Valur Gunnarsson
„Getur ekkert gert nema reynt að hefna sín á óbreyttum borgurum.“
Valur Gunnarsson
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Pólitík

Þor­gerður svar­aði Sigmundi fullum hálsi eftir frammí­kall á Alþingi

Pólitík

Guð­mundur Ingi greindi frá „einum léleg­asta laga­brand­ara“ Alþingis

Fólk

Fyrrum for­stjóri selur hús með heims­frægan fyrr­ver­andi eig­anda

Innlent

Segir hús­næð­is­mark­að­inn vera „eina stóra svika­myllu“

Innlent

„Ég valdi ekki bílslysið, krabba­meinið eða fötl­un­ina“

Fólk

Flúði Talibana fimm ára en hlaut íslensku­verð­laun þremur árum seinna

Heimur

„Ein­hyrn­ingur“ fannst í Eist­landi

Hestur drepinn með riffli fyrir austan: „Ég skora á viðkomandi að gefa sig fram“

Hestsauga.
Hests­auga. Mynd: Argrímur S – Pexels.com

Hestur fannst dauður á landi bónda í Múla­þingi um helg­ina. Hafði hann verið skot­inn með riffli.

Bóndinn sagði frá því á íbúða­síðu Fljóts­dals­hér­aðs, að hann sé með girð­ingar á landi sínu sem eru í útlánum fyrir hesta­eig­endur. Um helg­ina kom í ljós að hross vant­aði í hóp­inn og kallað var þá til dýra­læknir sem og lög­regla. Hrossið fannst dautt en það hafði verið skotið með riffli. „Ég skora á við­kom­andi að gefa sig fram sem gerir slíkt, hrossið var hæft á slíkan stað að ekki bendir til að um slys væri að ræða,“ skrif­aði bónd­inn í færsl­unni. Mannlíf heyrði í honum og spurði hvar hest­ur­inn hafi verið skot­inn. „Hann var skot­inn í síð­una og mér var sagt af þeim sem fór með það, að skotið hafi farið beint í slagæð. Aftan á bóg­inn, eins og á hrein­dýra­veiðum.“

Mannlíf ræddi einnig við Diönu Divi­lekova, dýra­lækni á Egils­stöðum, sem stað­festi hrossa­drápið. „Við vitum ekki hvort hann var aflíf­aður eða hvort þetta var slysa­skot. En það var greini­lega skot í honum.“

Þá ræddi Mannlíf einnig við lög­regl­una á Egils­stöðum sem stað­festi að málið væri í rann­sókn en að lög­reglan hafi ekki enn fengið stað­fest­ingu á að hest­ur­inn hafi verið skot­inn. Þegar blaða­maður sagði lög­reglu­mann­inum að dýra­læknir hafi stað­fest við Mannlíf að skot hafi fund­ist í hross­inu svar­aði hann: „Nú, jæja, það eru þá nýjar upp­lýs­ingar. Það eru upp­lýs­ingar sem við höfum ekki fengið frá dýra­lækn­inum. En það lítur út fyrir að hann hafi verið skot­inn.“ Aðspurður um fram­haldið sagði lög­reglu­mað­ur­inn að öllum „steinum verði velt“, teg­und skot­færis verði athuga og allt gert til að finna út úr mál­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Sigríður Nanna Heimisdóttir segir skólann vinna að úrlausn málsins og býður nemendum sem urðu vitni að atvikinu samtal.
Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Innlent

Bens­ín­verð hækkar hér á landi á meðan heims­mark­aðs­verð lækkar

Pólitík

„Það er eng­inn öruggur í sam­fé­lagi þar sem stjórn­málin leit­ast við að keppa í grimmd“

Heimur

Setti bráð­skemmti­legt heims­met

Innlent

Innlent

Lög­reglan á Vest­ur­landi lýsir eftir 14 ára dreng

Talið er að hann sé á höfuðborgarsvæðinu eða mögulega á Akranesi.
Innlent

Stakk starfs­mann í háls­inn með blý­anti

Innlent

Dæmdur fyrir að stela flíkum úr gámi við Zo-On í Kópavogi

Innlent

Tveir menn ákærðir fyrir kyn­ferð­is­leg atlot í barna­laug

Innlent

Vilja bæta við hæð í Sóltúni og fjölga bíla­stæðum við Kletta­garða