Valur Gunnarsson
„Getur ekkert gert nema reynt að hefna sín á óbreyttum borgurum.“
Valur Gunnarsson
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Pólitík

Þor­gerður svar­aði Sigmundi fullum hálsi eftir frammí­kall á Alþingi

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Pólitík

Guð­mundur Ingi greindi frá „einum léleg­asta laga­brand­ara“ Alþingis

Fólk

Fyrrum for­stjóri selur hús með heims­frægan fyrr­ver­andi eig­anda

Innlent

Segir hús­næð­is­mark­að­inn vera „eina stóra svika­myllu“

Innlent

„Ég valdi ekki bílslysið, krabba­meinið eða fötl­un­ina“

Fólk

Flúði Talibana fimm ára en hlaut íslensku­verð­laun þremur árum seinna

Heimur

„Ein­hyrn­ingur“ fannst í Eist­landi

Framkvæmdir framundan í Grindavík fyrir hálfan milljarð: „Taka mið af áhættumati hverju sinni“

Und­an­farið hafa stjórn­völd skoðað til­lögur Grinda­vík­ur­nefnd­ar­innar er lúta að við­gerðum í bænum vegna jarð­hrær­ing­anna örlaga­ríku.

Formaður nefnd­ar­innar – Árni Þór Sig­urðs­son – segir að fyrst verði gert við götur og að kostn­aður muni hlaupa á hund­ruðum millj­óna króna.

Grinda­vík­ur­nefndin svo­kall­aða hefur umsjón með fram­kvæmdum og við­gerðum á mik­il­vægum innviðum í Grinda­vík; það er deg­inum ljós­ara að gíf­ur­legar skemmdir hafa orðið í Grinda­vík síðan jarð­hrær­ingar hófust.

Grinda­vík­ur­vegur, eða það sem eftir er af honum.

Ásamt Árna Þór er nefndin skipuð þeim Guðnýju Sverr­is­dóttur, fyrr­ver­andi sveit­ar­stjóra Grýtu­bakka­hrepps, og Gunnari Ein­ars­syni, fyrr­ver­andi bæj­ar­stjóra Garða­bæjar.

Gunnar Ein­ars­son.
Guðný Sverr­is­dóttir.

Nefndin hefur í sam­starfi við bæj­ar­yf­ir­völd í Grinda­vík, ýmis ráðu­neyti, lög­reglu og fleiri kynnt stjórn­völdum til­lögur sínar að við­gerðum.

Árni Þór Sig­urðs­son, Guðný Sverr­is­dóttir og Gunnar Ein­ars­son tóku sæti í sér­stakri fram­kvæmda­nefnd um mál­efni Grinda­víkur.

Svandís Svav­ars­dóttir.

Lög um fram­kvæmda­nefnd­ina voru sam­þykkt á Alþingi og sagði Svandís Svav­ars­dóttir inn­við­a­ráð­herra að „fram­kvæmda­nefnd vegna jarð­hrær­inga í Grinda­vík­urbæ“ sé „mik­il­vægt skref til þess að skerpa á ábyrgð og hlut­verki stjórn­valda um mál­efni Grinda­víkur. Þetta skref er til góðs fyrir Grind­vík­inga. En ekki síður fyrir sam­fé­lagið allt, sem stendur með Grind­vík­ingum á þessum erf­iðu tímum.“

Fram­kvæmda­nefndin fer með stjórn, skipu­lag og fram­kvæmd til­tek­inna verk­efna sem henni er falin með lögum; sam­hæf­ingu aðgerða – tryggja skil­virka sam­vinnu við Grinda­vík­urbæ, önnur stjórn­völd og aðra hlut­að­eig­andi aðila og síð­ast en ekki síst að hafa heild­ar­yf­ir­sýn yfir mál­efni Grinda­vík­ur­bæjar.

Fram­kvæmda­nefndin er fjöl­skipað og sjálf­stætt stjórn­vald; hefur með höndum verk­efni er snúa að úrlausn­ar­efnum er tengj­ast jarð­hrær­ing­unum við Grinda­vík. Munu helstu verk­efni nefnd­ar­innar snúa að sam­fé­lags­þjón­ustu með því að starf­rækja þjón­ustuteymi á sviði vel­ferðar- og skóla­þjón­ustu; þá mun nefndin hafa yfir­um­sjón með fram­kvæmdum og við­gerðum á mik­il­vægum innviðum í Grinda­vík.

Verk­efnið hefur verið und­ir­búið í sam­starfi við bæj­ar­stjórn Grinda­víkur – sem óskaði eftir sam­starfi um til­högun og stjórn­ar­fyr­ir­komu­lag verk­efna við óvenju­legar aðstæður vegna jarð­hrær­inga í Grinda­vík.

Mannlíf ræddi við Árna Þór vegna aðgerða­á­ætl­unar Grinda­vík­ur­nefnd­ar­innar. Í máli hans kemur fram að áætl­unin hefur verið sam­þykkt en að fram­kvæmdir séu þó ekki hafnar:

„Und­ir­bún­ingur er haf­inn. Sérstakt fram­kvæmdateymi hefur verið sett á lagg­irnar til að halda utan um verk­efnið.“

Árni Þór segir aðspurður að „áætl­aður kostn­aður vegna þeirra inn­viða­fram­kvæmda sem til stendur að fara í í þessum áfanga er um 450 millj­ónir króna.“

Hann bendir á að „inni í þeirri tölu er meðal ann­ars kostn­aður við lag­fær­ingar á sjó­varn­ar­garði og einnig kaup á girð­ingum til að girða af svæði sem talin eru hættu­leg.“

Árni Þór er spurður að því hver sé meg­in­til­gangur þess­ara fram­kvæmda. Hann segir að mark­miðið og til­gang­ur­inn sé að „auka öryggi í bænum og þær [fram­kvæmd­irnar, inn­skot blm] eru einnig for­sendur þess að unnt sé að draga úr eða aflétta lok­unum með öruggum hætti. Þá munu fram­kvæmdir taka mið af áhættu­mati hverju sinni.“

Árni Þór á ekki „von á því að málið drag­ist lengi; við höfum gert ágæt­lega grein fyrir þessu; ég hef ekki orðið var við annað en að það sé góður skiln­ingur á því að það sé mik­il­vægt að nýta tím­ann núna; nýta sum­arið til fram­kvæmda.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Sigríður Nanna Heimisdóttir segir skólann vinna að úrlausn málsins og býður nemendum sem urðu vitni að atvikinu samtal.
Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Innlent

Bens­ín­verð hækkar hér á landi á meðan heims­mark­aðs­verð lækkar

Pólitík

„Það er eng­inn öruggur í sam­fé­lagi þar sem stjórn­málin leit­ast við að keppa í grimmd“

Heimur

Setti bráð­skemmti­legt heims­met

Innlent

Innlent

Lög­reglan á Vest­ur­landi lýsir eftir 14 ára dreng

Talið er að hann sé á höfuðborgarsvæðinu eða mögulega á Akranesi.
Innlent

Stakk starfs­mann í háls­inn með blý­anti

Innlent

Dæmdur fyrir að stela flíkum úr gámi við Zo-On í Kópavogi

Innlent

Tveir menn ákærðir fyrir kyn­ferð­is­leg atlot í barna­laug

Innlent

Vilja bæta við hæð í Sóltúni og fjölga bíla­stæðum við Kletta­garða