Valur Gunnarsson
„Getur ekkert gert nema reynt að hefna sín á óbreyttum borgurum.“
Valur Gunnarsson
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Pólitík

Þor­gerður svar­aði Sigmundi fullum hálsi eftir frammí­kall á Alþingi

Pólitík

Guð­mundur Ingi greindi frá „einum léleg­asta laga­brand­ara“ Alþingis

Fólk

Fyrrum for­stjóri selur hús með heims­frægan fyrr­ver­andi eig­anda

Innlent

Segir hús­næð­is­mark­að­inn vera „eina stóra svika­myllu“

Innlent

„Ég valdi ekki bílslysið, krabba­meinið eða fötl­un­ina“

Fólk

Flúði Talibana fimm ára en hlaut íslensku­verð­laun þremur árum seinna

Heimur

„Ein­hyrn­ingur“ fannst í Eist­landi

Lestarstjóri framdi hetjudáð í Öskjuhlíð og bjargaði barni – Guðrún litla var ekki eins heppin

Frá hafnargerðinni í Reykjavík, snemma á 20. öldinni
Frá hafn­ar­gerð­inni í Reykja­vík, snemma á 20. öld­inni Mynd: Ljósmyndasafn Reykjavíkur / Reykjavík Museum of

Tvö börn léku sér snemma einn ágúst­morgun í Reykja­vík, grun­laus um hætt­urnar sem fylgdu iðn­væð­ing­unni, ef maður gætti ekki að sér. Þegar lest­ar­stjóri eim­reiðar sem var að flytja grjót úr Öskju­hlíð­inni í höfn­ina, sá börnin tvö að leik á sjálfri járn­braut­inni gerði hann allt til þess að koma í veg fyrir stór­slys. Hann heml­aði og þeytti píp­unni en sá að til­raunir hans væru ekki nægar. Stökk hann út úr lest­inni og náði með herkjum að bjarga öðru barn­inu. Hitt barnið varð ekki eins heppið.

Blaðið Veröld skrif­aði um slysið skelfi­lega en lýs­ingar á slysum voru nákvæm­ari en þekk­ist í dag, sem betur fer kannski því stundum voru þær um of, líkt og fréttin af þessu slysi. Banaslys hinnar tveggja ára gömlu Guðrúnar Aðal­heiðar Elí­asar­dóttur, var annað banaslys Íslands­sög­unnar þar sem fólk varð fyrir lest. Það gerð­ist 6. ágúst 1919.

Frétt Veraldar:

Sorglegt slys. Reykja­vík 6. ág. Í gær­dag snemma vildi til það slys hér, að eim­lest hafn­ar­innar rann á lítið barn og varð því að bana. Um atvikin að þessum sorg­lega atburði er það að segja, að eim­lestin kom ofan úr hlíð með marga hlaðna vagna. Rétt fyrir innan bæinn, þar sem járn­brautin liggur niður á Hverf­is­göt­una, voru tvö smá­böm á sjá­flri braut­inni. Eim­reiðin þeytti píp­una hvað eftir annað, en börnin voru slíkir óvitar, að þau höfðu enga hug­mynd um að þau þyrftu að forða sér. Var þá reynt að stöðva lest­ina, en það var hæg­ara sagt en gert, því bæði var halli þarna nokkur og svo ýttu aft­ari vagn­arnir á með þunga sínum og rann öll lestin áfram. Þegar maður sá, er vögn­unum stýrir, sá að hverju fór, hljóp hann út úr lest­inni og gat þrifið annað barnið og bjargað því undan lest­inni en hitt varð undir. Fór vagn­hjólið yfir háls­inn á því og sneið af höf­uðið. Barnið átti heima á Bar­óns­stíg 12. Var það telpa, 3—4 ára gömul, Guðrún Aðal­heiður að nafni, dóttir Elíasar Jóakims­sonar tré­smiðs. Rétt­ar­höld fór fram þegar í gær. Vitn­að­ist þar að báðar heml­urnar—annar er á hreyfi­vagn­inum en hinn á vagni í miðri lest­inni — höfðu verið settir á hjólin þegar það sást að börnin gengdu ekki hljóð­bend­ing­unni. En vegna hall­ans á braut­inni stað­næmd­ist lestin eigi nógu fljótt, þrátt fyrir heml­urnar. þegar mað­ur­inn á hreyfi­vagn­inum sá hvað verða vildi, hljóp hann út úr vagn­inum, fram fyrir lest­ina, og gat með herkjum náð öðru barn­inu Munaði minstu að hann yrði undir lest­inni sjálfur.

Bak­sýn­is­speg­ill þessi birt­ist áður 2. júní 2023.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Sigríður Nanna Heimisdóttir segir skólann vinna að úrlausn málsins og býður nemendum sem urðu vitni að atvikinu samtal.
Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Innlent

Bens­ín­verð hækkar hér á landi á meðan heims­mark­aðs­verð lækkar

Pólitík

„Það er eng­inn öruggur í sam­fé­lagi þar sem stjórn­málin leit­ast við að keppa í grimmd“

Heimur

Setti bráð­skemmti­legt heims­met

Innlent

Innlent

Lög­reglan á Vest­ur­landi lýsir eftir 14 ára dreng

Talið er að hann sé á höfuðborgarsvæðinu eða mögulega á Akranesi.
Innlent

Stakk starfs­mann í háls­inn með blý­anti

Innlent

Dæmdur fyrir að stela flíkum úr gámi við Zo-On í Kópavogi

Innlent

Tveir menn ákærðir fyrir kyn­ferð­is­leg atlot í barna­laug

Innlent

Vilja bæta við hæð í Sóltúni og fjölga bíla­stæðum við Kletta­garða