Valur Gunnarsson
„Getur ekkert gert nema reynt að hefna sín á óbreyttum borgurum.“
Valur Gunnarsson
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Pólitík

Þor­gerður svar­aði Sigmundi fullum hálsi eftir frammí­kall á Alþingi

Pólitík

Guð­mundur Ingi greindi frá „einum léleg­asta laga­brand­ara“ Alþingis

Fólk

Fyrrum for­stjóri selur hús með heims­frægan fyrr­ver­andi eig­anda

Innlent

Segir hús­næð­is­mark­að­inn vera „eina stóra svika­myllu“

Innlent

„Ég valdi ekki bílslysið, krabba­meinið eða fötl­un­ina“

Fólk

Flúði Talibana fimm ára en hlaut íslensku­verð­laun þremur árum seinna

Heimur

„Ein­hyrn­ingur“ fannst í Eist­landi

Kennari varð óléttur eftir nemanda sinn: „Hélt fyrst að hún væri að grínast“

Kennslu­kona varð ólétt eftir að hafa sofið hjá tán­ings­dreng á meðan hún var laus gegn trygg­ingu fyrir meint kyn­líf með nem­anda, sam­kvæmt gögnum úr dóm­stóli í Bret­landi.

Rebecca Joynes, 30, er sökuð um að hafa í sex skipti stundað kyn­ferð­is­legt athæfi með barni, þar af tvö á meðan hún gengdi trún­að­ar­stöðu. Er hún nú fyrir rétti hjá Manchester Crown Court.

Kenn­ar­inn for­smáði mætti í rétt­inn með for­eldrum sínum.

Sagt er að Joynes hafi grúmað (e. groomed) fyrsta meinta fórn­ar­lamb sitt, dreng A, með því að kaupa handa honum 345 punda Gucci belti – áður en hún fór með hann í þáver­andi íbúð sína í Salford, á Stór-Manchester-svæð­inu, þar sem þau eru sögð hafa stundað kyn­líf tvisvar sinnum.

Henni var vikið úr skóla sínum í kjöl­far rann­sóknar lög­regl­unnar á atvik­inu – og síðar sagði hún lög­reglu að ekk­ert kyn­ferð­is­legt athæfi hefði átt sér stað. Hún var látin laus gegn trygg­ingu með því skil­yrði að hún hefði ekki sam­band eft­ir­lits­laust við neinn yngri en 18 ára.

Drengur A mætti í rétt­inn og svar­aði spurn­ingum lög­manns Joynes í hljóð­rit­aðri yfir­heyrslu. Sak­sókn­ar­inn Joe Allman, upp­lýsti svo kvið­dóm­endur á mánu­dag að Joynes væri að sofa hjá öðrum nem­anda.

„Málinu var síðan frestað til að bíða eftir rétt­ar­höld­unum en það kom í ljós að fröken Joynes hafði verið í nokkuð langvar­andi kyn­ferð­is­legu sam­bandi við annan af 15 ára nem­endum sínum,“ sagði Allman.

„Drengur B kom með sína eigin frá­sögn. Hann sagði að fröken Joynes væri kenn­ari hans, að þau hafi verið í sam­bandi á meðan hún var í starfs­leyfi og að hann hafi farið í íbúð hennar þegar hann var 15 ára.“

„Þau kysst­ust og þegar að hann varð 16 ára stofn­uðu þau til fulls kyn­ferð­is­sam­bands þar sem hún varð ólétt, sem var mikið áfall fyrir dreng­inn vegna þess að hún hafði sagt honum að hún gæti ekki orðið ólétt vegna þess að hún væri með fjöl­blöðru­eggja­stokka­heil­kenni.

„Alveg ótrú­legt og satt best að segja algjör­lega blygð­un­ar­laust, var þetta allt að ger­ast á meðan fröken Joynes var laus gegn trygg­ingu fyrir þessum dóm­stóli. Auðvitað getur hún ekki neitað því kyn­ferð­is­legu sam­bandi því hún varð ólétt af barni (Dreng B) og hún eign­að­ist það barn.“

„Að þessu sinni heldur hún því fram að kyn­lífs­sam­bandið hafi ekki byrjað fyrr en hann var eldri en 16 ára og henni hefði loks­ins verið vísað úr skól­anum.

Drengur A sagði lög­regl­unni að Joynes hefði gefið honum 10 af 11 tölu­stöfum síma­núm­ers­ins hennar og „skorað á hann“ að giska á tölu­staf­inn sem eftir var, sagði Allman fyrir rétti. Hún hélt áfram að stinga upp á að hann yrði áfram í íbúð­inni hennar, sagði drengur A, sem „hélt fyrst að hún væri að grín­ast“, var sagt fyrir dómi.

Joynes sótti hann nálægt heim­ili sínu á hvítum Audi hennar, sagði Allman. Sak­sókn­ar­inn sagði: „Hún keyrði hann síðan aftur til Manchester og fór með hann á Trafford Center þar sem þau fóru í Gucci-búð­ina í Sel­fridges og hún sagði honum að hann gæti valið belti.“

Þau komu snemma kvölds í íbúð hennar við Salford Quays þar sem þau sett­ust í sófann og fóru síðan í svefn­her­bergið þar sem þau afklædd­ust og stund­uðu kyn­líf, að sögn dóms­ins.

Sak­born­ing­ur­inn sagði dreng A nokkrum sinnum að það væri „ eins gott að eng­inn kæm­ist að þessu“, sam­kvæmt yfir­lýs­ingu sem hann gaf síðar til lög­reglu, var kvið­dóm­inum upp­lýst um. Þau tvö stund­aði síðar kyn­líf aftur, sagði hann, og á þessum tíma­punkti var hann „frekar ringlaður“ og sagði tveimur vinum á Snapchat frá því sem hafði átt sér stað, kom fram í rétt­inum.

Allman sagði að „orðrómur hafi byrjað að ber­ast“ um helg­ina eftir að annar eða báðir vin­irnir „nokkuð fyr­ir­sjá­an­lega“ sögðu öðrum frá því. Nafnlaus ábend­ing til Childline-hjálp­ar­lín­unnar fylgdi einnig í kjöl­farið þegar lög­reglan heim­sótti skól­ann í vik­unni á eftir, að því er fram kom við rétt­ar­höldin.

Bæði áttu sam­skipti í gegnum Snapchat og skila­boðin voru að mestu óaft­ur­kræf, en eitt var end­ur­heimt frá Joynes sem inni­hélt hjarta og þrjá kossa, sagði sak­sókn­ari.

Fram kom í rétt­inum að drengur B hefði sagt lög­reglu að hann væri með­vit­aður um að Joynes hafi verið vikið úr starfi þegar hann hitti hana í íbúð hennar og þau kysst­ust, þegar hann var 15 ára.

Joynes var einnig sögð hafa sent honum mynd af rass­inum hennar íklædd ein­göngu nær­buxum. Drengur B sagði að Joynes hafi síðar upp­lýst hann um að hún væri ólétt eftir hann og að hún hafi sýnt honum Victoria’s Secret skaf­kort með kyn­ferð­is­legum fantasíum til að upp­fylla, að því er fram kom í dómnum.

Ung­ling­ur­inn sagði að Joynes hefði dreift rósa­blöðum í íbúð­inni fyrir „stefnu­mó­ta­kvöldið“, pantað mat­ar­send­ingu frá Pizza Express og skilið eftir „slóð óvæntra gjafa“ þar sem sú síð­asta var ung­barna­sam­fest­ingur sem á stóð „Ég elska pabba minn“.

Dreng­ur­inn B sagði fyrir dóm­inum að Joynes væri „mjög öfund­sjúk og stjórn­söm gagn­vart honum“. Joynes neitar að hafa stundað kyn­líf tvisvar sinnum með dreng A og tvisvar sinnum með dreng B á meðan hún gengdi trún­að­ar­stöðu gagn­vart drengj­unum.

Rétt­ar­höldin halda áfram á morgun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Sigríður Nanna Heimisdóttir segir skólann vinna að úrlausn málsins og býður nemendum sem urðu vitni að atvikinu samtal.
Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Innlent

Bens­ín­verð hækkar hér á landi á meðan heims­mark­aðs­verð lækkar

Pólitík

„Það er eng­inn öruggur í sam­fé­lagi þar sem stjórn­málin leit­ast við að keppa í grimmd“

Heimur

Setti bráð­skemmti­legt heims­met

Heimur

Heimur

Pútín hótar „sárs­auka­fullum“ hefndum vegna árása á Krímbrúna

Forsetinn segir Rússa ekki muni semja við Úkraínu eftir árásina
Heimur

Amma skotin í höf­uðið og keyrt yfir átta

Heimur

Shenk varar við nýju tíma­bili óstöð­ug­leika í tækni­málum

Heimur

Musk seg­ist ekki vera hluti af MAGA-hreyf­ingu Trumps

Heimur

Khloe Kar­dashian er demikyn­hneigð

Heimur

Alvar­legar ásak­anir á hendur 15 ára syni raun­veru­leika­stjörnu