Valur Gunnarsson
„Getur ekkert gert nema reynt að hefna sín á óbreyttum borgurum.“
Valur Gunnarsson
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Pólitík

Þor­gerður svar­aði Sigmundi fullum hálsi eftir frammí­kall á Alþingi

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Pólitík

Guð­mundur Ingi greindi frá „einum léleg­asta laga­brand­ara“ Alþingis

Fólk

Fyrrum for­stjóri selur hús með heims­frægan fyrr­ver­andi eig­anda

Innlent

Segir hús­næð­is­mark­að­inn vera „eina stóra svika­myllu“

Innlent

„Ég valdi ekki bílslysið, krabba­meinið eða fötl­un­ina“

Fólk

Flúði Talibana fimm ára en hlaut íslensku­verð­laun þremur árum seinna

Heimur

„Ein­hyrn­ingur“ fannst í Eist­landi

„Það ríkir neyðarástand í samfélaginu sem kallar á setningu neyðarlaga til að stöðva þetta“

Ríkisstjórn Íslands sem kolféll í kosningunum.
Rík­is­stjórn Íslands sem kol­féll í kosn­ing­unum.

Inga Sæland lætur vaða í grein sem ber yfir­skrift­ina: ÉG ÞORI!

Leggur af stað:

„Enginn sem freistar þess að koma sér þaki yfir höf­uðið í því stjórn­leysi sem hér ríkir, getur gert sér í hug­ar­lund hvaða vinnu­þrælkun og fjötrar munu binda hann til fram­tíðar. Þá er ég að miða við að sá hinn sami ætli að reyna að þrauka í því vaxta­ok­ursum­hverfi sem íslensk stjórn­völd hafa búið honum og taki það á sig að greiða íbúð­ina sína marg­falt til baka með því að vinna myrkr­anna á milli í von um að missa ekki heim­ilið sitt í græðg­is­kjaft lána­stofn­ana.“

Inga Sæland, for­maður Flokks fólks­ins

Gefur í:

„Það þarf engan að undra að barn­eignum fari fækk­andi og nú sé svo komið að fæstir treysta sér til að eign­ast fleiri en eitt barn. Ástæðan er aug­ljós — hér er rekin and­fjöl­skyldu­stefna þar sem fjöl­skyldan er ekki lengur horn­steinn sam­fé­lags­ins heldur græðgi og arð­rán sem framið er á þjóð­inni um hábjartan dag, hvern ein­asta dag!“

Inga telur að það sé „með ólík­indum þetta lang­lund­ar­geð okkar, rúmum 15 árum eftir að Sjálf­stæð­is­flokkur undir stjórn Geirs H. Haarde, Þor­gerðar Katrínar og Fram­sóknar undir stjórn Guðna Ágústs­sonar og Val­gerðar Sverr­is­dóttur komu okkur á kaldan klaka í efna­hags­hrun­inu 2008.

Val­gerður Sverr­is­dóttir.

Þegar spila­borgin þeirra hrundi höfðu þau keppst við að mæra einka­væð­ingu bank­anna, eng­inn þó eins og Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn sem hrein­lega hélt ekki vatni yfir þeirri snilld sem það væri að koma fjár­mála­kerf­inu frá rík­inu í hendur einka­að­ila.“

Bjarni Bene­dikts­son.

Hún færir í tal að „sagan sýnir okkur að þessir aðilar voru ekki aðeins mis­vitrir heldur kafn­andi úr græðgi sem hirti ekki um eld­inn sem þeir báru að sam­fé­lag­inu í heild sinni. Því er óhætt að full­yrða að fáir sluppu við bruna­sárin eftir bæði þessa van­hæfu rík­is­stjórn og græðgi þeirra sem eign­uð­ust bank­ana fyrir lítið. Nú er sagan að end­ur­taka sig, nema að þessu sinni eru það Sjálf­stæð­is­flokkur, Framsókn og VG sem stýra efna­hags­hrun­inu sem nú á sér stað og nú er það vís­vit­andi skort­stefna á hús­næð­is­mark­aði sem leiðir sam­fé­lagið á högg­stokk­inn.“

Heldur áfram för sinni:

„Nú eru það bank­arnir og líf­eyr­is­sjóð­irnir sem með okur­vöxtum sínum halda sam­fé­lag­inu í úlfa­kreppu vinnu­þrælk­unar. Þar sem stór­kost­legir fjár­magns­flutn­ingar eiga sér stað frá vinn­andi stéttum og öllum þeim sem skulda þeim pen­inga, hvort sem um er að ræða ein­stak­linga eða fyr­ir­tæki. Það er ömur­legt að horfa upp á van­hæfni rík­is­stjórn­ar­innar sem aug­ljós­lega ræður ekki við eigin mis­tök skort­stefn­unnar sem átti að færa þeim allar eignir okkar á silf­ur­fati og koma okkur öllum á náðir græðg­isvæddra leigu­fé­laga.

Þau gleymdu að taka til­lit til þess að sam­fé­lagið í heild myndi riða til falls. Allir inn­viðir standa á brauð­fótum og stjórn­völd ráða engan veg­inn við verk­efnið. Húsið stendur í björtu báli og einu ráðin sem þessir áskrif­endur að laun­unum sínum hafa er að hella olíu á eld­inn.

Alþingi þarf að kalla saman strax!“

Hún telur að það ríki „neyð­ar­á­stand í sam­fé­lag­inu sem kallar á setn­ingu neyð­ar­laga til að stöðva þetta vaxta­ok­ur­brjál­æði. Stórum hluta þjóð­ar­innar er að blæða út, þeir einu sem láta sér á sama standa eru þeir sem hrein­lega græða á okr­inu og eru með alla vasa fulla af pen­ing­unum okkar. Þeim er sama þótt heim­ilin brenni upp í log­unum sem þeir kæra sig ekki um að slökkva.“

Inga segir í lokin:

„Það má aldrei láta sér á sama standa hverjir stjórna land­inu okkar, það má aldrei gleyma sög­unni og þeim hörm­ungum sem þessir flokkar hafa leitt yfir okkur. Það er í okkar valdi að víkja þessu fólki frá völdum í kjör­klef­anum.

ÉG ÞORI!“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Sigríður Nanna Heimisdóttir segir skólann vinna að úrlausn málsins og býður nemendum sem urðu vitni að atvikinu samtal.
Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Innlent

Bens­ín­verð hækkar hér á landi á meðan heims­mark­aðs­verð lækkar

Pólitík

„Það er eng­inn öruggur í sam­fé­lagi þar sem stjórn­málin leit­ast við að keppa í grimmd“

Heimur

Setti bráð­skemmti­legt heims­met

Innlent

Innlent

Lög­reglan á Vest­ur­landi lýsir eftir 14 ára dreng

Talið er að hann sé á höfuðborgarsvæðinu eða mögulega á Akranesi.
Innlent

Stakk starfs­mann í háls­inn með blý­anti

Innlent

Dæmdur fyrir að stela flíkum úr gámi við Zo-On í Kópavogi

Innlent

Tveir menn ákærðir fyrir kyn­ferð­is­leg atlot í barna­laug

Innlent

Vilja bæta við hæð í Sóltúni og fjölga bíla­stæðum við Kletta­garða