Valur Gunnarsson
„Getur ekkert gert nema reynt að hefna sín á óbreyttum borgurum.“
Valur Gunnarsson
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Pólitík

Þor­gerður svar­aði Sigmundi fullum hálsi eftir frammí­kall á Alþingi

Pólitík

Guð­mundur Ingi greindi frá „einum léleg­asta laga­brand­ara“ Alþingis

Fólk

Fyrrum for­stjóri selur hús með heims­frægan fyrr­ver­andi eig­anda

Innlent

Segir hús­næð­is­mark­að­inn vera „eina stóra svika­myllu“

Innlent

„Ég valdi ekki bílslysið, krabba­meinið eða fötl­un­ina“

Fólk

Flúði Talibana fimm ára en hlaut íslensku­verð­laun þremur árum seinna

Heimur

„Ein­hyrn­ingur“ fannst í Eist­landi

Veltir fyrir sér áformum CARBIX: „Getur það verið umhverfisvænt að flytja drullu álfa á milli?“

Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir
Steinunn Ólína Þor­steins­dóttir Mynd: Kári Sverris

Steinunn Ólína Þor­steins­dóttir spyr hvað Ísland græði á því að taka á móti „drullu“ frá öðrum þjóðum í til­raun til að temja mengun, frekar en að minnka hana.

Í nýrri Facebook-færslu talar Steinunn Ólína, leik­kona og fyrrum for­seta­fram­bjóð­andi, um fyr­ir­tækið CARBFIX, sem mikið er á milli tann­anna á fólki um þessar mundir.

„CARBFIX er umræðu­efni dag­anna. Talið er að mann­kynið beri gríð­ar­lega mikla ábyrgð á mik­illi losun kolefna sem valda svo umhverf­isvá eins og hækkun sjáv­ar­máls, hlýnun jarðar, mengun o.sfrv. Hér er æsandi og óhuggu­legt yfir­lit fyrir áhuga­sama.

https://www.wri.org/…/2023-ipcc-ar6-synthesis-report…

“

Þannig hefst færsla Stein­unnar og hún heldur áfram:

„Auðvitað væri skyn­sam­leg­ast og þykir sam­kvæmt sér­fræð­ingum brýn­ast að hrein­lega að draga úr kolefna­losun af manna­völdum en það hefði auð­vitað í för með sér mikið fjár­hags­legt tjón fyrir umhverf­is­sóða heims­ins og það hugn­ast þeim auð­vitað ekki.“

Segir Steinunn Ólína að Ísland vilji vera „þjóð meðal þjóða“ og sé þess vegna að skoða það alvar­lega að „taka á móti drullu heims­ins í veru­legu magni“.

„Frekar skal losun við­haldið og jafn­vel er aukið í milli ára en jafn­framt er lagt út í gríð­ar­lega kostn­að­ar­samar og senni­lega arð­bærar aðgerðir (ein­hverjum til handa) til að fanga sóða­skap­inn og temja hann um leið með fyr­ir­tækjum eins og Carbfix.Ísland vill auð­vitað vera þjóð meðal þjóða og leggja sitt af mörkum og er að því sögðu alvar­lega að skoða að taka á móti drullu heims­ins í veru­legu magni og breyta henni í grjót í jarð­skorpu lands­ins.“

Og Steinunn hefur margar spurn­ingar um málið:

„Hvort CARBFIX eigi að fá leyfi til frek­ari til­rauna sem að sögn CARBFIX hafa gef­ist vel er til umræðu nú. Hvað græðir þjóðin á þessu spyrja margir? Hvernig getur það verið umhverf­is­vænt að flytja drullu álfa á milli? Er þetta hættu­laust? Á að treysta eft­ir­lits­stofn­unum lands­ins til að vera á verði, okkar vegna?“

Að lokum biðlar hún til les­enda um að deila með henni bæði áhyggjum og rökum með og á móti þessum áformum.

„Á morgun er ég á sum­ar­vakt hjá

Sam­stöðin

og hitti fólk sem á þessu hefur vit og skoðun. Þið megið endi­lega deila með mér áhyggjum ykkar eða rökum með og á móti því CARBFIX er stór­huga fyr­ir­tæki og þetta varðar okkur öll til fram­búðar.Er verið að reyna að leysa vanda með því að búa til nýjan vanda í stað þess að afleggja vonda siði í þágu betri heims?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Sigríður Nanna Heimisdóttir segir skólann vinna að úrlausn málsins og býður nemendum sem urðu vitni að atvikinu samtal.
Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Innlent

Bens­ín­verð hækkar hér á landi á meðan heims­mark­aðs­verð lækkar

Pólitík

„Það er eng­inn öruggur í sam­fé­lagi þar sem stjórn­málin leit­ast við að keppa í grimmd“

Heimur

Setti bráð­skemmti­legt heims­met

Innlent

Innlent

Lög­reglan á Vest­ur­landi lýsir eftir 14 ára dreng

Talið er að hann sé á höfuðborgarsvæðinu eða mögulega á Akranesi.
Innlent

Stakk starfs­mann í háls­inn með blý­anti

Innlent

Dæmdur fyrir að stela flíkum úr gámi við Zo-On í Kópavogi

Innlent

Tveir menn ákærðir fyrir kyn­ferð­is­leg atlot í barna­laug

Innlent

Vilja bæta við hæð í Sóltúni og fjölga bíla­stæðum við Kletta­garða