Lögreglu barst tilkynning rétt fyrir klukkan fimm í morgun um alvarlega líkamsárás í Úlfarsárdal. Ekki kemur fram í dagbók lögreglu hvort einhver hafi verið fluttur á slysadeild en málið er í rannsókn. Það var klukan hálf tíu í gærkvöldi sem lögreglu barst tilkynning um líkamsárás. Tveir voru handteknir en þolandi slasaðist lítillega.
Í miðborginni voru fjórir menn handteknir vegna húsbrots, allir gistu í fangaklefa. Í Breiðholti var lögregla einnig kölluð út vegna húsbrots og þó nokkuð mikið var um tilkynningar vegna fólks í annarlegu ástandi. Í miðbænum datt maður og slasaði sig á höfði. Hann var fluttur með sjúkrabíl á bráðamóttöku til aðhlynningar. Þá sinnti lögregla einnig reglubundnu umferðareftirliti en samkvæmt dagbók lögreglu var nóttin heldur annasöm.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir