Lögreglu barst tilkynning í gærkvöldi vegna umferðaróhapps. Þar hafði verið ekið á einstakling í hjólastól en slysið átti sér stað á Seltjarnarnesi. Meiðslin voru talin minniháttar en ekki kemur fram í dagbók lögreglu hvort einhver hafi verið fluttur á sjúkrahús.
Síðar um nóttina hafði lögregla afskipti af fjórum einstaklingum sem allir eru grunaðir um vörslu fíkniefna. Tveir þeirra voru vistaðir í fangaklefa vegna rannsókn málsins. Þá sinnti lögregla reglubundnu umferðareftirliti. Einn ökumaður var stöðvaður en sá er grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir