Valur Gunnarsson
„Getur ekkert gert nema reynt að hefna sín á óbreyttum borgurum.“
Valur Gunnarsson
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Pólitík

Þor­gerður svar­aði Sigmundi fullum hálsi eftir frammí­kall á Alþingi

Pólitík

Guð­mundur Ingi greindi frá „einum léleg­asta laga­brand­ara“ Alþingis

Fólk

Fyrrum for­stjóri selur hús með heims­frægan fyrr­ver­andi eig­anda

Innlent

Segir hús­næð­is­mark­að­inn vera „eina stóra svika­myllu“

Innlent

„Ég valdi ekki bílslysið, krabba­meinið eða fötl­un­ina“

Fólk

Flúði Talibana fimm ára en hlaut íslensku­verð­laun þremur árum seinna

Heimur

„Ein­hyrn­ingur“ fannst í Eist­landi

Krefjast þess að Akureyrarbær hætti með Rapyd: „Bæjarstjórn fordæmir árásir gegn almennum borgurum“

Akureyri –
Akureyri – Mynd: Wikipedia

Und­ir­skrift­ar­söfnun er hafin þar sem kraf­ist er þess að Akur­eyr­ar­bær hætti að nota ísra­elska færslu­hirð­inn Rapyd.

Mikil and­staða hefur verið hér á landi og víðar, við færslu­fyr­ir­tækið Rapyd, sem er ísra­elskt en eig­andi þess hefur opin­ber­lega lýst yfir stuðn­ingi sínum við árásir Ísra­els­manna á Gaza og á Vestu­bakk­anum í Palest­ínu, auk þess sem fyr­ir­tækið hefur aðstoðað Ísra­els­her sér­stak­lega. Fjöldi fyr­ir­tækja hefur skipt um færslu­hirði í kjöl­far síend­ur­tek­inna mann­rétt­inda­brota og þjóð­ar­morðs á Palest­ínu­mönnum og nú er hafin und­ir­skrift­ar­söfnun þar sem þess er kraf­ist að Akur­eyr­ar­bær hætti að nota Rapyd sem færslu­hirði.

Textinn sem fylgir und­ir­skrift­ar­söfn­un­inni er eft­ir­far­andi:

„Við krefj­umst þess að Akur­eyr­ar­bær hætti að nota Rapyd sem færslu­hirði. Færslu­hirðir­inn Rapyd er ísra­elskt fyr­ir­tæki með úti­bú á Íslandi, for­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins hefur opin­ber­lega yfir­lýst stuðn­ing sinn við aðgerðir Isra­els­manna á Gaza og Vest­ur­bakk­anum. Þá hafa fjöl­miðlar í Ísra­el flutt frétt­ir af beinni þátt­töku Rapyd í stríð­inu því fyr­ir­tækið hef­ur sett á stofn sér­staka stríðs­stofu eða „war room“ til að aðstoða Ísra­elska her­inn.“

Fordæma árásir og krefjast vopnahlés

Bæj­ar­stjórn Akur­eyrar sam­þykkti á fundi í fyrra­dag, með 10 atkvæðum á móti einu, að for­dæma árásir gegn almennum borg­urum á Gaza sem og „og önnur ofbeld­is­verk fyrir botni Mið­jarð­ar­hafs sem brjóta gegn alþjóð­legum mann­úð­ar­lögum, með til­heyr­andi þján­ingu og eyði­legg­ingu borg­ara­legra inn­viða,“ eins og segir í bókun sem bæj­ar­full­trúi Fram­sóknar, Gunnar Már Gunn­ars­son lagði fram.

Hér má lesa bókun Gunnars í heild sinni, sem birt­ist á Akureyri.net:

Bæj­ar­stjórn Akur­eyr­ar­bæjar for­dæmir árásir gegn almennum borg­urum á Gaza og önnur ofbeld­is­verk fyrir botni Mið­jarð­ar­hafs sem brjóta gegn alþjóð­legum mann­úð­ar­lögum, með til­heyr­andi þján­ingu og eyði­legg­ingu borg­ara­legra inn­viða. Bæj­ar­stjórn tekur undir með ályktun utan­rík­is­mála­nefndar Alþingis, að kalla eigi eftir taf­ar­lausu vopna­hléi á átökum á svæð­inu af mann­úð­ar­á­stæðum, mann­úð­legri með­ferð á og taf­ar­lausri lausn gísla, aðgengi hjálpar- og mann­úð­ar­sam­taka og að neyð­ar­vistum og lækn­is­að­stoð verði komið til almenn­ings taf­ar­laust. Þá telur bæj­ar­stjórn mik­il­vægt að sveit­ar­fé­lög og rík­is­stofn­anir gangi fram með góðu for­dæmi, m.a. þegar kemur að kaupum á vörum og þjón­ustu. Sjálf­sagt sé að gera þá kröfu til fyr­ir­tækja sem Akur­eyr­ar­bær á í við­skiptum við að þau virði alþjóða­lög í hví­vetna.

Að minnsta kosti 37,182 manns hefur verið drep­inn á Gaza og á Vest­ur­bakk­anum frá 7. októ­ber, þar af að minnsta kosti 15.132 börn. Þá er talið að tugir líka sé að finna undir rústum bygg­inga á Gaza.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Sigríður Nanna Heimisdóttir segir skólann vinna að úrlausn málsins og býður nemendum sem urðu vitni að atvikinu samtal.
Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Innlent

Bens­ín­verð hækkar hér á landi á meðan heims­mark­aðs­verð lækkar

Pólitík

„Það er eng­inn öruggur í sam­fé­lagi þar sem stjórn­málin leit­ast við að keppa í grimmd“

Heimur

Setti bráð­skemmti­legt heims­met

Landið

Landið

Leifar af skála frá land­náms­tíma fund­ust á Aðalbóli

Fornleifafræðingur telur minjarnar geta varpað ljósi á búsetu í Hrafnkelsdal á fyrstu öldum Íslandsbyggðar.
Landið

Sváfu undir berum himni og heill­uð­ust af íslenska hálend­inu

Landið

Andri Snær rifjar upp fórn­irnar sem fylgdu Kára­hnjúka­virkjun

Landið

Leð­ur­blakan í Fellabæ enn ófundin

Landið

Leð­ur­blaka sást á flugi í Fellabæ

Landið

Öllu starfs­fólki Heil­brigð­is­eft­ir­lits Aust­ur­lands sagt upp