Valur Gunnarsson
„Getur ekkert gert nema reynt að hefna sín á óbreyttum borgurum.“
Valur Gunnarsson
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Pólitík

Þor­gerður svar­aði Sigmundi fullum hálsi eftir frammí­kall á Alþingi

Pólitík

Guð­mundur Ingi greindi frá „einum léleg­asta laga­brand­ara“ Alþingis

Fólk

Fyrrum for­stjóri selur hús með heims­frægan fyrr­ver­andi eig­anda

Innlent

Segir hús­næð­is­mark­að­inn vera „eina stóra svika­myllu“

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Innlent

„Ég valdi ekki bílslysið, krabba­meinið eða fötl­un­ina“

Fólk

Flúði Talibana fimm ára en hlaut íslensku­verð­laun þremur árum seinna

Heimur

„Ein­hyrn­ingur“ fannst í Eist­landi

Sigmundur Davíð: „Stendur til að fella styttuna og dæma þannig löngu látinn mann sekan“

Myndin er samsett
Myndin er sam­sett

„Nú vilja allir full­trúar í borg­ar­ráði fjar­lægja stytt­una af sr. Friðrik Frið­riks­syni, eftir Sigurjón Ólafsson, sem staðið hefur við Lækj­ar­götu í Reykja­vík í 70 ár. Ástæðan er sú að gefið hefur verið í skyn að sr. Friðrik hafi á ein­hvern hátt haft óeðli­legan áhuga á drengjum,“ ritar Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­maður Mið­flokks­ins og fyrrum for­sæt­is­ráð­herra gagn­rýnir ákvörðun borg­ar­ráðs að fjar­lægja eigi styttu séra Friðriks í aðsendri grein sem birt­ist á Viljanum.

Sig­mundur Davíð bendir á að við upp­haf umræð­unnar hafi hann ekki bein­línis verið sak­aður um neitt en sitt­hvað verið gefið í skyn.

„Þá var farið að leita að hlutum eða atburðum og tengja þá saman. Hlutir sem höfðu verið fyrir allra augum fengu nýja merk­ingu.“

Máli sínu til stuðn­ings nefnir hann þrjú dæmi:

„Bent var á að stofn­andi KFUM hefði knúsað unga drengi og klappað þeim. Einn þeirra sem höfðu upp­lifað það sagði að sér hefði þótt það afar óþægi­legt. Annar sagði að sér hefði þótt gott að vera sýnd slík hlýja. Ástæðu­laust er að rengja upp­lifun þeirra.

Dregið var fram að í fórum Sr. Friðriks hefðu verið mynda­albúm (sem nú eru á safni) þar sem væri m.a. að finna myndir af nöktum drengjum í sum­ar­búðum KFUM í Danmörku. Sömu myndir var að finna í öðrum mynda­albú­mum.

Loks var mikið mál gert úr því að sr. Friðrik hefði átt styttu af nöktum dreng sem Tove Ólafsson (kona Sig­ur­jóns) tálg­aði og gaf honum. Eig­and­inn grín­að­ist með það í við­tali að strák­ur­inn væri stundum óþægur. “

Sig­mundur Davíð vill meina að þessi atriði á langri ævi séra Friðriks hafi þannig verið dregin saman og gefin ný merk­ing.

„Eins og þekkt er vilja for­eldrar, ömmur, afar og ekki hvað síst frænkur, knúsa börn og klappa til að sýna þeim vænt­um­þykju. Þótt það sé jafnan eins fjarri því að vera kyn­ferð­is­legt og hugs­ast getur finnst krökkum þetta ekki alltaf skemmti­legt. Rann­sóknir sýna þó að börn hafi gott af því að vera sýnd nánd og vænt­um­þykja,“ bendir Sig­mundur Davíð á og vill þá að fólk hug­leiði eft­ir­far­andi:

„Er hugs­an­legt að atlot hins barn­lausa sr. Friðriks hafi verið af sama toga?“

Sjálfur seg­ist Sig­mundur Davíð ekki vita svarið en að honum hefði örugg­lega þótt klapp frá óskyldum manni óþægi­legt en útlokar ekki að ein­hverjum gæti þótt þau góð: „ … En það er ekki víst að það sama hafi átt við alla, t.d. stráka sem e.t.v. skorti hlýju heima hjá sér.“

Sig­mundur vill ekki meina að hann sé að afsaka sekan mann, heldur að benda á að hvorki hann sé aðrir hafi hug­mynd um sekt hans eða kenndir. Eina sem vitað sé er að hann hafi ekki verið sak­aður um barn­a­níð.

„Engu að síður stendur til að fella stytt­una og dæma þannig löngu lát­inn mann sekan.“

Að end­ingu skrifar Sig­mundur Davíð um málið:

„Það er verið að fórna gildum sem eru til þess fallin að vernda núlif­andi fólk og kyn­slóðir fram­tíð­ar­innar.“

Hér má lesa færslu Sig­mundar Davíðs í heild

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Pútín hótar „sárs­auka­fullum“ hefndum vegna árása á Krímbrúna

Forsetinn segir Rússa ekki muni semja við Úkraínu eftir árásina
Heimur

Shenk varar við nýju tíma­bili óstöð­ug­leika í tækni­málum

Innlent

Lög­reglan á Vest­ur­landi lýsir eftir 14 ára dreng

Fólk

„Í dag eru tíu ár síðan ég varð fyrir nauðgun“

Heimur

Musk seg­ist ekki vera hluti af MAGA-hreyf­ingu Trumps

Innlent

Innlent

Dæmdur fyrir að stela flíkum úr gámi við Zo-On í Kópavogi

Maðurinn mætti ekki við þingfestingu
Innlent

Ásdís Rán vill að Alþingi hringi bjöll­unni

Innlent

Tveir menn ákærðir fyrir kyn­ferð­is­leg atlot í barna­laug

Innlent

Vilja bæta við hæð í Sóltúni og fjölga bíla­stæðum við Kletta­garða

Innlent

Stakk starfs­mann í háls­inn með blý­anti