Þingmaður segist hafa farið með rangt mál.
Tómas Tómasson, þingmaður, hefur viðurkennt að hafa haft rangt fyrir sér um útivistarsvæðið fyrir framan Tollhúsið. Í Twitter-færslu í gær sagði Tómas: „Það eru tveir staðir þar sem sólin aldrei skín og þetta er annar þeirra. Hverjum datt i hug að fjarlæja bílastæðin og gera útivistarsvæði sem aldrei er eða verður nokkruri manneskju til gleði eða ánægju.“.
Óhætt er að segja viðbrögðin við færslunni hafi verið neikvæð en tugir einstaklinga lýstu í framhaldi hennar ánægju sinni með svæðið og höfðu Tómas að háði og spotti. Tómas hefur dregið í land og biðst afsökunar á orðum sínum í nýrri færslu sem hægt er að lesa hér fyrir neðan.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir