Valur Gunnarsson
„Getur ekkert gert nema reynt að hefna sín á óbreyttum borgurum.“
Valur Gunnarsson
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Pólitík

Þor­gerður svar­aði Sigmundi fullum hálsi eftir frammí­kall á Alþingi

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Pólitík

Guð­mundur Ingi greindi frá „einum léleg­asta laga­brand­ara“ Alþingis

Fólk

Fyrrum for­stjóri selur hús með heims­frægan fyrr­ver­andi eig­anda

Innlent

Segir hús­næð­is­mark­að­inn vera „eina stóra svika­myllu“

Innlent

„Ég valdi ekki bílslysið, krabba­meinið eða fötl­un­ina“

Fólk

Flúði Talibana fimm ára en hlaut íslensku­verð­laun þremur árum seinna

Heimur

„Ein­hyrn­ingur“ fannst í Eist­landi

Halla opnar bókhaldið sitt og Egill kemst ekki í veisluna: „Við Björn greiddum kr. 7.280.000″

Halla Tómasdóttir forseti Íslands.
Halla Tóm­as­dóttir for­seti Íslands.

„Við Björn greiddum kr. 7.280.000 fyrir Volvo XC30 bif­reið. Við höfum verið á Toyota Yaris árgerð 2012 síð­ustu árin en þar á undan áttum við Volvo í 12 ár,“ skrifar Halla Tóm­as­dóttir, verð­andi for­seti Íslands, þar sem hún upp­lýsir um afslátt­ar­kjör sín í við­skiptum við Brimborg.

Hún seg­ist hafa fengið afslátt sem nemur 7,5 pró­sentum frá lista­verði. Sá afsláttur er að sögn for­stjóra Brim­borgar vegna lang­tíma­við­skipta. Í því ljósi vekur athygli að Halla hefur und­an­farin ár ekið á Toyota Yaris en ekki bíl frá Brimborg.

„Nýja bif­reiðin er hugsuð til per­sónu­legra nota, sér­stak­lega fyrir maka for­seta. Líkt og kemur fram á vef­síðu umboðs­ins er verð þess­ara raf­bíla á bil­inu 6-8 millj­ónir. Við keyptum minnstu týpuna. Við fengum kr. 549.127 afslátt frá lista­verði vegna end­ur­tek­inna kaupa og stað­greiðslu, sem mér reikn­ast til að sé um 7.5% afsláttur frá ásettu verði. Eins og komið hefur fram frá umboði er það sam­bæri­legt því sem öðrum kaup­endum býðst sem upp­fylla sömu skil­yrði og það er í takt við þau kjör sem við höfum fengið við önnur bíla­kaup í þessu umboði, sem öðrum, hér­lendis sem erlendis. Aldrei var um að ræða sér­stök afslátt­ar­kjör gegn því að aug­lýsa bíla­kaupin opin­ber­lega. Það var gert án okkar vit­undar og sam­þykkis eins og einnig hefur komið fram og var leið­rétt um leið og í ljós kom,“ skrifar Halla á Facebook.

Verðandi for­seti Íslands fékk bíl á sér­kjörum-

Hún segir að ástæða þess að Egill Jóhanns­son, for­stjóri Brim­borgar, er á gesta­lista í Smiðju sé ekki vegna bíla­kaupanna og hafi komið til löngu áður og sé til­komið vegna stuðn­ings við fram­boðið.

„Hann studdi einnig önnur fram­boð eins og hefur komið fram í fjöl­miðlum og lýsti okkur vit­an­lega yfir stuðn­ingi við annað fram­boð en mitt. Auk þess til­kynnti hann mér þegar við keyptum bíl­inn að hann kæm­ist ekki í mót­tök­una,“ skrifar Halla.

Hún seg­ist ekki hafa fengið sér­stök afslátt­ar­kjör gegn því að aug­lýsa bíla­kaupin opin­ber­lega. Það hafi verið gert án hennar vit­undar, eins og hún hefur áður greint frá.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Faðmlög á göngum þingsins og hvatning milli þingmanna sjást sjaldan utan þess, sagði Diljá Mist Einarsdóttir í ræðu sinni.
Innlent

Bens­ín­verð hækkar hér á landi á meðan heims­mark­aðs­verð lækkar

Pólitík

„Það er eng­inn öruggur í sam­fé­lagi þar sem stjórn­málin leit­ast við að keppa í grimmd“

Heimur

Setti bráð­skemmti­legt heims­met

Heimur

Pútín hótar „sárs­auka­fullum“ hefndum vegna árása á Krímbrúna

Innlent

Innlent

Lög­reglan á Vest­ur­landi lýsir eftir 14 ára dreng

Talið er að hann sé á höfuðborgarsvæðinu eða mögulega á Akranesi.
Innlent

Stakk starfs­mann í háls­inn með blý­anti

Innlent

Dæmdur fyrir að stela flíkum úr gámi við Zo-On í Kópavogi

Innlent

Tveir menn ákærðir fyrir kyn­ferð­is­leg atlot í barna­laug

Innlent

Vilja bæta við hæð í Sóltúni og fjölga bíla­stæðum við Kletta­garða