Valur Gunnarsson
„Getur ekkert gert nema reynt að hefna sín á óbreyttum borgurum.“
Valur Gunnarsson
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Pólitík

Þor­gerður svar­aði Sigmundi fullum hálsi eftir frammí­kall á Alþingi

Pólitík

Guð­mundur Ingi greindi frá „einum léleg­asta laga­brand­ara“ Alþingis

Fólk

Fyrrum for­stjóri selur hús með heims­frægan fyrr­ver­andi eig­anda

Innlent

Segir hús­næð­is­mark­að­inn vera „eina stóra svika­myllu“

Innlent

„Ég valdi ekki bílslysið, krabba­meinið eða fötl­un­ina“

Fólk

Flúði Talibana fimm ára en hlaut íslensku­verð­laun þremur árum seinna

Heimur

„Ein­hyrn­ingur“ fannst í Eist­landi

Furðar sig á fangelsun Kourani: „Slíkt er óviðunandi að mati Afstöðu“

Guðmundur Ingi Þóroddsson, formaður Afstöðu.
Guð­mundur Ingi Þór­odds­son, for­maður Afstöðu.

Guð­mundur Ingi Þór­odds­son, for­maður Afstöðu, félags fanga á Íslandi, furðar sig á því að dóm­ari í máli Mohamad Kourani, sé ekki búinn að ákveða að mað­ur­inn verði komið undir lækn­is­hendur en hann dvelur nú á Litla-Hrauni. Samkvæmt mati geð­læknis er Sýr­lend­ing­ur­inn með ýmsa geð­ræna kvilla.

Mohamad Kourani, Sýr­lend­ingur sem kom til lands­ins árið 2018, dvelur nú á Litla-Hrauni og bíður dóms en hann er meðal ann­ars ákærður fyr­ir stungu­árás­ina sem átti sér stað í OK Mar­ket á Hlíðar­enda, í mars. Samkvæmt mati Kristins Tóm­as­sonar geð­læknis, er Mohamad sak­hæfur en þjá­ist af ýmsum geð­rænum vanda­málum. Hann sé sið­blindur, með aðsókn­ar­per­sónu­leika­rösk­un og áfall­a­streiturösk­un.

Mannlíf spurði Guðmund Inga Þór­odds­son, for­mann Afstöðu um málið, en hann svar­aði skrif­lega.

Hvað finnst þér um þá aðstöðu sem skap­ast hefur vegna vistar Mohamad Kourani á Litla-Hrauni?

Guð­mundur: „Því miður eru fá úrræði í fang­els­is­kerf­inu til að sinna ein­stak­lingum sem eiga við veik­indi að stríða. Þeir eru ýmist vistaðir á örygg­is­klefa eða á s.k. örygg­is­gangi á Litla-Hrauni. Slíkt er óvið­un­andi að mati Afstöðu.“

Hafa fangar áhyggjur af stöðu sinni innan Litla-Hrauns eftir komu hans og ef svo er, af hverju?

Guð­mundur: „Nei.“

Hefur þú verið í ein­hverjum sam­skiptum við Mohamad Kourani eða lög­mann hans og hvers eðlis eru þau sam­skipti?

Guð­mundur: „Nei engin sam­skipti en okkar vett­vangsteymi mun líta á hann þegar og ef við fáum grænt ljós á það eða ef hann leit­ast eftir því. Lögmaður hans þekkir núm­erið okkar ef við getum komið að liði.“

Hvað telur þú að þurfi að gera til þess að afplánun Mohamad Kourani gangi sem allra best fyrir sig?

Guð­mundur: „Að fundið verði við­un­andi úrræði, enda verða veikir ein­stak­lingar enn veik­ari ef þeim er ekki sinnt af heil­brigð­is­mennt­uðu fólki. Ég reyndar furða mig á að dóm­ari máls­ins hafi ekki nú þegar ákveðið að ein­stak­ling­ur­inn sé undir lækn­is­höndum, en ekki vistaður í fang­elsi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Sigríður Nanna Heimisdóttir segir skólann vinna að úrlausn málsins og býður nemendum sem urðu vitni að atvikinu samtal.
Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Innlent

Bens­ín­verð hækkar hér á landi á meðan heims­mark­aðs­verð lækkar

Pólitík

„Það er eng­inn öruggur í sam­fé­lagi þar sem stjórn­málin leit­ast við að keppa í grimmd“

Heimur

Setti bráð­skemmti­legt heims­met

Innlent

Innlent

Lög­reglan á Vest­ur­landi lýsir eftir 14 ára dreng

Talið er að hann sé á höfuðborgarsvæðinu eða mögulega á Akranesi.
Innlent

Stakk starfs­mann í háls­inn með blý­anti

Innlent

Dæmdur fyrir að stela flíkum úr gámi við Zo-On í Kópavogi

Innlent

Tveir menn ákærðir fyrir kyn­ferð­is­leg atlot í barna­laug

Innlent

Vilja bæta við hæð í Sóltúni og fjölga bíla­stæðum við Kletta­garða