Valur Gunnarsson
„Getur ekkert gert nema reynt að hefna sín á óbreyttum borgurum.“
Valur Gunnarsson
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Pólitík

Þor­gerður svar­aði Sigmundi fullum hálsi eftir frammí­kall á Alþingi

Pólitík

Guð­mundur Ingi greindi frá „einum léleg­asta laga­brand­ara“ Alþingis

Fólk

Fyrrum for­stjóri selur hús með heims­frægan fyrr­ver­andi eig­anda

Innlent

Segir hús­næð­is­mark­að­inn vera „eina stóra svika­myllu“

Innlent

„Ég valdi ekki bílslysið, krabba­meinið eða fötl­un­ina“

Fólk

Flúði Talibana fimm ára en hlaut íslensku­verð­laun þremur árum seinna

Heimur

„Ein­hyrn­ingur“ fannst í Eist­landi

Allt sem vitað er um Wagnerliða frá dauða foringjans:„Veldi Prigozhins sýnir enn og aftur lífsmark“

Wagner
Wagner

Síðustu ár voru hinir ógn­vekj­andi mála­liðar í Wagner-hópi Yevgeny Prigozhin, áber­andi í stríðs­fréttum heims­ins en lítið hefur spurts til þeirra eftir að for­ing­inn fórst er flug­vél hans hrap­aði. Hér má lesa hvað varð um mála­lið­ana eftir dauða Prigozhin.

Fyrir ári síðan hóf stofn­andi Wagner hóp­inn, Yevgeny Prigozhin, skamm­vinna upp­reisn gegn rúss­neska varn­ar­mála­ráðu­neyt­inu. Mála­liðar hans mar­ser­uðu í átt að Moskvu og komust alla leið til Rostov-on-Don án þess að mæta neinni mót­spyrnu. En kvöldið eftir höfðu Wagner-lið­arnir snúið aftur í vett­vangs­búðir sínar og Kreml til­kynnti að mála­lið­arnir hefðu tvo kosti: að skrá sig í rúss­neska her­inn eða fara frá Rúss­landi til Hvíta-Rúss­lands. Nákvæm­lega tveimur mán­uðum síðar fór­ust Prigozhin og nokkrir félagar hans í flug­slysi. Síðan þá hefur 26 ára sonur Prigozhins erft eignir hans og mála­liðar Wagner-hóps­ins í Sýrlandi og Afríku verið inn­lim­aðir inn í rúss­neska her­inn. Í nýrri skýrslu BBC News Russian segir frá því sem hefur orðið af bar­daga­mönnum Wagner-hóps­ins.

Sýrland

Mála­liðar Wagner-hóps­ins hafa verið virkir í Sýrlandi frá því að minnsta kosti síðan 2015. Eftir upp­reisn Prigozhins í júní 2023 var Sýrland að sögn einn af áfanga­stöðum þar sem upp­reisn­ar­menn­irnir fengu að fara. Tveir upp­lýstir heim­ild­ar­menn sögðu BBC News Russian að Wagner-lið­arnir sem stað­settir eru í Sýrlandi hafi verið boðnir opin­berir samn­ingar við rúss­neska varn­ar­mála­ráðu­neytið. Þar af leið­andi eru allir rúss­neskir bar­daga­menn í Sýrlandi í dag atvinnu­her­menn.

„Það var annað hvort varn­ar­mála­ráðu­neytið eða dauð­inn,“ sagði fyrr­ver­andi yfir­maður Wagner-hóps­ins við BBC News Russian.

Í frétt BBC kemur einnig fram að nið­ur­stöður atkvæða­greiðsl­unnar frá for­seta­kosn­ing­unum í Rúss­landi 2024 hafi leitt í ljós að 500 fleiri manns eru í rúss­nesku her­sveit­inni í Sýrlandi en í atkvæða­greiðsl­unni í þing­inu árið 2021. BBC News Russian bendir á að þetta sé vegna þess að mála­lið­arnir sem þar voru staddir, hafi nú gengið form­lega í raðir rúss­neska hers­ins.

Afríka

Seint árið 2023 bár­ust fregnir af því að Rússar væru að setja saman Afr­íku­her sem ætlað er að koma í stað Wagner-hóps­ins sem starf­aði í álf­unni. Á þeim tíma sagði rúss­neska við­skipta­dag­blaðið Vedomosti að Afr­íku­sveitin myndi að sögn starfa í Burkina-Faso, Líbýu, Malí, Mið-Afr­íku­lýð­veld­inu (CAR) og Níger.

Samkvæmt heim­ildum Vedomosti myndi Afr­íku­sveitin heyra beint undir rúss­neska varn­ar­mála­ráðu­neytið og vera undir eft­ir­liti aðstoð­ar­varn­ar­mála­ráð­herr­ans Yunus-Bek Evkurov. Evkurov fór margar ferðir til Afríku frá sept­em­ber til des­em­ber 2023, ásamt Vladimir Alekseyev hers­höfð­ingja GRU, sem hefur umsjón með Redut PMC (einka­her­fyr­ir­tæki), til að koma á „nýju sam­starfi við Afr­íku­lönd þar sem hern­aðar- og póli­tískur stuðn­ingur var áður veittur í gegnum einka­hern­að­ar­fyr­ir­tæki.“

Samkvæmt BBC News Russian und­ir­rit­uðu mála­liðar Wagner-hóps­ins í nokkrum Afr­íku­löndum samn­inga við rúss­neska varn­ar­mála­ráðu­neytið um að ganga í Afr­íku­her­inn. Sumarið 2024 var aðeins starf­semi Wagner-sam­steypunnar í CAR óbreytt.

Í frétt BBC kemur fram að Pavel, sonur Yevgeny Prigozhin, stýri starf­semi Wagner-sam­steypunnar í Mið-Afr­íku­lýð­veld­inu. „Moskva gaf erf­ingj­anum leyfi til að halda áfram að gera það sem faðir hans var að gera í Afríku – með því skil­yrði að það stang­ist ekki á við hags­muni Rúss­lands,“ sagði heim­ild­ar­maður sem starf­aði áður með Prigozhin við BBC.

Pavel Prigozhin hefur einnig reynt að end­ur­vekja póli­tísk verk­efni föður síns í Afríku, segir í frétt BBC. „Veldi Prigozhins sýnir enn og aftur lífs­mark,“ sagði ónefndur heim­ild­ar­maður. „Svo virð­ist sem allt hafi verið sam­þykkt af ein­hverjum í Moskvu. Þeir hafa áhuga á Suður-Afríku og fyrst og fremst Suður-Afríku. Þeir taka enn þátt í sömu mál­unum: póli­tískum ferlum, kosn­ingum, og að hafa áhrif á almenn­ings­á­litið í gegnum fjöl­miðla.

Rússland

Seint í októ­ber 2023 til­kynnti Apty Alaudinov her­for­ingi að fyrrum Wagner-mála­liðar væru að flytja til Akhmat sér­sveitar Tsjet­sjníu og fara í bar­daga í Úkraínu. Að sögn Alaudinov inni­hélt þessi „mikla ráðn­ing“ fyrrum Wagner bar­daga­manna, jafn­vel fyrr­ver­andi her­for­ingja. Ramzan Kadyrov, rík­is­stjóri Tsjet­sjníu, var enn nákvæm­ari og hélt því fram að meira en 170 fyrr­ver­andi mála­liðar hefðu gengið til liðs við Akhmat-her­deild hans. En heim­ild­ar­menn sögðu BBC News Russian á þeim tíma að ekki fleiri en 50 mála­liðar hafi í raun gengið til liðs við Akhmat.

Þann 5. apríl til­kynnti Kadyrov um enn einn gríð­ar­legan straum fyrrum mála­liða inn í Akhmat sér­sveit­ina og full­yrti að 3.000 bar­daga­menn hefðu gengið til liðs hana auk hins þekkta mála­liða­for­ingja, Alex­ander Kuznetsov. Daginn eftir ávarp­aði Kuznetsov aðra mála­liða sína í mynd­bandi og sagði: „Allt verður eins og það var í Wagner PMC, einn á móti einum. Án nokk­urra papp­íra […] og svo fram­vegis.“

Hvort 3.000 fyrr­ver­andi Wagner mála­liðar hafi í raun gengið til liðs við Akhmat hefur ekki verið stað­fest; engar fréttir hafa borist af Kuznetsov og mönnum hans síðan í apríl.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Sigríður Nanna Heimisdóttir segir skólann vinna að úrlausn málsins og býður nemendum sem urðu vitni að atvikinu samtal.
Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Innlent

Bens­ín­verð hækkar hér á landi á meðan heims­mark­aðs­verð lækkar

Pólitík

„Það er eng­inn öruggur í sam­fé­lagi þar sem stjórn­málin leit­ast við að keppa í grimmd“

Heimur

Setti bráð­skemmti­legt heims­met

Heimur

Heimur

Pútín hótar „sárs­auka­fullum“ hefndum vegna árása á Krímbrúna

Forsetinn segir Rússa ekki muni semja við Úkraínu eftir árásina
Heimur

Amma skotin í höf­uðið og keyrt yfir átta

Heimur

Shenk varar við nýju tíma­bili óstöð­ug­leika í tækni­málum

Heimur

Musk seg­ist ekki vera hluti af MAGA-hreyf­ingu Trumps

Heimur

Khloe Kar­dashian er demikyn­hneigð

Heimur

Alvar­legar ásak­anir á hendur 15 ára syni raun­veru­leika­stjörnu