Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Jón Gnarr leitar að surströmming á Íslandi

„Það er vissu­lega soldið vond lykt af henni en hún bragð­ast mjög vel finnst mér.“

Jón Gnarr
Jón Gnarr Getur ekki ein­hver hjálpað Jóni? Mynd: Víkingur

Leik­ar­inn og þing­mað­ur­inn Jón Gnarr, rifjar upp æsku sína og fjöl­breytt matar­æði í nýrri færslu á Facebook, og lýkur henni með spurn­ingu sem margir gætu nú tekið að velta fyrir sér: hvort hægt sé að kaupa súra síld, eða sur­strömm­ing, hér á landi.

„Ég er alinn upp á mis­jöfnum mat,“ skrifar Jón og heldur áfram:

„Pabbi var fæddur frosta­vet­ur­inn mikla 1918 og ólst upp á og við Breiða­fjörð. Mamma vann í mötu­neyt­inu á Borg­ar­spít­al­anum og kom oft með mat­ar­af­ganga þaðan.“

Jón segir að sem barn hafi hann borðað ýmis konar mat sem ekki þætti öllum sjálf­sagður á borðum í dag.

„Sem barn át ég saltað sel­spik, súrsað alls­konar, kok­teilá­vexti með rjóma, svart­baks­egg, ávaxta­grauta, svið, hjörtu og nýru, lifur, ser­íós, normal­brauð með asíum eða jafn­vel kart­öflum, Royal búð­ing, kæsta skötu og grill­aðar osta­sam­lokur.“

Þetta hafi orðið til þess að hann sé opinn fyrir alls kyns bragð­teg­undum, og ekki síst sænskri súrri síld.

„Það var því engin fyr­ir­staða innra með mér, þegar ég bjó í Svíþjóð, að bragða á og éta súra síld. Ég bjó meira að segja í Norr­landi. Það er vissu­lega soldið vond lykt af henni en hún bragð­ast mjög vel finnst mér.“

Jón segir að hann hafi ætlað sér að kaupa nokkrar dósir af sur­strömm­ing þegar hann var nýverið í Stokk­hólmi, en orðið fyrir von­brigðum:

„Þegar ég var í Stokk­hólmi á dög­unum hafði ég hugsað mér að kippa með mér nokkrum dósum á flug­vell­inum en komst þá að því að það er búið að banna sölu á þessu sæl­gæti á Arlanda flug­velli.“

Hann endar færsl­una með ein­faldri spurn­ingu til lands­manna:

„Þannig að ég spyrst nú fyrir hvort hægt sé að kaupa sur­strömm­ing hér á landi?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

„Sterkar vís­bend­ingar eru núna um að hryðju­verk­a­ríkið Ísrael hafi gert tölvu­árás á íslenska inn­viði“

Kristinn Hrafnsson telur Ísrael kunna að hafa staðið að netárás á hýsingarfyrirtækið 1984, en ábyrgð á henni hefur ekki verið staðfest.
Innlent

Ekið á mann á raf­hlaupa­hjóli

Innlent

Að minnsta kosti þrjár Palest­ínu­tengdar vef­síður eyði­lagðar í netárásinni á 1984

Heimur

Raun­veru­leika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sam­bands­af­mæli með kærust­unni

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Eftir að hafa greinst með heilaæxli fyrir fjórum árum lýsir Karl Ágúst þakklæti fyrir að verk hans séu nú aftur á sviði.

„Í dag eru tíu ár síðan ég varð fyrir nauðgun“

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Sáttasex leysir ekki ágrein­ing­inn

„Nið­ur­lægj­andi að smækka fólk niður í tölur“

Notalegt fjöl­skyldu­hús með nægu rými úti og inni til sölu