Valur Gunnarsson
„Getur ekkert gert nema reynt að hefna sín á óbreyttum borgurum.“
Valur Gunnarsson
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Pólitík

Þor­gerður svar­aði Sigmundi fullum hálsi eftir frammí­kall á Alþingi

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Pólitík

Guð­mundur Ingi greindi frá „einum léleg­asta laga­brand­ara“ Alþingis

Fólk

Fyrrum for­stjóri selur hús með heims­frægan fyrr­ver­andi eig­anda

Innlent

Segir hús­næð­is­mark­að­inn vera „eina stóra svika­myllu“

Innlent

„Ég valdi ekki bílslysið, krabba­meinið eða fötl­un­ina“

Fólk

Flúði Talibana fimm ára en hlaut íslensku­verð­laun þremur árum seinna

Heimur

„Ein­hyrn­ingur“ fannst í Eist­landi

Unglingur í Kópavogi með kúbein hótaði að drepa lögreglumenn – Rugluð kona braut rúðu í stigagangi

Kópavogur.
Kópa­vogur.

Ölvuð og snar­rugluð kona braut rúðu i stiga­gangi fjöl­býl­is­húss og tók sér þar ból­festu. Þegar lög­reglu bar að garði var hún til leið­inda og neit­aði að yfir­gefa stað­inn. „Konan ekki í ástandi til að vera meðal almenn­ings og hún því vistuð í klefa,“ segir í Dagbók lög­regl­unnar. Á sömu slóðum var brot­ist inn í geymslur í fjöl­býli í Reykja­vík. Málið í rann­sókn.

Dósa­þjófar voru staðnir að verki við iðju sína. Aðil­arnir voru hand­teknir þar sem grunur var uppi um skipu­lagða brota­starf­semi. Dósa­þjófarnir voru vistaðir í klefa í þágu rann­sóknar máls­ins.

Tilkynnt um hnupl í stór­vöru­verslun. Fram­burður tek­inn af sak­born­ing á vett­vangi.
Ökumaður, sem stöðv­aður í umferð­inni, reynd­ist vera án gildra öku­rétt­inda. Þá var barn bíl­stjór­ans ekki í örygg­is­belti. Hinn brot­legi á yfir höfði sér sekt.

Lögregla var kölluð til vegna þriggja ung­linga sem brutu rúðu á húsi í íbúða­hverfi í Kópavogi. Þeir voru horfnir á braut áður en lög­regla kom. Hinir brot­legu komu síðan aftur og brutu aðra rúðu og lögðu síðan á flótta út í nótt­ina. Skömmu síðar barst lög­reglu til­kynn­ing um að þeir væru að brjóta rúðu í stræt­is­vagna­skýli.
Lögregla hafði uppi á drengj­unum. Þá kom í ljós að þeir voru með kúbein, hamar og hníf með­ferðis. Einn drengj­anna réðst á lög­reglu­mann með bar­efli við hand­töku þre­menn­ing­anna áður en hann var yfir­bug­aður.

Tveir drengj­anna voru undir 18 ára aldri og einn þeirra undir 15 ára aldri. Sá sem réðst á lög­reglu­mann­inn reynd­ist vera 18 ára og var hann vistaður í klefa. Hinir tveir voru fluttir í önnur úrræði í sam­ráði við for­eldra og barna­vernd­ar­nefnd. Einn drengj­anna hót­aði ítrekað að drepa lög­reglu­menn­ina. Drengirnir eiga yfir höfði sér fjölda kæra vegna máls­ins.

Í morg­unsárið voru sjö manns læstir inni í fanga­klefum lög­regl­unnar fyrir ýmsar sakir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Faðmlög á göngum þingsins og hvatning milli þingmanna sjást sjaldan utan þess, sagði Diljá Mist Einarsdóttir í ræðu sinni.
Innlent

Bens­ín­verð hækkar hér á landi á meðan heims­mark­aðs­verð lækkar

Pólitík

„Það er eng­inn öruggur í sam­fé­lagi þar sem stjórn­málin leit­ast við að keppa í grimmd“

Heimur

Setti bráð­skemmti­legt heims­met

Heimur

Pútín hótar „sárs­auka­fullum“ hefndum vegna árása á Krímbrúna

Innlent

Innlent

Lög­reglan á Vest­ur­landi lýsir eftir 14 ára dreng

Talið er að hann sé á höfuðborgarsvæðinu eða mögulega á Akranesi.
Innlent

Stakk starfs­mann í háls­inn með blý­anti

Innlent

Dæmdur fyrir að stela flíkum úr gámi við Zo-On í Kópavogi

Innlent

Tveir menn ákærðir fyrir kyn­ferð­is­leg atlot í barna­laug

Innlent

Vilja bæta við hæð í Sóltúni og fjölga bíla­stæðum við Kletta­garða