Valur Gunnarsson
„Getur ekkert gert nema reynt að hefna sín á óbreyttum borgurum.“
Valur Gunnarsson
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Pólitík

Þor­gerður svar­aði Sigmundi fullum hálsi eftir frammí­kall á Alþingi

Pólitík

Guð­mundur Ingi greindi frá „einum léleg­asta laga­brand­ara“ Alþingis

Fólk

Fyrrum for­stjóri selur hús með heims­frægan fyrr­ver­andi eig­anda

Innlent

Segir hús­næð­is­mark­að­inn vera „eina stóra svika­myllu“

Innlent

„Ég valdi ekki bílslysið, krabba­meinið eða fötl­un­ina“

Fólk

Flúði Talibana fimm ára en hlaut íslensku­verð­laun þremur árum seinna

Heimur

„Ein­hyrn­ingur“ fannst í Eist­landi

Steve Buscemi kýldur í andlitið í New York – Lögreglan birtir ljósmyndir af hinum grunaða

Steve Buscemi
Steve Buscemi Mynd: Trausti Hafsteinsson

Stór­leik­ar­inn Steve Buscemi var kýldur í and­litið á göngu sinni á götum úti í New York á mið­viku­dag­inn. Lög­reglan leitar árás­armanns­ins.

Lög­reglan í New York sagði CNN að hún væri að rann­saka árás­ina, sem gerð­ist síð­ast­lið­inn mið­viku­dag og er sú nýjasta í röð til­vilj­ana­kenndra árása í borg­inni.

Í síð­asta mán­uði tal­aði CNN við sex konur sem sögð­ust hafa verið kýldar í and­litið upp úr þurru á meðan þær gengu um stræti New York borgar.

„Buscemi varð fyrir lík­ams­árás í miðbæ Man­hattan, enn eitt fórn­ar­lamb til­vilj­un­ar­kennds ofbeld­is­verks í borg­inni,“ sagði tals­maður hans í yfir­lýs­ingu til CNN.

„Hann er í lagi og metur vel­farn­að­ar­óskir allra, en honum þykir þetta ótrú­lega leið­in­legt fyrir alla sem hafa lent í þessu á göngu sinni í NY,“ sagði í yfir­lýs­ing­unni.

Samkvæmt NYPD voru lög­reglu­menn kall­aðir á vett­vang við 369 3rd Avenue rétt fyrir hádegi mið­viku­dag­inn 8. maí. „Við kom­una var lög­reglu­mönnum til­kynnt að 66 ára karl­maður hafi verið sleg­inn í and­litið af óþekktum ein­stak­lingi,“ sagði í yfir­lýs­ingu lög­regl­unnar.

„Sjúkra­liðar brugð­ust við og flutti fórn­ar­lambið á sjúkra­hús, í stöð­ugu ástandi til með­ferðar vegna mars, bólgna og blæð­ingar í vinstra auga,“ sagði NYPD. „Ekki hefur enn verið neinn hand­tek­inn, og rann­sókn er enn í fullu gangi.“

„Ein­stak­lingnum er lýst sem karl­manni með dökkt yfir­bragð, klæddur dökkri hafna­bolta­hettu, bláum stutt­erma­bol, svörtum buxum, hvítum striga­skóm og með bóka­tösku,“ að sögn lög­reglu.

Sá grun­aði

Lög­reglan hefur beðið almenn­ing um aðstoð við að bera kennsl á hinn grun­aða.

Buscemi fædd­ist í Brooklyn, New York. Hann er þekkt­astur fyrir að leika í kvik­myndum eins og „Res­er­voir Dogs“ (1992) og „Fargo“ (1996), auk sjón­varps­þátta þar á meðal „Boardwalk Empire“ og „30 Rock“. Þá vakti hann aðdáun margra í kringum 11. sept­em­ber 2001 en hann hjálp­aði slökkvi­lið­inu við hjálp­ar­störf en hann starf­aði sem slökkvi­liðs­maður í New York, áður en hann sló í gegn sem leik­ari.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Sigríður Nanna Heimisdóttir segir skólann vinna að úrlausn málsins og býður nemendum sem urðu vitni að atvikinu samtal.
Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Innlent

Bens­ín­verð hækkar hér á landi á meðan heims­mark­aðs­verð lækkar

Pólitík

„Það er eng­inn öruggur í sam­fé­lagi þar sem stjórn­málin leit­ast við að keppa í grimmd“

Heimur

Setti bráð­skemmti­legt heims­met

Heimur

Heimur

Pútín hótar „sárs­auka­fullum“ hefndum vegna árása á Krímbrúna

Forsetinn segir Rússa ekki muni semja við Úkraínu eftir árásina
Heimur

Amma skotin í höf­uðið og keyrt yfir átta

Heimur

Shenk varar við nýju tíma­bili óstöð­ug­leika í tækni­málum

Heimur

Musk seg­ist ekki vera hluti af MAGA-hreyf­ingu Trumps

Heimur

Khloe Kar­dashian er demikyn­hneigð

Heimur

Alvar­legar ásak­anir á hendur 15 ára syni raun­veru­leika­stjörnu