hugsa að ég hefði getað framkvæmt fyrirvara­lausa uppsögn á þeim manni sem hótaði því að koma heim til mín og gera mér mein þegar ég fékk um hótunina vitneskju 13. október síðastliðinn. Það gerði ég þó ekki. Hann var ekki einu sinni áminntur.

Hvers vegna ákvað ég að gera ekkert? Vegna þess að mér var tilkynnt að manneskjan sem hann upplýsti um langanir sínar til að fara heim til mín og gera mér illt (sem hann myndi komast upp með vegna þess að hann væri með hreina sakaskrá og yrði því ekki dæmdur til fangelsis­vistar) vildi ekki, þrátt fyrir að vera svo brugðið við orð þess sem hótaði að hún leitaði með áhyggjur sínar til annars trúnaðar­manns starfs­fólks skrif­stofunnar og allavega eins annars starfs­manns, standa með mér vegna þess að hún vildi „vernda vinnu­samband sitt samstarfs­félaga sinn til margra ára“.

Smelltu hér til að lesa brakandi feskt helgar­blaðið eða flettu því hér fyrir neðan:

Sjá alla fréttina: Sólveig tjáir sig um hótanir: „Kallaði mig alltaf „konuna“ þegar hann var að úthúða mér sem fífli“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Húsfélagi óheimilt að rukka skrópara

Ágreiningur um þrif, ræstiþjónustu og myndavélar í sameign fór fyrir kærunefnd
Fólk

Fimm ráð Kristjönu til að halda á sér hita í vetur

Innlent

Mál vegna gruns um kynferðis­brot í Garðaseli fellt niður

Innlent

Kveikti í íbúð með vél úr mótor­hjóli

Fólk

„En svo lenti ég í því að eignast mann“

Innlent

Eftir­lýstur maður óvænt gripinn

Lögreglan hafði hendur í hár hans

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli