Valur Gunnarsson
„Getur ekkert gert nema reynt að hefna sín á óbreyttum borgurum.“
Valur Gunnarsson
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Pólitík

Þor­gerður svar­aði Sigmundi fullum hálsi eftir frammí­kall á Alþingi

Pólitík

Guð­mundur Ingi greindi frá „einum léleg­asta laga­brand­ara“ Alþingis

Fólk

Fyrrum for­stjóri selur hús með heims­frægan fyrr­ver­andi eig­anda

Innlent

Segir hús­næð­is­mark­að­inn vera „eina stóra svika­myllu“

Innlent

„Ég valdi ekki bílslysið, krabba­meinið eða fötl­un­ina“

Fólk

Flúði Talibana fimm ára en hlaut íslensku­verð­laun þremur árum seinna

Heimur

„Ein­hyrn­ingur“ fannst í Eist­landi

Eyktarás er til í Borgarfirði – Dóttir Jónasar heiðraði minningu föður síns

Skiltið sem vísar á bæinn Eyktarás í Reykholtsdal.
Skiltið sem vísar á bæinn Eyktarás í Reyk­holts­dal.

Eitt þekktasta dæg­ur­lag bræðr­anna Jóns Múla og Jónasar Árna­sonar er Einu sinni á ágúst­kvöldi. Textinn er róm­an­tísk lýs­ing á ást­ar­fundi þar sem aðeins voru til vitnis nokkrir þrestir. Í ljóð­inu eru talin upp nokkur þekkt örnefni á borð við Bolabás, Ármanns­fell og Skjald­breið. Eitt örnefni stingur þó í augu en það er Eyktarás sem engar heim­ildir eru til um. Talað er um hraunið fyrir sunnan Eyktarás.

Jónas Árnason.

Reyndin er sú að Eyktarás er aðeins skáld­skapur þar sem texta­höf­undur vísar að sögn í eykt­irnar, sem hver er þrjár klukku­stundir hver og því átta á einum sól­ar­hring.
Löngu eftir að ljóðið var samið var tekið upp götu­nafnið Eyktarás í Reykja­vík. Á síð­asta ári varð svo til bæj­ar­nafnið Eyktarás í Borg­ar­firði. Hús þetta stendur í landi Kópa­reykja en þar bjó höf­und­ur­inn, Jónas Árnason um ára­bil. Dóttir hans, Ingunn Jón­as­dóttir, keypti Kópa­reyki 2 og breytti nafn­inu á 100 ára afmæli Jónasar í Eyktarás til heið­urs föður sínum. Hér má hlusta á ljóð og lag.

Austur í Þingvallasveit

Einu sinni á ágúst­kvöldi,
austur í Þing­valla­sveit
gerð­ist í dulitlu dragi
dulítið sem eng­inn veit,
nema við og nokkrir þrestir
og kjarrið græna inn í Bolabás
og Ármanns­fellið fag­ur­blátt
og fannir Skjald­breiðar
og hraunið fyrir sunnan Eyktarás.
Þó að ævi­árin hverfi
út á tím­ans gráa rökk­ur­veg,
við saman munum geyma þetta ljúfa leynd­ar­mál,
landið okkar góða, þú og ég.
Texti Jónas Árnason.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Sigríður Nanna Heimisdóttir segir skólann vinna að úrlausn málsins og býður nemendum sem urðu vitni að atvikinu samtal.
Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Innlent

Bens­ín­verð hækkar hér á landi á meðan heims­mark­aðs­verð lækkar

Pólitík

„Það er eng­inn öruggur í sam­fé­lagi þar sem stjórn­málin leit­ast við að keppa í grimmd“

Heimur

Setti bráð­skemmti­legt heims­met

Landið

Landið

Leifar af skála frá land­náms­tíma fund­ust á Aðalbóli

Fornleifafræðingur telur minjarnar geta varpað ljósi á búsetu í Hrafnkelsdal á fyrstu öldum Íslandsbyggðar.
Landið

Sváfu undir berum himni og heill­uð­ust af íslenska hálend­inu

Landið

Andri Snær rifjar upp fórn­irnar sem fylgdu Kára­hnjúka­virkjun

Landið

Leð­ur­blakan í Fellabæ enn ófundin

Landið

Leð­ur­blaka sást á flugi í Fellabæ

Landið

Öllu starfs­fólki Heil­brigð­is­eft­ir­lits Aust­ur­lands sagt upp