1
Innlent

Ráðist gegn rekstri Fúsa handboltakappa

2
Innlent

Ingunn sögð hafa kýlt fórnarlamb sitt með hnúajárni

3
Fólk

Guðmundur Felix búinn í aðgerð

4
Peningar

Laun þekktra Íslendinga sem heita dýranöfnum

5
Pólitík

Ólafur Ragnar sakar já-hliðina um „leikhúsfarsa“

6
Innlent

„Líklega ein furðulegasta frétt í fjölmiðlasögu Íslands“

7
Heimur

Fundu lík tveggja manna 34 árum eftir hvarf þeirra

8
Peningar

Eyfi lifir í draumi í nýju fyrirtæki

9
Innlent

Halal-slátrun heldur áfram á Íslandi

10
Innlent

Innkalla sólgleraugu sem geta aukið slysahættu

Til baka

Upprunaábyrgðir í felum hjá VAXA

Þurfa að kaupa sérstakar upprunaábyrgðir sem staðfesta uppruna orkunnar.

Vaxa
Húsnæði VAXA
Mynd: Vaxa

VAXA Technologies hefur hafnað því að afhenda upplýsingar um upprunaábyrgðir raforku sem fyrirtækið notar, þrátt fyrir að hafa lagt ríka áherslu á að starfsemin byggi á endurnýjanlegri orku frá Hellisheiðarvirkjun.

Þetta kemur fram í umfjöllun Heimildarinnar þar sem rekstur fyrirtækisins, markaðssetning og fullyrðingar um umhverfisáhrif eru teknar til skoðunar. Þar er meðal annars fjallað um hvernig VAXA ræktar smáþörunga með orku frá Hellisheiðarvirkjun og nýtir spirúlínu meðal annars í verkefni sem tengjast vannærðum börnum í Afríku.

Samkvæmt Heimildinni sagði VAXA í svari við fyrirspurn að fyrirtækið afhenti ekki upplýsingar um upprunaábyrgðir. Í staðinn var bent á að fyrirtækið væri beintengt Hellisheiðarvirkjun og notaði því græna orku.

Í umfjölluninni er hins vegar bent á að fjölmörg fyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu séu tengd sömu virkjun. Til að geta fullyrt opinberlega að raforkan sé endurnýjanleg þurfi fyrirtæki almennt að kaupa sérstakar upprunaábyrgðir sem staðfesta uppruna orkunnar.

Orka náttúrunnar, sem selur VAXA raforku, vildi ekki staðfesta hvort fyrirtækið kaupi slíkar ábyrgðir og vísaði til viðskiptaleyndar.

Landsvirkjun greindi hins vegar frá því við Heimildina að fjórir stórnotendur kaupi upprunaábyrgðir samkvæmt sérstökum samningum við fyrirtækið. Þar eru nefnd gagnaverin Verne Global og atNorth auk landeldisfyrirtækjanna First Water og Laxey.

Til samanburðar óskaði blaðamaður Heimildarinnar eftir staðfestingu frá First Water á kaupum fyrirtækisins á upprunaábyrgðum. Samkvæmt fréttinni barst sú staðfesting innan tveggja klukkustunda.

Eggert Þór Kristófersson, forstjóri First Water, segir í samtali við Heimildina að hann sjái ekki hvernig upplýsingar um upprunaábyrgðir geti talist viðskiptaleyndarmál þegar tilgangur þeirra sé einmitt að sýna fram á að fyrirtæki noti endurnýjanlega orkugjafa.

„Það eru engin leyndarmál í þessu. Við erum að kaupa raforku með vottun um uppruna. Það má alveg birta það,“ sagði Eggert Þór.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Kranakall skattakóngur 2025 á Íslandi
Peningar

Kranakall skattakóngur 2025 á Íslandi

Finnsk móðir ákærð fyrir að flytja börn sín til Sýrlands
Heimur

Finnsk móðir ákærð fyrir að flytja börn sín til Sýrlands

Ófullkomin en fullkomlega hægt að elska
Fólk

Ófullkomin en fullkomlega hægt að elska

Halal-slátrun heldur áfram á Íslandi
Innlent

Halal-slátrun heldur áfram á Íslandi

Gæti verið að kvikmynda þig í laumi
Innlent

Gæti verið að kvikmynda þig í laumi

Sameinuðu þjóðirnar segja Höllu Sif vera kvenhetju
Fólk

Sameinuðu þjóðirnar segja Höllu Sif vera kvenhetju

Kjartan Hreinn kominn með nýtt gigg
Fólk

Kjartan Hreinn kominn með nýtt gigg

Lögreglumenn á Vestfjörðum verulega ósáttir
Landið

Lögreglumenn á Vestfjörðum verulega ósáttir

Draga ofurhækkun á lægstu tekjuhópana til baka að hluta
Pólitík

Draga ofurhækkun á lægstu tekjuhópana til baka að hluta

Koma upp móttökuskýlum fyrir flóttamenn í Ceuta
Heimur

Koma upp móttökuskýlum fyrir flóttamenn í Ceuta

Limminnsti maður heims fagnar
Heimur

Limminnsti maður heims fagnar

Ráðist gegn rekstri Fúsa handboltakappa
Myndband
Innlent

Ráðist gegn rekstri Fúsa handboltakappa

Guðmundur Felix búinn í aðgerð
Fólk

Guðmundur Felix búinn í aðgerð

Innlent

Halal-slátrun heldur áfram á Íslandi
Innlent

Halal-slátrun heldur áfram á Íslandi

Sláturhússtjóri segir vottunina mikilvæga
Innkalla sólgleraugu sem geta aukið slysahættu
Innlent

Innkalla sólgleraugu sem geta aukið slysahættu

Gæti verið að kvikmynda þig í laumi
Innlent

Gæti verið að kvikmynda þig í laumi

Ráðist gegn rekstri Fúsa handboltakappa
Myndband
Innlent

Ráðist gegn rekstri Fúsa handboltakappa

Ingunn sögð hafa kýlt fórnarlamb sitt með hnúajárni
Innlent

Ingunn sögð hafa kýlt fórnarlamb sitt með hnúajárni

Skemmtilegt svar við franska utanvegahneykslinu
Innlent

Skemmtilegt svar við franska utanvegahneykslinu

Loka auglýsingu