
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í ýmsu að snúast frá því í gærkvöldi og fram á nótt. Meðal annars var ökumaður sviptur ökuréttindum á staðnum eftir að hafa verið mældur á 96 kílómetra hraða þar sem hámarkshraði er 40 kílómetrar á klukkustund.
Þá hafði lögregla afskipti af sjö ökumönnum sem grunaðir eru um akstur undir áhrifum áfengis, fíkniefna eða lyfja.
Lögreglunni barst tilkynning um grunsamlegar mannaferðir í Reykjavík. Lögreglumenn fóru á vettvang en þar var ekkert óeðlilegt að sjá. Í Reykjavík var tilkynnt um þjófnað úr matvöruverslun og einnig um aðfinnsluvert háttalag einstaklings á sólbaðsstofu.
Önnur tilkynning barst um afbrigðilega hegðun einstaklinga í sama hverfi. Þegar lögregla kannaði málið kom hins vegar í ljós að um saklausa skemmtun ungra pilta var að ræða. Eftir að þeir báðust afsökunar héldu allir sáttir sína leið.
Þá var tilkynnt um innbrot í heimahús í Garðabæ og sinnti lögregla jafnframt nokkrum útköllum vegna hávaða.
Í Mosfellsbæ var lögreglu tilkynnt um aðfinnsluvert aksturslag ökumanns á rafmagnskrossara. Ökutækið var án skráningarnúmers og því ekki heimilt að aka því á akbraut. Ökumaðurinn hafði jafnframt ekki aldur til að vera í umferðinni.
Lögregla tók þó fram að ökumaðurinn hefði verið með hjálm og verið „afskaplega kurteis“ í samskiptum við lögreglumenn. Foreldri kom á vettvang og sótti unga ökumanninn.
Auk þessara mála sinntu lögreglumenn ýmsum öðrum verkefnum tengdum umferðinni á höfuðborgarsvæðinu.
