Inga Sæland
„Hrein og klár mannvonska og borgarstjórn til ævarandi skammar“
Inga Sæland
Peningar

Prett­yboitjokkó stofnar fyr­ir­tæki með fyrrum lands­liðs­manni

Peningar

Elís seg­ist hafa tapað 100 millj­ónum í við­skiptum við fjár­festa

Innlent

„Börn eiga ekki að þurfa að bera afleið­ing­arnar“

Pólitík

Segir flokks­menn Guðrúnar und­ir­búa mót­fram­boð gegn henni

Fólk

„Mér líður gjör­sam­lega djöf­ul­lega“

Innlent

Fékk aldr­aðan mann til að selja rað­hús skömmu fyrir and­lát

Fólk

Selja ein­býli með turn­stofu og verð­launa­garði

Innlent

Ferðin til Írlands tók óvænta stefnu á Kefla­vík­ur­flug­velli

Fólk

Ragnar Bragason birti mynd­band af dul­ar­fullum ljósum yfir Sunda­höfn

Innlent

Álft skotin á Víði­staða­túni

Elvar á Ítalíu svarar Eflingu: „Höfum enga opinbera styrki fengið vegna Covid“

Ítalía Restaurant
Ítalía Restaur­ant Mynd: Facebook

Eigandi veit­inga­stað­ar­ins Ítalíu harmar mót­mæli Eflingar og að and­lit hans hafi verið á spjöldum mót­mæl­enda.

Elvar Ingi­mars­son, eig­andi veit­inga­stað­ar­ins Ítalía, sem mikið hefur verið í fréttum und­an­farið en Mannlíf sagði fyrst fjöl­miðla frá erf­ið­leikum starfs­fólks Ítalíu vegna van­gold­inna launa, í maí á þessu ári.

Sjá einnig: Eigandi Ítalíu skuldar starfs­fólki laun: „Ég trúi ekki að þetta sé að ger­ast á Íslandi“

Efling, með Sólveigu Önnu Jóns­dóttur í far­ar­broddi mót­mæltu í gær fyrir utan Ítalíu og veif­uðu þar slag­orðum og myndum af eig­anda stað­ar­ins, Elvari Ingi­mars­syni en hann skuldar fjölda starfs­manna laun.

Elvar sendi fjöl­miðlum yfir­lýs­ingu vegna frétta af Ítalíu. Byrjar hann á því að útskýra fjár­hags­vand­ræði veit­inga­stað­ar­ins og tekur fram að stað­ur­inn hafi ekki fengið neinn opin­beran styrk vegna Covid eins og kom fram í ein­hverri frétt­inni, heldur hafi það verið fyrrum eig­endur stað­ar­ins sem fengu þá styrki. Elvar við­ur­kennir í til­kynn­ing­unni launa­skuld sína sem hann segir nema tveimur millj­ónum króna en að unnið sé að því að greiða úr því. Þá segir að mót­mæli Eflingar séu honum „afar þung­bært“ og greini­legt að þeim hafi verið ætlað að skaða rekst­ur­inn og tefja fyrir úrlausn mála.

Hér má lesa frétta­til­kynn­ing­una í heild:

„Vegna frétta um rekstur veit­inga­stað­ar­ins Ítalíu er rétt að

eft­ir­far­andi komi fram.

Ég und­ir­rit­aður Elvar Ingi­mars­son kaupi veit­inga­stað­inn Ítalíu í maí 2023. Fljót­lega eftir kaupin kom fyrsta áfallið við rekst­ur­inn þegar hús­eig­andi á Lauga­vegi ákvað að end­ur­nýja ekki leigu­samn­ing við veit­inga­stað­inn. Af þeim sökum þurftum við að flytja í árs­lok 2023 og flutti veit­inga­stað­ur­inn á Frakka­stíg.

Það er alltaf erfitt að flytja rót­grónn veit­inga­stað í nýtt hús­næði.

Það er líka rétt að árétta að við höfum enga opin­bera styrki fengið vegna Covid eins og fram hefur komið. Þeir styrkir hafa runnið til fyrri eig­anda.

Það hefur verið mjög krefj­andi að reka veit­inga­staði í núver­andi rekstr­ar­um­hverfi, sem ein­kenn­ist af háum vöxtum, verð­bólgu þar sem aðföng hafa hækkað stjórn­laust og hækk­andi launa­kostn­aði.

Erfiðleikar við greiðslu launa

Það er rétt sem komið hefur fram að við höfum lent í nokkrum erf­ið­leikum varð­andi launa­greiðslur til starfs­fólks og vegna launa­tengdra gjalda.  Eins hefur verið erfitt að fá hæft fólk til starfa og hefur það leitt til þess að starfs­manna­velta hefur verið meiri en æski­legt er.  Sem stendur skuldum við um 2 millj­ónir króna í ógreidd laun sem sam­svarar um 2% af þeim launum sem hafa verið til greiðslu á þessu ári. Vinnan við að leysa úr því er í fullum gangi og viljum við biðja um vinnu­frið á meðan sú vinna er í gangi.

Við erum langt í frá eini rekstr­ar­að­ili í veit­inga­geir­anum sem glímir við fjár­hags­vanda og bera tölur um gjald­þrot þess skýr merki. Við ætlum að reyna að takast á við vand­ann og leysa hann en ekki færa hann á nýja kenni­tölu eins og tíðkast gjarnan.

Það er mér afar þung­bært að stétt­ar­fé­lagið Efling kjósi að efna til mót­mæla fyrir utan veit­inga­stað okkar og per­sónu­gera þau með myndum af mér. Til­gang­ur­inn er, að manni sýn­ist, að skaða rekst­ur­inn sem mest þannig að okkur sé ekki kleift að vinna að lausn þess­ara mála og gera upp útistand­andi skuldir.

Elvar Ingi­mars­son
Eigandi Ítalíu“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Fólk

Fyrrum for­stjóri selur hús með heims­frægan fyrr­ver­andi eig­anda

Húsið var reist árið 1931
Innlent

Eigna­spjöll til rann­sóknar í Reykja­vík og Garðabæ

Heimur

Telja sig hafa náð for­sögu­legri flug­eðlu á mynd­band í Mexíkó

Innlent

Valur telur sigur Úkraínu sífellt lík­legri

Innlent

Innlent

Sautján ára piltur sak­felldur fyrir kyn­ferð­is­brot gegn tólf ára stúlku

Við ákvörðun refsingar var litið til þess að pilturinn var sjálfur undir lögaldri þegar brotin voru framin og að meðferð málsins hafði dregist verulega.
Innlent

Leik­fanga­byssu­menn­irnir verða ákærðir

Innlent

Katrín varar við alvar­legri ógn gervi­greindar

Innlent

Grind­verk í Garðabæ varð fyrir barð­inu á óboðnum gesti

Innlent

Átti að mæta á lög­reglu­stöð áður en dag­ur­inn var lið­inn

Innlent

Kven­fanga synjað um náðun þrátt fyrir alvar­leg veik­indi