Valur Gunnarsson
„Getur ekkert gert nema reynt að hefna sín á óbreyttum borgurum.“
Valur Gunnarsson
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Pólitík

Þor­gerður svar­aði Sigmundi fullum hálsi eftir frammí­kall á Alþingi

Pólitík

Guð­mundur Ingi greindi frá „einum léleg­asta laga­brand­ara“ Alþingis

Fólk

Fyrrum for­stjóri selur hús með heims­frægan fyrr­ver­andi eig­anda

Innlent

Segir hús­næð­is­mark­að­inn vera „eina stóra svika­myllu“

Innlent

„Ég valdi ekki bílslysið, krabba­meinið eða fötl­un­ina“

Fólk

Flúði Talibana fimm ára en hlaut íslensku­verð­laun þremur árum seinna

Heimur

„Ein­hyrn­ingur“ fannst í Eist­landi

Þórður er dapur

Þórður Snær Júlíusson.
Þórður Snær Júl­í­us­son.

Þórður Snær Júl­í­us­son, annar rit­stjóra Heim­ild­ar­innar, er í erf­iðri stöðu vegna síma­máls Páls Stein­gríms­sonar skip­stjóra. Páll var rændur síma sínum á sjúkar­beði þar sem hann lá í lífs­háska. Gögn úr sím­anum urðu frétta­efni víða þar sem við sögu komu sam­skipti stuðn­ings­manna og starfs­manna Samherja sem vildu rétta af ímynd félags­ins. Kjarninn, sem Þórður rit­stýrði í þá daga, birti gögnin. Við það tæki­færi upp­lýsti Þórður að hann og starfs­fólk fjöl­mið­ils­ins hefði ekki brotið lög þar sem þriðji aðili hefði rænt sím­anum. Þórður hefur und­an­farnin þrjú ár verið með stöðu grun­aðs manns vegna síma­þjófn­að­ar­ins.

Hann bar sig aum­lega í færslu á Facebook í gær. „Í dag eru 877 dagar síðan að mér var til­kynnt um að ég væri með stöðu sak­born­ings í rann­sókn emb­ættis lög­regl­unnar á Norð­ur­landi eystra á mér og nokkrum öðrum blaða­mönnum …,“ skrifar Þórður og rifjar upp að frétta­skrif byggð á gögnum úr síma Páls urðu um „Skæru­liða­deild Samherja”.

Dap­ur­leik­inn svífur yfir vötnum í skrifum Þórðar Snæs sem er kannski skilj­an­legt þegar litið er til þess að næstum tvö ár eru liðin frá einu yfir­heyrsl­unni sem hann hefur verið boð­aður í. Þórður hefur verið orð­aður við mögu­legt þing­fram­boð sem er auð­vitað nán­ast úti­lokað með þann bagga for­tíðar sem hann þarf að bera.

Fullyrt er að Páli hafi verið byrlað áður en síma­þjófn­að­ur­inn átti sér stað. Fæstum dettur í hug að Þórður eigi þar hlut að máli. Hið ein­kenni­lega er þó að rit­stjór­inn úrskurðar að engin byrlun hafi átt sér stað en „lög­reglan von­ast til þess að finna ein­hver sam­skipti sem sýni að blaða­menn hafi víst pantað byrlun (sem átti sér ekki stað) ….“.

Vandséð er hvernig sú vissa er til­komin en fyrir liggur að Páll var á milli heims og helju dögum saman. Á meðan tók fyrr­ver­andi eig­in­kona Páls  síma hans og afhenti starfs­mönnum Rík­is­út­varps­ins sem afrit­uðu tækið án þess þó að birta gögnin á sínum fjöl­miðli. Leitað er að tækni­mann­inum sem ann­að­ist inn­brotið í sím­ann. Þar liggur glæp­ur­inn.

„Ég bíð þá bara áfram,“ eru loka­orðin í færslu Þórðar …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Sigríður Nanna Heimisdóttir segir skólann vinna að úrlausn málsins og býður nemendum sem urðu vitni að atvikinu samtal.
Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Innlent

Bens­ín­verð hækkar hér á landi á meðan heims­mark­aðs­verð lækkar

Pólitík

„Það er eng­inn öruggur í sam­fé­lagi þar sem stjórn­málin leit­ast við að keppa í grimmd“

Heimur

Setti bráð­skemmti­legt heims­met

Slúður

Slúður

Neyð­ar­kall Gunnars Smára