Níu starfsmenn Google voru handteknir fyrir innbrot aðfaranótt fimmtudags, eftir að hafa farið í setuverkfall á skrifstofum fyrirtækisins í New York og í Sunnyvale í Kaliforníuríki, þar á meðal á skrifstöfu forstjóra Google Cloud, Thomas Kurian. Mótmæltu starfsmennirnir tengslum Google við Ísrael.
Handtökurnar, sem mótmælendurnir sýndu í beinni útsendingu á Twitch, koma í kjölfar mótmæla fyrir utan skrifstofur Google í New York, Sunnyvale og Seattle, sem laðaði að sér hundruði þátttakenda, að sögn starfsmanna sem tóku þátt. Mótmælin, undir forystu samtakanna „No Tech for Apartheid“, beindust að Nimbus-verkefninu – sameiginlegum 1,2 milljarða dollara samningi Google og Amazon um að veita ísraelska ríkisstjórninni og hernum skýjatölvuþjónustu, þar á meðal gervigreindarverkfæri, gagnaver og aðra skýjainnviði.
Mótmælendurnir í Sunnyvale sátu á skrifstofu Kurian í meira en níu klukkustundir, þar til þeir voru handteknir. Höfðu þeir þá skrifað kröfur sínar á töflu yfirmannsins og klæðst bolum sem á stóð „Gúgglarar gegn þjóðarmorði.“ Í New York sátu mótmælendur í þriggja hæða sameiginlegu rými. Fimm starfsmenn frá Sunnyvale voru handteknir og fjórir frá New York.
„Persónulega er ég á móti því að Google geri hvaða hernaðarsamninga sem er, sama við hvaða ríkisstjórn þeir eru eða um hvað nákvæmlega samningurinn snýst,“ sagði Cheyne Anderson, hugbúnaðarverkfræðingur Google Cloud með aðsetur í Washington, við
CNBC
. „Og ég er þeirrar skoðunar vegna þess að Google er alþjóðlegt fyrirtæki og það er sama hvaða her það er hjá, þá er alltaf fólk á hinum endanum … fulltrúa í starfsmannahópi Google og einnig notendahópi okkar. Anderson hafði flogið til Sunnyvale vegna mótmælanna á skrifstofu Kurian og var einn starfsmannanna sem handteknir voru á þriðjudag.
„Google Cloud styður fjölmargar ríkisstjórnir um allan heim í löndum þar sem við störfum, þar á meðal ísraelsk stjórnvöld, með almennum tiltækum tölvuskýjaþjónustum okkar,“ sagði talsmaður Google við CNBC og bætti við: „Þessi vinna beinist ekki að mjög viðkvæmum, leynilegum eða vinnu hersins sem tengist vopnum eða leyniþjónustum.“
Mótmælin sýna aukinn þrýsting starfsmanna Google á fyrirtækið, sem eru á móti hernaðarnotkun á gervigreind og skýjatækni þess. Í síðasta mánuði truflaði Eddie Hatfield, verkfræðingur Google Cloud, aðalræðu framkvæmdastjóra Google í Ísrael þar sem hann sagði: „Ég neita að byggja upp tækni sem knýr þjóðarmorð. Hatfield var í kjölfarið rekinn. Í sömu viku var innra spjallborði starfsmanna Google lokað eftir að starfsmenn birtu athugasemdir um ísraelska hersamninga fyrirtækisins. Talsmaðurinn lýsti færslunum sem „sundrandi efni sem truflar vinnustað okkar.“
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir