Gríðarmikill eldur logar nú í Broadmoor-spítalanum í Berkshire í Bretlandi en þar hafa sumir af hættulegustu glæpamönnum Bretlands dvalið.
Myndbönd og ljósmyndir frá vettvangi sýna eldtungur loga í sjúkrahúsinu í Crowthorne, Berkshire. Vettvangsaðilar sagði að núverandi sjúkrahússvæði sé öruggt þar sem eldurinn kom upp í mannlausri byggingu á gamla staðnum.
Lögreglan í Thames-dal hefur reynt að hjálpa til við að slökkva eldinn ásamt slökkviliðsmönnum. Íbúar í nágrenninu hafa verið beðnir um að loka gluggum og hurðum. Talsmaður slökkviliðs Berkshire sagði við fjölmiðla: „Við erum að sinna bruna í eyðilagðri byggingu á gamla Broadmoor-sjúkrahúsinu. Núverandi sjúkrahússvæði er ekki fyrir áhrifum. Vinsamlegast haldið ykkur fjarri svæðinu en ef þið ert nálægt, vinsamlegast hafið glugga og hurðir lokaðar.“ Talsmaður lögreglunnar í Thames-dal bætti við: „Á þessu stigi hafa engin áhrif orðið á vegakerfið.“ Þó að nákvæm staðsetning eldsins hafi ekki verið staðfest, virðist hann hafa komið upp í einni af gömlu íbúðarhúsunum vestan megin við samstæðuna sem er frá Viktoríutímabilinu.
Nokkrir af alræmdustu glæpamönnum Bretlands, þar á meðal Ronnie Kray, Jórvíkurskíris-kviðristan Peter Sutcliffe, Charles Bronson og Robert Maudsley, hefur verið haldið í háöryggisgeðsjúkrahúsinu sem nú brennur. Núverandi fangar þar eru til dæmis einn hryðjuverkamannanna sem myrtu Lee Rigby, Michael Adebowale, auk Ian Ball – maðurinn sem reyndi að ræna Önnu prinsessu árið 1974.
Sjúkrahúsið var stofnað árið 1860 með tilkomu Criminal Lunatics Act eða Broadmoor Act, sem reyndu að bæta aðstæður á geðveikrahælum eins og Bedlam eða Bethlehem-sjúkrahúsið. Það var fullbúið árið 1863 og er það elsta háöryggisgeðsjúkrahús í Englandi.
Broadmoor heldur 240 sjúklingum sem eru með geðsjúkdóma eða persónuleikaraskanir. Samkvæmt NHS dvelja flestir sjúklingar á Broadmoor í fimm til sex ár, en sumir dvelja mun lengur.
Sjúklingar eru þá gjarnan fluttir í aðstöðu þar sem öryggisgæslan er minni ef þeir eru taldir ekki vera sjálfum sér eða öðrum í hættu. Þó það líti út eins og fangelsi er Broadmoore sjúkrahús. Starfsmenn þess eru hjúkrunarfræðingar, geðlæknar, sálfræðingar, félagsráðgjafar og meðferðaraðilar.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir