Valur Gunnarsson
„Getur ekkert gert nema reynt að hefna sín á óbreyttum borgurum.“
Valur Gunnarsson
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Pólitík

Þor­gerður svar­aði Sigmundi fullum hálsi eftir frammí­kall á Alþingi

Pólitík

Guð­mundur Ingi greindi frá „einum léleg­asta laga­brand­ara“ Alþingis

Fólk

Fyrrum for­stjóri selur hús með heims­frægan fyrr­ver­andi eig­anda

Innlent

Segir hús­næð­is­mark­að­inn vera „eina stóra svika­myllu“

Innlent

„Ég valdi ekki bílslysið, krabba­meinið eða fötl­un­ina“

Fólk

Flúði Talibana fimm ára en hlaut íslensku­verð­laun þremur árum seinna

Heimur

„Ein­hyrn­ingur“ fannst í Eist­landi

Chris Burkard ljósmyndari elskar Ísland: „Mamma var ólétt að syrgja pabba minn 16 ára gömul“

Chris Buckard
Chris Buckard Mynd: Chris Buckard

„Ég fæ aldrei nóg af Íslandi og hef elskað landið frá því ég kom hingað,“ segir Chris Burkard ljós­mynd­ari sem und­an­farin ár hefur deilt ljós­myndum frá Íslandi með millj­ónum fylgj­enda sinna. Chris, sem er nýjasti gest­ur­inn í podcasti Sölva Tryggva­sonar  segir íslenska æðru­leysið krist­all­ast í setn­ing­unni „Þetta redd­ast”:

„Ég fann það strax og ég kom hingað að það var eitt­hvað algjör­lega sér­stakt hér sem maður finnur hvergi ann­ars staðar. Fólkið sem byggði þetta land hefur þurft að þróa með sér ótrú­lega seiglu og þraut­seigju, enda aðstæð­urnar oft gríð­ar­lega harðar. Eftir að ég fór að dvelja hér lengur fór ég að skilja betur þjóð­arsál­ina og eins og ann­ars staðar eru vanda­mál og erf­ið­leikar, en það er eitt­hvað alveg sér­stakt æðru­leysi í Íslend­ingum, sem mér finnst krist­all­ast í setn­ing­unni: „Þetta redd­ast“. Það tekur mann tíma að skilja hvað þessi setn­ing útskýrir margt í hug­ar­fari Íslend­inga. Þegar fólk hefur þurft að búa við aðstæður eins og voru hér á árum áður og eru stundum enn, þá verður til hug­ar­far sem er allt öðru­vísi en á stöðum þar sem veðrið er eins allt árið og það er hægt að ganga að hlutum vísum,“ segir Chris, sem nú hefur flutt til Íslands alfarið, frá sól­inni í Kali­forníu, þar sem hann hefur varið stærstum hluta ævinnar:

„Ég fæ inni­lok­un­ar­kennd ef ég dvel lengi í stór­borgum og nátt­úran togar alltaf í mig. Ég skil vel að fólki finn­ist það skrýtið að flytj­ast frá Kali­forníu til Íslands og á ákveð­inn hátt er það lík­lega rétt. En bæði ég og konan mín vorum farin að upp­lifa ákveðna stöðun og skort á vexti. Lífið má ekki verða of auð­velt og ég er ekki hann­aður fyrir að fest­ast í þæg­ind­ara­mma. Og alveg frá því að ég kom hingað fyrst fann ég eitt­hvað sem hefur togað í mig alveg síðan. Svo hefur það bara auk­ist eftir því sem ég hef verið hér meira, fengið að sjá stærri hluta af land­inu og myndað við ótrú­legar aðstæður.“

Chris kemur úr erf­iðum aðstæðum, þar sem móðir hans var aðeins 17 ára þegar hún eign­að­ist hann og faðir hans lét lífið á meðan á með­göng­unni stóð:

„Blóð­faðir minn lét lífið á meðan ég var í mag­anum á móður minni, þannig að mamma var ólétt að syrgja hann aðeins 16 ára gömul. Það er rosa­legt fyrir mig að hugsa um stöð­una sem hún var í á þessum tíma og hve sterk hún var að fara ekki í fóst­ur­eyð­ingu. Ég held að það að koma úr þessum aðstæðum hafi mótað mig gríð­ar­lega. Ég þró­aði ungur með mér mikið sjálf­stæði, dugnað og vinnu­semi, en síðar þurfti ég að leita mér aðstoðar sér­fræð­inga til að vinna úr æsk­unni og ýmsum áföllum.“

Fylgj­endur Chris á sam­fé­lags­miðlum telja millj­ónir og aðeins á Instagram fylgja honum fjórar millj­ónir. Hann segir lyk­il­inn að því að skila góðu starfi vera að kunna að segja nei, kunna að end­ur­nýja sig reglu­lega og tengja við ástríð­una sem kom honum af stað þegar hann var að byrja:

„Það er líka lyk­il­at­riði að týna sér ekki í við­brögðum ann­arra, sér­stak­lega þegar sam­fé­lags­miðl­arnir eru orðnir stórir. Það er mjög auð­velt að fara í kulnun og þreytu ef maður end­ur­nýjar sig ekki stans­laust og fyllir glasið sitt mjög reglu­lega. Alveg sama hversu skemmti­legt starfið þitt er og hversu mikið þú elskar það í byrjun, þá mun glans­inn fara á ein­hverjum punkti. Það verður alltaf þannig í öllum störfum að fólk upp­lifir hæðir og lægðir, alveg sama hvað maður fær mikið borgað, eða hve margir dást að störfum manns. Mín leið til að halda í ástríð­una í því sem ég geri er að fylla ork­una mína og gera hluti sem hlaða mig og kunna að segja nei. Hvort sem það er hreyf­ing, tími með fjöl­skyldu, hlúa að heim­il­inu eða hvað svo sem virkar fyrir þig. Svo fer ég í kalda potta, geri yoga og reyni að huga að heils­unni alla daga.“

Störfin sem Chris vinnur krefj­ast þess af honum að halda sér í góðu lík­am­legu formi, þar sem hann myndar oft við mjög krefj­andi aðstæður og hefur einnig myndað afrek­s­í­þrótta­fólk á meðan það er í keppni:

„Stundum þarf ég að gera mitt besta til að halda í við fólk á heims­mæli­kvarða með bún­að­inn og ef ég á að geta skilað vinn­unni minni af mér verð ég að vera í topp­standi. Ég hef stundað mikið af íþróttum í gegnum tíð­ina og það kemur að góðum notum í vinn­unni minni. Ég er ekki nálægt því að vera á heims­mæli­kvarða sem íþrótta­maður eins og sumt af fólk­inu sem ég mynda, en er ágæt­lega á mig kom­inn,“ segir Chris, sem talar þarna af þó nokk­urri hóg­værð, enda hefur hann hjólað þvert yfir Ísland við mjög erf­iðar aðstæður, hlaupið Lauga­veg­inn á góðum tíma og hann sigr­aði WOW Cyclothon á sínum tíma og sló ein­stak­lings­met keppn­inn­ar í leið­inni:

„Minn­ing­arnar af keppn­inni eru frá­bærar. Það voru regn­bogar og fal­legur vindur og svo allt í einu á suð­ur­strönd­inni varð fjand­inn laus og ég hélt á tíma­bili að ég ég myndi fjúka á hlið­ina. En ég stopp­aði ekki, hélt áfram, nýtti mér með­vind­inn og þegar upp var staðið kom ég í mark á býsna góðum tíma. Þessi keppni er ein af fjöl­mörgum ótrú­legum minn­ingum sem ég á af tíma mínum hér og von­andi verða þær miklu miklu fleiri.“

Hægt er að nálg­ast við­talið við Chris og öll við­töl og podcöst Sölva Tryggva­sonar inni á sol­vi­tryggva.is

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Sigríður Nanna Heimisdóttir segir skólann vinna að úrlausn málsins og býður nemendum sem urðu vitni að atvikinu samtal.
Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Innlent

Bens­ín­verð hækkar hér á landi á meðan heims­mark­aðs­verð lækkar

Pólitík

„Það er eng­inn öruggur í sam­fé­lagi þar sem stjórn­málin leit­ast við að keppa í grimmd“

Heimur

Setti bráð­skemmti­legt heims­met

Innlent

Innlent

Lög­reglan á Vest­ur­landi lýsir eftir 14 ára dreng

Talið er að hann sé á höfuðborgarsvæðinu eða mögulega á Akranesi.
Innlent

Stakk starfs­mann í háls­inn með blý­anti

Innlent

Dæmdur fyrir að stela flíkum úr gámi við Zo-On í Kópavogi

Innlent

Tveir menn ákærðir fyrir kyn­ferð­is­leg atlot í barna­laug

Innlent

Vilja bæta við hæð í Sóltúni og fjölga bíla­stæðum við Kletta­garða