Valur Gunnarsson
„Getur ekkert gert nema reynt að hefna sín á óbreyttum borgurum.“
Valur Gunnarsson
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Pólitík

Þor­gerður svar­aði Sigmundi fullum hálsi eftir frammí­kall á Alþingi

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Pólitík

Guð­mundur Ingi greindi frá „einum léleg­asta laga­brand­ara“ Alþingis

Fólk

Fyrrum for­stjóri selur hús með heims­frægan fyrr­ver­andi eig­anda

Innlent

Segir hús­næð­is­mark­að­inn vera „eina stóra svika­myllu“

Innlent

„Ég valdi ekki bílslysið, krabba­meinið eða fötl­un­ina“

Fólk

Flúði Talibana fimm ára en hlaut íslensku­verð­laun þremur árum seinna

Heimur

„Ein­hyrn­ingur“ fannst í Eist­landi

Þrír læknanemar sakaðir um alvarleg brot í starfi: „Þetta er alls ekki í lagi“

Þrír læknanemar ræddu um sjúklinga í sundin – Myndin er samsett
Þrír lækna­nemar ræddu um sjúk­linga í sundin – Myndin er sam­sett

Lækna­nemar sagðir hafa brotið trúnað í sundi.

Þrír lækna­nemar lækna­deildar Háskóla Íslands ræddu sjúkra­sögu nafn­greindra ein­stak­linga sín á milli í heitum potti í sund­laug á höf­uð­borg­ar­svæð­inu nú um helg­ina. Lýsti einn lækna­nem­inn sam­skiptum sínum við nafn­greinda eldri konu á niðr­andi máta. Þar að auki ræddu lækna­nem­arnir á niðr­andi hátt um ónafn­greinda sjúk­linga ásamt þess að ræða um sið­fræði­kúrs sem einn þeirra hafði klárað og bauðst til hjálpa hinum með. Á annan tug sund­gesta sátu á sama svæði og nem­arnir meðan umræð­urnar áttu sér stað en þær vörðu í rúmar 15 mín­útur. Nokkuð ljóst er að um alvar­leg brot á per­sónu­vernd er um að ræða.

„Það sem lækna­nemar gera hérna er að skrifa undir þagn­ar­skyldu strax á fyrsta ári, sem er svo ítrekað reglu­lega til þeirra. Við tökum þessu mjög alvar­lega. Ég er búinn að ræða við kennslu­stjóra deild­ar­innar og það sem við getum gert að ítreka að svona mál hafi komið upp og þetta sé alvar­legt,“ sagði Þórarinn Guð­jóns­son, for­seti lækna­deildar HÍ, í sam­tali við Mannlíf. Þórarinn von­ast eftir því að lækna­nem­arnir gefi sig fram en efast þó um að þeir geri það.

„Ég mun ræða þetta við for­stjóra Land­spít­al­ans líka, ég fer fund með honum í dag. Þetta er mjög alvar­legt mál. Þetta er eitt af því sem við leggjum gríð­ar­lega áherslu á, það er per­sónu­verndin. Það er ljóst að þau eiga að vera mjög með­vituð um hversu við­kvæmar upp­lýs­ingar þau kom­ast í,“ sagði Þórarinn um málið.

„Við munum setja þá ferla í gang sem við höfum hérna. Það er þá fyrst og fremst ítrekun við nem­ana og þeir yfir­menn sem snúa að þessu verði upp­lýstir að svona atburður átti sér stað. Þetta er alls ekki í lagi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Faðmlög á göngum þingsins og hvatning milli þingmanna sjást sjaldan utan þess, sagði Diljá Mist Einarsdóttir í ræðu sinni.
Innlent

Bens­ín­verð hækkar hér á landi á meðan heims­mark­aðs­verð lækkar

Pólitík

„Það er eng­inn öruggur í sam­fé­lagi þar sem stjórn­málin leit­ast við að keppa í grimmd“

Heimur

Setti bráð­skemmti­legt heims­met

Heimur

Pútín hótar „sárs­auka­fullum“ hefndum vegna árása á Krímbrúna

Innlent

Innlent

Lög­reglan á Vest­ur­landi lýsir eftir 14 ára dreng

Talið er að hann sé á höfuðborgarsvæðinu eða mögulega á Akranesi.
Innlent

Stakk starfs­mann í háls­inn með blý­anti

Innlent

Dæmdur fyrir að stela flíkum úr gámi við Zo-On í Kópavogi

Innlent

Tveir menn ákærðir fyrir kyn­ferð­is­leg atlot í barna­laug

Innlent

Vilja bæta við hæð í Sóltúni og fjölga bíla­stæðum við Kletta­garða