Valur Gunnarsson
„Getur ekkert gert nema reynt að hefna sín á óbreyttum borgurum.“
Valur Gunnarsson
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Pólitík

Þor­gerður svar­aði Sigmundi fullum hálsi eftir frammí­kall á Alþingi

Pólitík

Guð­mundur Ingi greindi frá „einum léleg­asta laga­brand­ara“ Alþingis

Fólk

Fyrrum for­stjóri selur hús með heims­frægan fyrr­ver­andi eig­anda

Innlent

Segir hús­næð­is­mark­að­inn vera „eina stóra svika­myllu“

Innlent

„Ég valdi ekki bílslysið, krabba­meinið eða fötl­un­ina“

Fólk

Flúði Talibana fimm ára en hlaut íslensku­verð­laun þremur árum seinna

Heimur

„Ein­hyrn­ingur“ fannst í Eist­landi

Aðförin að Maríu Sigrúnu

Stefán Eiríksson .
Stefán Eiríks­son .

Málið sem varð Maríu Sigrúnu Hilm­ars­dóttur að falli í frétta­skýr­inga­þætt­inum Kveik var sýnt í Kast­ljósi í gær. Óljóst er hvað varð til þess að Ingólfur Bjarni Sig­fús­son, rit­stjóri Kveiks, stöðv­aði umfjöllun frétta­kon­unnar í sam­ráði við yfir­menn sína. Umfjöllun Maríu Sigrúnar dregur fram að Reykja­vík­ur­borg missti af 10 millj­örðum króna vegna samn­inga við olíu­fé­lögin um bygg­inga­rétt á lóðum þeirra. Hermt er að for­svars­menn olíu­fé­lag­anna hafi verið gátt­aðir á örlæti borg­ar­innar við úreld­ingu bens­ín­stöðv­anna.

Vinátta Stefáns Eiríks­sonar, fyrr­ver­andi borg­ar­rit­ara og núver­andi útvarps­stjóra, og Dags B. Egg­erts­sonar, fyrr­ver­andi borg­ar­stjóra, er þekkt. Stefán mun hafa komið að málum sem borg­ar­rit­ari í upp­hafi þegar stigin voru fyrstu skrefin í samn­ingum við olíu­fé­lögin. Þá liggur fyrir að núver­andi borg­ar­stjóri, Einar Þor­steins­son starf­aði áður á RÚV. Þessi vina­bönd kunna að hafa haft áhrif þegar sótt var að fjöl­miðla­kon­unni, umfjöll­unin stöðvuð, og hún rekin úr teymi Kveiks.

Nið­ur­staða umfjöll­unar Maríu Sigrúnar er sú að meiri­hluti borg­ar­stjórn­ar­innar hafi klúðrað málum og gefið frá sér stórfé. Í ein­hverjum til­vikum voru samn­ingar um lóðir undir bens­ín­stöðvar að renna út og borgin gat ein­fald­lega tekið þær til sín. Umfjöll­unin átti svo sann­ar­lega erindi fyrir almenn­ings­sjónir. Spurt er hvernig RÚV leysi málin  gagn­vart frétta­kon­unni for­smáðu.

„Auðvitað ótrú­legur slóða­skapur. Þetta er dæmi­gert fúsk og hér skorti alla fag­mennsku,“ segir Hildur Björns­dóttir, odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík, um málið. Skondin hlið á þessu er að eig­in­maður Hildar, Jón Skafta­son, sem er einn af ráða­mönnum Skelj­ungs og Orkunnar, græddi stórfé fyrir hönd síns fyr­ir­tækis á öllu þessu bralli …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Sigríður Nanna Heimisdóttir segir skólann vinna að úrlausn málsins og býður nemendum sem urðu vitni að atvikinu samtal.
Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Innlent

Bens­ín­verð hækkar hér á landi á meðan heims­mark­aðs­verð lækkar

Pólitík

„Það er eng­inn öruggur í sam­fé­lagi þar sem stjórn­málin leit­ast við að keppa í grimmd“

Heimur

Setti bráð­skemmti­legt heims­met

Slúður

Slúður

Neyð­ar­kall Gunnars Smára