Valur Gunnarsson
„Getur ekkert gert nema reynt að hefna sín á óbreyttum borgurum.“
Valur Gunnarsson
Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Pólitík

Þor­gerður svar­aði Sigmundi fullum hálsi eftir frammí­kall á Alþingi

Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Pólitík

Guð­mundur Ingi greindi frá „einum léleg­asta laga­brand­ara“ Alþingis

Fólk

Fyrrum for­stjóri selur hús með heims­frægan fyrr­ver­andi eig­anda

Innlent

Segir hús­næð­is­mark­að­inn vera „eina stóra svika­myllu“

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Innlent

„Ég valdi ekki bílslysið, krabba­meinið eða fötl­un­ina“

Fólk

Flúði Talibana fimm ára en hlaut íslensku­verð­laun þremur árum seinna

Heimur

„Ein­hyrn­ingur“ fannst í Eist­landi

Móðirin Edda Björk á flótta: „Mér líður oft eins og ég sé að berjast við vindmyllur“

Edda Björk Arnardóttir mynd/skjáskot ruv.is
Edda Björk Arn­ar­dóttir mynd/skjá­skot ruv.is

Í gær lýsti lög­reglan eftir Eddu Björk Arn­ar­dóttur vegna nor­rænnar hand­töku­skip­unar. Þá var sér­stak­lega bent á að aðstoð við aðila að kom­ast undan hand­töku með því að hjálpa, aðstoða við flótta eða til­greina rangt um aðsetur varði allt að árs fang­els­is­vist.

Í yfir­ýs­ing­unni stóð: „Biður lög­regla þau sem kunna að hafa upp­lýs­ingar um hvar hana er að finna að hafa sam­band í síma 112. Upp­lýs­ingum má jafn­framt koma á fram­færi í tölvu­pósti á net­fangið [email protected].“

Í kjöl­farið birti Edda Björk Arn­ar­dóttir yfir­lýs­ingu á sam­fé­lags­miðl­inum Facebook þar sem hún segir: „

Ég hef aldrei ætlað mér að kom­ast undan rétt­vís­inni og hef alltaf ætlað að mæta fyrir rétt í Noregi.Síð­ast­liðið sumar var gefin út hand­töku­beiðni á mig í Noregi. For­sendur hennar eru sagðar þær að ég hafi ekki brugð­ist við fyr­ir­kalli til að mæta í rétt­ar­höld yfir mér þann 9. og 10. ágúst síð­ast­lið­inn. Þann 28. júlí eða 12 dögum FYRIR áætl­aða aðal­með­ferð var óskað eftir því að ég yrði hand­tekin og fram­seld.“

Móðir á flótta

Í mars í fyrra leigði Edda Björk flug­vél til að fljúga sonum hennar heim til Íslands frá Noregi þar sem faðir þeirra býr. Hafa þeir búið síðan með móður sinni og systrum á heim­ili sam­býl­is­manns Eddu.Málið leit­aði í dóms­stóla og Land­réttur stað­festi útskurð Hérðs­dóms. Synirnir skyldu úr umsjá móður aftur til föð­urs þeirra í Noregi.Í októ­ber síð­ast­liðnum voru Edda og sam­býl­is­maður hennar hand­tekin eftir þriggja klukku­stunda aðgerð lög­regl­unnar að heim­ili þeirra. Sýslu­maður hafði þá gefið út aðfara­að­gerð og flytja átti dreng­ina frá móður þeirra aftur til föð­urs í Noregi.Edda hefur kært nið­ur­stöðu Lands­réttar til Mann­rétt­inda­dóm­stól Evrópu.

Ályktun Eddu Bjarkar

„Ekkert í gögnum frá Noregi sýnir að ég hafi ekki ætlað að mæta fyrir dóm,“ segir í yfir­lýs­ingu Eddu og jafn­framt að engar hald­bærar ástæður séu fyrir hand­töku­skipan hennar. Edda Björk segir að hún sé ekki til­búin til að gefa sig fram til hand­töku og að hún hafi fengið það stað­fest frá lög­manni sínum í Noregi að ekki sé komin dag­setn­ing á fyr­ir­huguð rétt­ar­höld:

„Mín ályktun er einnig að íslensk yfir­völd vilji leysa þetta sem fyrst og helst í skjóli nætur því ég er með svo mikið vesen. Lands­réttur stað­festir nið­ur­stöðu hér­aðs­dóms rétt fyrir klukkan 17 á föstu­degi. Við áttum von á úrskurði á mið­viku­degi eða í síð­asta lagi á fimmtu­degi. Klukkan 20 á föstu­dags­kvöld var lög­reglan mætt með leit­ar­heim­ild á heim­ili mitt. Fyrir til­viljun var ég ekki heima. Ástæða þess að ég hef ekki gefið mig fram er sú að ég vil að íslensk yfir­völd gæti með­al­hófs í afhend­ingu minni. Ég vil að ég sem íslenskur rík­is­borg­ari njóti vafans þegar kemur að óljósum fram­sals­beiðnum sem engin gögn styðja og eiga sér ekki stoð í raun­veru­leik­anum. En mér líður oft eins og ég sé að berj­ast við vind­myllur. Og íslensk yfir­völd ætla enn einu sinni að beygja sig fyrir kon­ung­inum.“

Hér má sjá yfir­lýs­ingu Eddu Bjarkar Arn­ar­dóttur í heild:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Shenk varar við nýju tíma­bili óstöð­ug­leika í tækni­málum

„Spennið beltin.“
Innlent

Lög­reglan á Vest­ur­landi lýsir eftir 14 ára dreng

Fólk

„Í dag eru tíu ár síðan ég varð fyrir nauðgun“

Heimur

Musk seg­ist ekki vera hluti af MAGA-hreyf­ingu Trumps

Innlent

Dæmdur fyrir að stela flíkum úr gámi við Zo-On í Kópavogi

Innlent

Innlent

Tveir menn ákærðir fyrir kyn­ferð­is­leg atlot í barna­laug

Samkvæmt ákærunni veitti eldri maðurinn þeim yngri munnmök í barnalaug Laugardalslaugar.
Innlent

Tinna vill kenna börnum að láta sér leið­ast

Innlent

Vilja bæta við hæð í Sóltúni og fjölga bíla­stæðum við Kletta­garða

Innlent

Stakk starfs­mann í háls­inn með blý­anti

Innlent

Ásdís Rán vill að Alþingi hringi bjöll­unni